Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 07.01.1972, Page 1

Ný vikutíðindi - 07.01.1972, Page 1
Frjálst blað gefið út án opinberra styrkja Landhelgin miðist viö 400 metra dýptarlínu Hvað segja happasælir fiskveiði- skipstjórar um landhelgismálið? „TJm landhelgina er það að segja, að auðvitað er lifs- spursmál að fá hana stækk- aða. En það er mín skoðun, að við höfum engin tæki til að ákvarða landhelgislín- una,“ segir Þorsteinn Gísla- son, skipstjóri á aflaskipinu Jóni Kjartanssyni í bókinni „Mennirnir í . brúnni", III. bindi, sem mjlega er komið út. „Það er einnig persónuleg skoðun mín,“ heldur Þor- sleinn áfram, „að við getum ekki fært landhelgina út i 50 mílur án þess að liafa staðsetningarkerfið (þ-e- decca-tæki), bæði fyrir varð- skip og fiskiskip, því að án kerfisins er ekki hægt að staðsetja sig alfarið svo langt frá landi með nokkurri nákvæmni; og kanmske er því ekki um annað að ræða fyrir okkur en að miða út- færsluna við 400 metra dýpt- arlínu. Skylt er þó að geta þess, að nú er að koma í notkmm nýtt kerfi, sem er Omega og ekki vonlaust að það géti leyst þetta vandamál. Það er skoðun mírn, að við höfum ekki' efni á að bíða lengur með að hefja róttæk- ar byrjunaraðgerðir i land- helgismálinu, ef aðallífæð Framhald á bls. 5. Stórglæpamenn ganga lausir Ófremdarástandið á Letigarðinum Það er engin ný bóla að afbrotamenn, sem gerst hafa sekir um alls kyns óhæfu, gangi lausir mánuðum sam- an, og það jafnvel þótt þeir haldi uppteknum hætti og séu allt að því stórhættuleg- ir umhverfi sinu. Algengast er að slíkir menn séu teknir, dæmdir og síðan sleppt lausum, svona eins og til þess að þeir geti farið i gang aftur, gert hús- brot, rmplað og rænt, ráðist á saklausa veglarendur og misþyrmt þeim eða jafnvel drepið þá, rænt farlama gamalmenni og svona mætti lengi telja. Fjárglæframenn, sem upp vísir hafa orðið að milljóna- þjófnaði og alls kyns mis- ferli, ganga lausir árum sam an, eftir að búið er að dæma þá og lialda áfram að reka fyrirtæki sin, og þá væntan- lega á sama hátt og áður, og öll er meðferð dómsvaldsins á afbrotamönnum til stór- vanza. Þetta ástand má fyrst og fremst rekja til hins algera öngþveitis, sem ríkjandi er í fangelsismálum lands- manna. En það er ekki nóg með að afbrotamenn séu dæmdir til fangelsisvistar og síðan ekki hægt að stinga þeim inn fyrr en eftir dúk og disk. Það sem meira er — ástand- Framhald á bls. 5 Fatafella vihaaaar Mannréttíndalaus stétt fLeiguhíistjórar i'rufju ekki aö kaupa víu Stjrir óraiuótiu I heiwuspressunui Einhver vinsælasti og hæst- launaði „skemmtikraftur heims ins“, kvikmyndaleikarinn Dean Ma.rtin, hefur slegið sér mikið út að undanförnu og afrækt1 alveg konu sína, sem hann hef- ur verið kvæntur í 20 ár. Lengi vel vissu menn ekki gjörla hvert stefndi hjá honum, svo margar voru dömumar, sem hann lék sér með. En nú hafa málin skýrst. Hann er loks skilinn við konuna, og talið er víst að hann muni kvænast ungri stúlku, Kathryn Hawn, sem hann hefur sézt mikið með í seinni tíð og sem hann gaf 175 þúsund dollara hring fyrir skömmu. Sjást þau hérna á myndinni. Allir vita að leynileg mn- sala hefur verið rekin hér- lendis frá því hið opinbera gerði sprúttsölu að einkafyr- irtæki sínu með stofnun Á- fengisverzlunar ríkisins. Var það snemma að leigubílstjór ar fóku þessa þörfu þjó.n- ustu í sínar hendur, enda er Áféngisverzlunin varla til fyrirmyndar hvað varðar þjónustu við almenning. Það virðist vera nóg fyrir ríkissjóð að hirða tvær millj ónir á dag af landsmönnum fyrir brennivin allt árið um kring, en þess er svo sannar- lega gætt að sýna þessum mjólkurkúm ríkissjóðs ekki of mikla virðingu. Það er sjálfsagt gert til þess að leyfa liótelum að okra á brennivíni að loka brennivínssjoppum Ríkisins klukkan sex á kvöldin, en þá gefur augaleið að þyrstir borgarar verða að leita á öld urhús borgarinnar til að fá Framh. á bls. 5

x

Ný vikutíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.