Alþýðublaðið - 10.01.1924, Síða 1
1924
\
Bæjarstjúrnar'
kosning
á Seyðlsfirðl,
Áljýðan slgrar.
Rétt í því, að Alþýðublaðið
var ahilbúið tll prentunar í gær-
morgun, barst þvi sú fregn, að
við bæjarstjórnarkosningar, er
fram fóru á Seyðisfirði á mánu-
daginn var hefði aiþýðan borið
sigur úr býtum.
Komið höfðu fram tveir listar,
og komust að af alþýðulista
þeir Sigurður Baldvinsson póst-
meistari og Gunnlaugur Jónas-
son verzlunarmaður. Af hinum
listanum, er burgeisarnir höfðu
borið fram, náði kosningu Sig-
urður Arngrímsson ritstjóri. Ó-
gloggar voru fregnir af atkvæða-
tölum, svo að blaðið vill ekki
fara með þær að svo komnu.
Þetta er önnur bæjarstjórnar-
kosningin, sem fram fer í kaup-
stað, þar sem kallað var, að bur-
geisainir hefðu unnið í alþingis-
kosningunum í háust, svo að
kjörlistar aiþýðunnar bera sigur
úr býtum. Sýna þær glögt, hvor
málstaðurinn ræður hjá þeim,
sem áhuga hafa á opinberum
málum, þótt takast megi með
ærnum fjártilkostnaði af hálfu
okurtyrirtækja burgeisanna að fá
öðru vísi Iltan meiri hluta, þegar
upp er týnt alt, sem til er — og
ef til vill meira til —, þótt ekki
geti né vilji skifta sér af opin-
berum málum á annan hátt en
þann að óttast f vitleysu alt, sem
einhver nýbreytni- eða framfara-
bragur er á.
Þessir bæjarstjórnarkosningar-
sigrar ættu að verða til þess að
blása byr alþýðu í Hafoarfirði
við bæjarstjórnarkosningarnar
jþar á laugardaglnn. Um leið
Fimtudaginn io. janúar.
Dagshrnnarmenn!
8. töiublað.
Arshátí ö
félagsius ykkar verður haldin í Iðnó laugardaginn 12,
janúar og hefst kl. 8 sfðdegis stundvíslega.
Til skemtunar verður:
1. Minni félagsins. 4. Kveðskapur.
2. Einsöngur. 5. Gamanleikur (1 kiukkutfma).
3. Upplestur. 6. Gamanvisur.
7. D a n b.
Alt beztu skemtikraftar, sem nú er völ á.
Aðgöngumiðar verða afhentir á morgun frá kl. 4—8 í Alþýðu-
húsinu og á laugardaginn frá kl. 12—5 í Iðnó.
Ath. Aðgöngumiðar hljóða upp á nafn.
Skemtunin verður að eins þetta eina kvöld.
Skemtinef’ndin.
Mikii verðlækkun
á öllum skóviðgerðum.
Einnig ódýr sjóstfgvél.
Jðn Vilhjálmsson,
Vatnsstfg 4.
Gott geymslupláss, verkstæðis-
pláss eða lítil búð óskast. —
Laugavegi 56 uppi.
mætti hún og minnast þess, að
stjórnmálasamtök alþýðunnar i
einu mesta menningarrfki heims,
Englandi, hafa nýlega unnið
glæsilegan sigur í þingkosn-
ingum.
Dagsbrúnarfnndar verður erig-
iun haldinu í kvold.
E.s. Lagarfoss
fer héðan á mánudag 14. jan-
úar síðdegis til Vestmannaeyja
og Lelth.
Útbrelðlð JUþýðublaðlð
hvar sem þlð eruð og
hvert tem þlð farlðl
Sá, sem tekið hefir koffort
með ýmsum kvenfatuaði, er kom
með Lagarfossi síðast frá Vest-
mannaeyjum, sklli þvi hafarlaust
á afgreiðsiu Eimskipaféiags ís-
lands.