Ný vikutíðindi - 08.09.1972, Blaðsíða 1
DAGSKRÁ
Kefiavíkur-
sjónvarpsins
á bSs. 5
Jatafella JutnaM/HJ
ar giftast
Briíðkaupið fór fram í Ámsterdam
Það má meö sanni segja,
að Islendingar fylgist með
tímanum — og það í fleiri
en einu tilliti. Á þetta ekkt
hvað sizt við um frjálslyndi
í ástum, en óhœtt er aö
Með Chopin og
George Sand
Vinur þeirra segir frá
kvöldstundum me3 þessum
frægu elskendum. (Bls. 2).
Landhelgin og
Landgræðslan
eru helstu verkefni þjóðar-
innnar í dag (bls. 2).
Syrpan
fjallar um: vörusvik, lirátt
ákavíti, veizlu aldarinnar,
kamra o. fl. (bls. 3).
Sjónvarpsdagskrá
varnarliðsins
ásamt kvikmyndaágripum
(bls. 5).
Tveir brezkir
togarar farast á
íslandsmiðum
Átakanleg frásögn á bls. G.
Almenningsvagn
framtíðarinnar
Sjá baksíðu.
Glasbotn, krossgáta
og ýmislegt smælki.
segja, að þaö hafi mjög far-
ið í vöxt, ekki livað sízt í
Skandinavíu.
Frœg er klámaldan í Dan
mörku. sem nú er sögð í
rénun, en Svíar þykjast
allra manna frjálslegastir i
því, sem til skamms tíma
hafa verið kölluð feímnis■
mál.
KynviÁIa er nú sem óðast
að verða lögleg í hvaöa
landi sem er, og hafa
meira aö’ segja Bretar gerzt
frjálslyndir í þeim efnum,
en þó streittust þeir allra
þjóöa lengst við. Var þaö
til skamms tíma álitið sak-
næmt þar í landi, ef komst
upp um eitthvað slíkt.
Taiiö er aö Hollendingar
séu allra þjóöa frjálslegast-
ir, hvaö viðvíkur málefnum
kynvilltra, og er þaö nú orö-
ið talsvert títt, að kynvill-
ingar þar í landi ganga 1
heilagt hjónaband.
Hér á landi mun kynvilla
ekki vera ýkja mikil, boriö
Framli. á hls. 4
assrassia
Þvottaduft og magnyl -
INiakin kona ■ rúmi sínu
neitar að fara fram úr
„Þegar við komum inn í
ibúöina, var ástandið sann-
arlega meira en lítið undar-
legt“ — hefur blaðið fregn-
að að staðið hafi í lögreglu-
skýrzlu, sem gerð var vegna
húsrannsóknar . í húsi
nokkru suður með sjó.
Grunur lék á því, að þar
vœri verið að fremja meira
'pilluát, en góðu hófi gegndi,
og jafnvel verið aö fikta viö
að reykja fleira en sígarett■
ur oq vindla.
Húsrannsókn var gerö, og
eins og segir aö framan,
þótti ástandiö í íbúöinni
meö þeim hætti, aö
væri allt meö felldu.
Seinna í skýrslu þessari
segir, að þetta undarlega á-
stand hafi einkum legið í
því, að konan hafi legiö 1
rúminu, veriö fáklædd (þaö
er sannarlega meira en-lítið
skrýtiöi) og neitað að koma
fram úr rúminu til aö
fylgja vöröum laganna.
Blaðið hefur raunar fregn
að, að konan hafi veriö kvik
nakin og ekki kært sig um
Framh. á bls. 4.
Fischer móðgaðist...
Háværar raddir eru uppi
um það í borginni, að vand-
ræðin með Fisher, þegar
skákeinvígið var að hefjast,
hafi stafað af því að hann
hafi haft ástæðu til að !.or-
h'yggja forustumenn is-
lenzka skáksambandsins.
Guðmundur Þórarinssnn
lét hafa sitthvað eftir sér,
sem heimspressan birti og
Fisher móðgaðist af. Þetta
mun meðal annars hafa ver-
ið ástæðan til kenja hans,
end i mun hann hafa verio
kominn á fremsta hlunn
með að hætta við allt sam-
an, þangað til Kissenger og
fjö'skylda hans hvöttu hann
til dáða.
„The Beauity and the Beast'
Svissneska leikknan Ursula
Andress og franski leikarinn
Jean-Paul Belmondo hafa búið
saman í sjö ár.
„Nú er allt búið okkar á
milli. Ég vil aldrei sjá hann
framar,“ segir hún nú, en vin-
ir þeirra brosa í kampinn.
Sjö ára sambiið þessara
frægu leikara hefur verið all-
róstursöm. Og það þykir varla
í frásögur færandi, þótt
„skandalaparið“ rífist.
Öll þessi ár hefur „ljótasti
maðurinn“ í frönskum kvik-
myndum og „fegursta konan í
heimi kvikmyndanna11 ýmist
elskazt eða hatazt.
Þau hafa rokið burt hvort
frá öðru í reiði, en ávallt tekið
saman aftur, því að þau eiga
vel saman, þótt þau vanti
giftingarvottorðið.
Eimv.itt núna liöfðu þau boð-
ið til veizlu í nýja húsinu, sem
þau höfðu keypt á Ibiza, sem
cr ein af Baleare-eyjunum í
Miðjarðarhafi, en Maljorka er
ein .af þeim.
Fegurðarsamkeppnin
Nýir framkvæmdastjórar
Fegurðarsamkeppni íslands
er nú að fara af stað nieð
feðurðarsamkeppni í öllum
sýslum landsins, þar sem kos-
in verður fegurðardrottning
viðkomandi sýslu. /
Þær breytingar hafa átt sér
stað á rekstri Fegurðarsam-
keppni íslands, að hjónin
Sigríður Gunnarsdóttir og Jó-
hann Marel Jónasson, sem und-
anfarin ár hafa haft fram-
kvæmd keppninnar með hönd-
um, hafa nú ákveðið að hætta
öllum afskiptum af keppninni,
en við rekstri hennar hafa nú
tekið tveir ungir Reykvíking-
ar, þeir Hjörtur Blöndal og
Einar D. Einarsson. Hafa þeir
hug a að gera sýslukeppnina
að virðulegum fólksfundum,
þar'sem ungir jafnt sem gaml-
ir-geta komið saman og valið
fulltrúa síns byggðarlags til
þátttöku-í Fegurðarsamkeppni
íslands 1973, sem fram fer !
Reykjavík á næsta ári. Hafa
þeir og haft með höndum
allan undirbúning að keppn-
inni, sem nú fer af stað.
Sú stúlka, sem flest atkvæð!
hlýtur hverju sinni, verður
krýnd sem fulltrúi sinnar
sýslu af ungfrú Maríu Jóhanns-
dóttur, sem nýkomin er frá
keppni um titilinn „Miss Uni-
verse“ i Puerto Rico, og veitir
það þátttökurétt í Fegurðar-
samkeppni Islands 1973, en
verðlaunin í þeirri keppni
verða utanlandsferðir og þátt-
taka í eftirtöldum alþjóða-
keppnum: Miss Europe — Miss
International — Miss Skandi-
navia — Miss Universe —
Miss World.
Eins og áður munu verða
haldnir dansleikir jafnhliða
keppnunum, og mun Hljóm-
;Sveitin Opus leika fyrir dansi.