Ný vikutíðindi - 24.03.1972, Qupperneq 1
Frjálst blað
gefið út
án opinberra
styrkja
BREIMIMIVÍMSSJOKK
ÆGILEG PAIMIK í HERBÚÐUM FYLLI-
RAFTA VEGMA HÆKKDMAR ÁFEMGIS
Það er sagt, að Islending-
ar séu langt aftur í rassi
hvað áfengisneyzlu snertir,
og það jafnvel þótt miðað
sé við fólksfjölda. Langt á
undan okkur eru flestar
Evrópuþjóðir, og þá ekki
síður Ameríkanar, sem
drekka firnin öll af sterk-
um vínum. En þar sem sagt
er, að brennivínið bæti allt,
bara að það sé drukkið nóg,
þá er nú ekki alveg látið
vera að taka tappa úr flösku
hérlendis frekar en annars
staðar.
Brennivínið hefur í mörg
ár verið einn öruggasti
Þurs við dyr Klúbbs
Margar kvartanir út af dyraverði
Svo virðist sem sum veit-
ingahús borgarinnar kapp-
kosti að hafa fábjána fyrir
dyraverði. Ekki er þetta
einhlítt, ög eru sums staðar
ágætir menn við þessi störf,
enda þarf á lempnum mönn-
um — og helst með fullu viti
— að halda, við dyr veit-
Islenzkur her?
Sjá leiðara um skyldurnar
við NATO á bls. 2.
Gleðisaga
Lærdómsrík og glettin saga
frá Spáni á bls. 2.
Hvaðan kom
hjálpin ?
Dulræn frásaga á bls. 3.
Hundapexið,
kattafarganið
o. fl. — Sjá Kompuna á
bls. 3.
Sjónvarpsdagskrá
varnarliðsins
ásamt efniságripi kvikmynd
anna á bls. 5.
Kemal Ataturk
Sagan af einhverjum snjall-
asta þjóðarleiðtoga, sem
fram hefur komið á þessari
öld. — Sjá bls. 6.
Krossgáta, Bridgeþáttur,
Úr bréfabunkanum, Úr
heimspressunni, Af glas
botninum. — Sjá bls. 7 og
8.
ingastaða borgarinnar, sér-
staklega um helgar.
Blaðinu liafa borist fjöl-
margar kvartanir frá mikl-
Um hópi fólks á öllum aldri
vegna ókurteisra dyravarða,
og er okkur það að vísu
Ijóst, að ekki eru allar þær
kvartanir réttmætar.
Sá dyravörður, sem mest
virðist kvartað yfir, er dyra-
vörðurinn í veitingahúsinu
Klúbbnum, en hann virðist
haldinn þeim bclgingi, sem
svo oft hrjáir þá, sem ekki
hafa komist klakklaúst í
gegnum barnaskóla.
Sagt er, að ekki þýði fyr-
ir ungt fólk að koma að dyr-
um þessa veitingastaðar með
nafnskírteini eða ökuskír-
Framhald á bls. 4
tekjuliður stjórnarvaldanna,
og er því raunar svo farið,
að þeim mun meira, sem
landsmenn drekka, því
meira rennur í sjóði gút-
templara. Þetta hefur mörg-
um þótt harla skritið, en það
er nú önnur saga.
Islcndingar drekka nú
áfengi fyrir milli sex og sjö
hundruð milljónir á ári, eða
um tvær milljónir á dag all-
an ársins hring, svo að ekki
fer hjá því, að einhvers stað-
ar er vel að verið.
Nú er enn ein brennivíns-
Iiækkunin riðin yfir lands-
lýð. Nemur hún 15% og hef-
ur valdið miklum úlfaþyt i
herbúðum brennivínsmanna,
sem telja sig nú þegar greiða
Framhald á bls. 4
X-
\
☆
☆
☆
FATAFELLA
VIKUAAAH
☆
☆
☆
Ufíndir glæpamenn
Hvað ætlar heiðarlegt fólk lengi að láta
allskonar viðgerðarmenn hafa sig að fífli?
Yarað við
einhiiða mati á barna-
og unglingabókum
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi bréf frá stjórn Félags ísl.
rithöfunda:
Fundur í stjórn Félags ís-
lenzkra rithöfunda ályktar að
lýsa ánægju sinni yfir vaxandi
áhuga og skilningi, sem ís-
lenzkum barna og unglingabók-
menntum hefur verið sýndur
að undanförnu. Öllum greinum
bókmennta er brýn þörf á heið-
arlegri gagnrýni í blöðum og
öðrum fjölmiðlum, og ekki sízt
þeim bókum, sem ritaðar eru
fyrir vaxandi kynslöð.
Hins vegar verður ekki hjá
því komizt að benda á þá stað-
reynd, að efnismat það, er hin-
ar svonefndu „Úur“ fram-
kvæmdu fyrir siðast liðin jól á
Framh. á bls. 4
Við höfum oft áður bent
á óítvifið okur viðgerðar-
manna á ýmsum heimilis-
tækjum, svo sem sjónvarps-
viðgerðum.
Þar að auki vitum við
dæmi til, að umboð sumra
tækja, svo sem þvottavéla,
liugsa fyrst og fremst um
að selja þau með hagnaði,
en liafa svo enga varahluti
langtímum saman, þannig
að ef eitthvað bilar, standa
húsmæðurnar uppi með
þessi dýru tæki i algerðum
vandræðum.
Þjófnaður á verkstæðum
En það var ekki um okur
á viðgerðum eða varahluta-
skort, sem við ætluðum að
ræða, heldur öllu fremur
ennþá alvarlegra mál —
sem sé þjófnað starfsmanna
lijá sumum fyrirtækjum, en
hann er að verða ískyggi-
lega algengur.
Sem eitt dæmi um þetla
fréttum við eftir áreiðanleg-
um heimildum, að dýrir bif-
reiðavarahlutir fengjust oft
keyptir mjög ódýrt hjá
starfsmönnum ónafngreinds
bílaverkstæðis.
Var heimildarmaður okk-
ar ekki í neinum váfa um,
að starfsmennirnir stælu
varahlutunum og seldu síð-
an á þessu lága verði.
Hér er auðvitað um glæp-
samlegt athæfi að ræða,
sem ætti að kæra og hegna
eins og innbrotum eða rán-
um.
Sömu söguna höfum við
heyrt um starfsfólk i verzl-
unum og fleiri fyrirtækjum,
en út í þá sálma skal ekki
farið nánar út í hér.
Vinnusvik
Sami heimildarmaður
sagði okkur, að á öðru bíla-
Framhald á bls. 4
„INSIDE ICELAND“
Nýtt rit á ensku fyrir erlenda
kaupsýslumenn
Inside Iceland heitir nýtt
nýtt kynningarrit á ensku um
viðskiptamál, sem nýlega er
komið út og er ætlað erlend-
um kaupsýslumönnum, sem
eiga viðskipti við Ísland eða
óska eftir þeim.
Ritið er í tímaritsbroti, alls
52 síður. í því er lýst markaðs
ástandi á íslandi, fjallað um
ferðamál, útfærzlu landhelginn
ar, mikilvægi fiskveiða fyrir ís
lendinga, helztu útflutnings-
vörur, reglur um milliríkja-
viðskipti, útflutningsverzlun
ásamt upplýsingum um stofn-
anir og félög, sem geta veitt
kaupsýslumönnum upplýsing-
ar og aðra aðstoð. Þar er einn-
ig ítarleg skrá yfir íslenzka út-
flytjendur.
Inside Iceland er gefið út í
um 5000 eintökum og verður
dreift til erlendra aðila, m.a.
félagasamtaka á viðskiptasvið-
inu, skrifstofum flugfélaga er-
lendis og erlendum sendiráð-
um á íslandi. Þá mun ritið
vera í íslenzku sendiráðunum.
Áætlað er að ritið komi
út tvisvar á ári. Ritstjóri er
Haukur Helgason hagfræðing-
ur. Útgefandi er Frjálst Fram-
tak h.f.