Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 20.10.1972, Page 6

Ný vikutíðindi - 20.10.1972, Page 6
6 M? VIICUTT&IWíÐI Óhreima kaffihollarmir Allir íbúar hinnar strjál- byggðu sveitar krinffum Crotch Lake í Michiganfylki þekktu frú Láru Jane Miller, og flest- ir kölluðu hana Nínu frænku. Þetta var geðfelld, gömul ekkja, 76 ára að aldri og bam- laus, sem áður fyrr hafði rek- ið heimabakstur og selt mörg- um ættliðum æskufólks kökur. Maður hcnnar hafði látizt árið áður, og nú bjó hún ein í litla húsinu sínu. Hún varði mest- öllum tíma sínum í að þvo og fægja, svo að aldrei var fis að sjá í þessu hreinlega húsi. Að morgni þriðjudagsins 13. október, 1949, voru tveir fiskimenn á heimleið klukkan hálf-átta, eftir að hafa tekið upp net sín, og er þeir fóru fram hjá húsi Nínu frænku, 'c '1 sem-var - að brenna.- Lítill þrýstingur var á vatninu í hús- inu, en þeir hringdu tafarlaust á slökkvistöðina, og tveir slökkviliðsmenn komú og kæfðu eldinn von ' bráðar. í bögglinum fannst lík frú Mill- ers. Af ábreiðunum • og dag- stofugólfinu lagði megnan steinolíuþef, og höfuðkúpa hinnar látnu var brotin. Hér hafði sýnilega verið slægur-morðingi að verki, sem hafði ætlað að brenna húsið til grunna, til þess að telja mönnum trú um, að; um slys væri að ræða. Tæknisérfræð- ingar töldu, að eldurinn hefði verið kveiktur um klukkan sjö. Við líkskoðun kom í ljós, að frú Miller hafði verið á lífi, en meðvitundarlaus, þegar morð- Oft í<etiir örlítið smáatriði orðið mordingja að falli komu þeir auga á þunnar reykjarslæður, er síuðust út undan útidyrahurðinni. Þeir gengu að húsinu til þess að vita, hvort eitthvað væri að, en dyrnar voru læstar. Þeir klifruðu upp á eldivið- arstafla og inn um eldhús- gluggann, og komu að dálitlu báli á miðju dagstofugóifiriú. Þar lá stór böggull, vafinn inn í ábreiður, og þaS var hann, inginn vafði ábreiðunum utan um hana, hellti yfir þáu stein- olíunni og kveikti í. Auk þess fundu læknarnir fleiri höfuð- kúppubrot, eftir þung högg. Hóf nú lögreglan rannsókn í málinu undir stjórn James Weiers, lögregluforingja. Að undanteknum- bruna- 's'kémmáunúm '' á dágstofui'óíf-"' inu var allt í röð og reglu í húsinu. Engin merki sáust um neinar stimpingar, né heldur um neina leit í skápum eða skúffum. Á eldhúsborðinu stóðu tveir óhreinir kaffiboll- ar, og þar lágu einnig nokkrir kökumolar. Við nákvæma leit fannst steinolíudunkur um það bil 20 metra frá húsinu. Lögreglan gerði sér miklar vonir um að finna morðingj- ann, því að gert var ráð fyrir, að hann hefði drukkið úr öðr- um kaffibollanum, enda fund- ust á öðrum þeirra fingraför, sem ekki tilheyrðu frú Miller. Fingraför þessi reyndust vera af Aron Clark, ungum, at- vinnulausum landbúnaðar- verkamanni. Höfðu foreldrar hans á sínum tíma verið næstu nágrannar frú Millers, og hann hafði þekkt Nínu frænku alla sína ævi. Hann kallaði hana frænku eins og flestir aðrir, og hún hafði einnig kallað hann frænda sinn. Hann skýrði lögreglunni svo fr.á, að hann hefði litið inn til hennar kvöldið áður, til þess að höggva eldivið og hella steinolíu á lampana, eins og hann gerði oft og tíðum. Áður en hann fór, höfðu þau drukk- ið saman kaffi og borðað nokkrar kökur í eldhúsinu. Clark upplýsti ennfremur, að steinolíudunkurinn hefði stað- ið i eldhússkápnum. Framburður þessi var stað- festur af manni að nafni Henry Reed, sem var éinn af næstu nágrönnum ffú Millers. Hafði hann séð Clark hjá henni, er | TTfívf'/j ? - .. . INNLENT LAN RÍKISSJÓÐS ÍSLANDS 1972.2.FL VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI 1 í maí s. I. var boðið út 300 milljón króna spari- skírteinaián ríkissjóðs. Af þessari útgáfu eru nú um 200 millj. kr seldar og hefur sala farið vaxandi á ný að undanförnu. Ekki verður gefið út meira af þessum flokki og verður afgangur bréfanna til sölu á næstunni hjá bönkum, bankaútibúum og sparisjóðum um allt land, auk nokkurra verðbréfasala. Þessi flokkur spariskírteina er bundinn Vísitölu byggingarkostnaðar frá 1. júlíþessa árs. 2 Spariskírteinin eru tvímælalaust ein bezta fjárfestingin, sem völ er á, þau eru fyrirhafnar- og áhyggjulaus, skatt- og framtalsfrjáls og eina verðtryggða sparnaðarformið, sem í boði er. 3 Sem dæmi um það hve spariskírteinin eru arðbær fjárfesting skai upplýst, að tíu þúsund króna skírteini áranna 1965, 1966 ;og 1967 eru nú innleyst á rúmlega 41 þúsund, 33 þúsund og 29 þúsund, hvert fyrir sig og hafa því gefið árlegan arð liðlega 22-24 af hundraði. ínnlausnarverð spariskírteina hefur rúmlega fjórfaldazt frá 1965, en það mun vera talsvert meira en almepn verðhækkun ibúða í Reykjavík á sama tímabili. Skírteini: 'Gefa nú. Árlegur arður.. Frá sept. 1965 kr. 10.000 kr. 41.586 22,6% Frá sept. 1966 kr. 10.000 — 33.032 22,1% Frá sept. 1967 kr. 10.000 — 29.428 24,1% Október 1972. SEÐLABANKI ISLANDS hann fór hjá á leið til bæjar- ins, en þegar hann kom aftur, var Clark farinn. Hafði Reed þá komið inn til hennar, og hún beðið hann að kaupa af sér 45 dollara ellilaunaávísun. Ennfremur skýrði Reed svo frá, að Clark og vinstúlka hans ein hefðu búið hjá frú Miller um sumarið og látið hana sjá fyrir sér, þangað til hún rak þau út. Þessu neitaði Clark og sagð- ist hafa flutt frá frú Miller, þegar vinstúlka hans hefði þurft að fara heim til Missouri vegna andláts náins ættingja Auk þess hélt hann því fram, að umsamið hefði verið, að hann dg vinstúlkan byggju hjá frú Miller um veturinn og hjálpuðu til í húsinu. Þar eð Reed virtist hafa ver- ið sá síðasti, sem sá frú Miller á lífi, rannsakaði lögreglan gaumgæfilega, hvað hann og Clark hefðu aðhafzt frá kvöld- inu áður og þangað til uppp- víst varð um morðið. Báðir höfðu öruggar sannanir fyrir j fjarveru sinni. Reed hafi ver- í ið heima hjá sér og ekki far- | ið út úr húsinu, og var það staðfest af fjölskyldu hans og | vinnumönnum. Clark kvaðst. hafa verið um nóttina hjá ætt- | ingjum sínum í Factoryville og I snætt morgunverð með þeim klukkan sjö, og staðfestu þeir, að það veeri rétt. Lögreglan vann árangurs- laust að rannsókn málsins og ; komst ekki til botns í því. i.Loks komu aílir rannsóknar- mennirnir saman hjá Weiers lögregluforin'gjá til þess að yf- irvega öll smáatriði enn á ný. Þá hfópaði-Weiers allt í einu: „Okkur hefur sézt yfir mikil vægt atriði. Nú veit ég, hver myrti frú Miller!“ Hinir litu undrandi á hann, og hann hélt áfram: „Óhreinu kaffibollarnir tveir og kökumolarnir á eldhúsborð- inu segja alla söguna. Okkur er sagt, að Clark hafi heim- sótt frú Miller síðdegis og drukkið kaffi og borðað kökur með hénni, og' fingráför hans eru á öðrúm bollanum. Lík- skoðun hefur -leitt í ljós að frú Míllér var á' lífi mdrgun inn eftir. En þar eð við vitum, að frú Miller var næstum sjúk- legá þrifin, er það alveg ó- hugsandi, að hún hafi látið ó- hreina kaffibollana standa á eldhúsborðinu frá mánudags- kvöldi til þriðjudagsmorguns. Eina skýringin er sú, að Clark hafi komið aftur til hennar snemma á þriðjudagsmorgun, drukkið kaffi með henni og myrt hana.“ Þegar þessi rök höfðu verið lögð fyrir Clárk, missti hann kjarkinn og játaði á sig morð- ið. Hafði hann laumazt út úr húsi ættingja sinna í Factory- ville klukkan hálf-sex, hjólað heim til frú Miller og beðið hana um 15 dollara _til að. senda' vinstúlku sinni, svo að hún kæmist þangað aftur frá Missouri. Frú Miller hafði að lokum látið hann fá peningana. en um leið haldið yfir honum I langa áminningarræðu og ekki sparað háðsyrðin, er hún ávít- aði nann fyrir að láta þessa stelpu féfletta sig endalaust. Þá hafði hann orðið svo bál- reiður, að hann hafði þrifið öxi og slegið hana í höfuðið með nenni. Hafði hann haldið, að hún væri dáin og þess vegna vafið ábreiðunum utan um hana, hellt yfir þau stenv olíu og kveikt í, til þess að húsið skyldi brenna til grunna. Hann var kominn aftur til Factoryville rétt fyrir klukkan sjö. Hann vissi, að frú Miller var mjög árrisul, og hafði því farið til hennar áður en nokk- ur nágrannanna var kominn á fætur. En hann hafði ekki hugsað út í það, að hún lét aldrei mataráhöld liggja óhrein næturlangt. Þann 21. júlí var hann sekur fundinn um morð og dæmdur í æfilangt fangelsi. ☆ Lögreglumanna (framhald af bls. 1) enda haí't á orði — að ckki sé til þess ætlast, að verðir laganna séu viti bornir meira en góðu hófi gegnir (þó mun þetta orðum blandið). Upp á síðkastið hcfur keyrt svo um þverbak í starf sháttum lögreglunnar, að gera verður ki'öfu til þess, að lögreglustjórinn fari að athug'a sinn gang og gera grundvallarbrcvtingar ó starfsháttum sinna manna og endurskoða, livaða krof- ur eru gerðar til lögreglu- manna varðandi starfshæfni, geðlag og vitsmuni. Lög- reglustjóri lilýtur að vcra endanlega ábyrgur fyrir mis- tökum sinna manna, og ætti ef lil vill, með liliðsjón af undangengnum aitburðum, að gefa honum náðarsam- lega fri frá störfum og setja annan hæfari í starl'ið, þótt liann sé síður en svo sam- vizkuminni embættismaður en liver annar. Blaðinu berast að staðaldri svo tíðar umkvartanir út af hegðun lögreglunnar gagn- vart horgurunum, að það væri að æra óstöðugan að sinna þeim öllum, en hreysti- verk lögreglunnar upp á sið- .kastið cru þess eðlis, að ekki er hægt að þeg.ja yfir þejm, enda hefur það raunar ekki verið gert. Er hér t. d. átt við aðfár- ir lögrcglunnar við að ná barni úr liöndum örvingl- aðrar móður, þegar fjórar liurðir voru brotnar í spað ;Og aflsmunar nevtt til að ýf- irbuga kvenmanninn — og nii síðást, þegar fjórir eða scx fílefldir þursar gengu í skrokk á trésmið, sem nokk- uð er kominn til ára sinna og aldrei hefur gert flugu

x

Ný vikutíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.