Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 04.08.1972, Síða 1

Ný vikutíðindi - 04.08.1972, Síða 1
RADDIR LESEIMDA Stjórn Skotfélagsins vítt Ekki ætlar mér að takast að fá birta svargrein frá mér til Skotfélagsins í Morgunblaðinu, en þar hefði svar mitt þurft að koma. En hér vil ég benda á, að ég er reiðubúinn til að sverja fyrir dómi, ýmislegt á hendur stjórn Skotfélags Reykjavíkur m. a. bókhaldsbrest. Þeir fullyrða að ég hafi ekki verið i Skotfélaginu, en félags- skírteini á ég og ætjaði að fá að birta af því mynd, en það liggur á ritstjórnarskrifstofu Vísis — og myndin ókomin ennþá. Mikið hefur gengið á að út- húða mér vegna greinar, sem ég birti í Vísi um félag þetta, en ekki get ég annað en bros- að að öllu saman. Svo mikið er víst, að ég hef komið við heldur ill kaun þar á heimili þess. , Og ég gæti tínt til sitthvað fleira. Lárus Salómonsson hefði á.tt að skipuleggja svæðið meira af viti en kröftum. Merkur bóndi hefur tjáð mér, að flestir úr stjórn Skot- félagsins hafi skotið í sveitum hvar sem þeim sýndist, enda fengu flestir bændur maga- kveisu, þegar von var á viss- um lýð úr stjórninni austur til gæsaveiða, því þeir hrein- Framh. á hls. 4 - Sú þykir mesti kvenkostur, sem tekst að ganga í saeng með sem flestum túristuml! Island hefur löngum þótt eftirsótt paradís erlendra ferðamanna, sökum nátt- úrufegurðar og fjölskrúð- ugs dýralífs og annarra einkenna, sem draga hug útlendinga fjarri frá heims- ins glgs og glaumi. Siðast liðin ár hafa allar sam- göngur og þjónusta tekið þeim risaframförum, að er- lendir ferðamenn hafa átt greiðari aðgang að landi uoru en fyrr, þegar varla fundust hrgr gfir ómerki- legri lækjarsprænur. Þessi þróun hefur ekki aðeins fært okkur íleiri túr- ista og meiri aukatekjur, heltlur hefur ails kyns er- lend ómenning siglt í kjöl- farið. Sænskur ferðamaður hefur tjáð okkur, að það sé orðið að hugtaki i Sví- þjóð og öðrum Norðurlörul- um, að sjá ísland, fleka konur, og deyja. Tjáði hann okkur, að ísland væri ekki aðeins paradís náttúrufeg- urðar, heldur einnig para- dís náttúrunnar, því hvergi væri fóik auðfúsara til sukks og saurlífis en ein- mitt á Islandi. Nefndi liann í því sam- bandi, að dvölin í Reykja- vík hefði verið ein stanz- laus svallveizla; vart hafði vín þrotið, fyrr en leigubil- stjórar hlypu inn með nýjar veigar. Ungar íslenzkar stúlkur, sumar innan við fermingaraldur, hefðu sleg- ist um hann og erlenda fé^ laga lians, því sú þótti mest- ur kvennkostur, sem tókst að ganga í sæng með sem flestum túristum. Einnig hefur okkur bor- izt til eyrna, að þýzkir og enskir ferðamenn hafi það fyrir sið að dvelja lang- dvölum „til fjalla“, en þar Framh. á bls. 4. Börnum ráðstafað inn á óreiðuheimili Menn velta því mjög fgrir sér, hvers vegna Vísir hætti svo skyndilega skrifum um barnaverndarnefnd Reykja- vikur og starfssemi hennar. Ástæðan mun vera sú, að Geir borgarstjóri gerði lmrða hríð að ritstjóra Vísis vegna þessara skrifa. Eins og menn rekur minni til, birti Vísir grein- ar og viðtöl, þar sem sumt starfsfólk Barnaverndar- nefndar var borið þungum sökum. Höfðu margir for- eldrar Ijóta sögu að segja af viðskiptum sínum við nefndina. Fonnaður félags, sem stofnað var til höfuðs Barnaverndarnefndar, fékk birtar nokkrar greinar áð- ur en borgarstjóri fékk frek ari skrif stöðvuð. Það nýjasta, sem skeð hefur, er það, að Páll Lín- dal, borgarlögmaður, hefur kært formann féiágsins til sakadóms vegna þessara skrifa. Hætt er við að leikurinn fari nú að æsast, því félags- menn gegn Barnaverndar- nefnd hyggjast láta til skar- ar skriða og láta kærum rigna yfir sakadóm á móti. Munu þess ófá dæmi, að foreldrum liafi verið mein- að að fá börn sín aftur, sem nefndin hefur komið í fóstur; og einnig það að börnum hefur verið ráðstaf- að inn á mikil óreiðuheim- ili. NÝ VIKIITÍIIINDI koma ekki út í næstu viku vegna sumarleyfa.

x

Ný vikutíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.