Nýi tíminn - 04.09.1944, Síða 4
hliða því, sem herir alþýðunnar
þar hófu árangursríka sókn á
hendur innrásarherjunum, þá
þurftu þeir einnig að standa í
borgarastyrjöld við einn hers-
höfðingj a konungsstj órnarinnar.
Nú er því máli þannig komið, að
ríkisstjórnir hinna sameinuðu
þjóða hafa forkastað þessum hers-
höfðingja sem forustumanni
þessarar bandalagsþjóðar en við-
urkennt Tító marskálk sem for-
ustumann þjóðarinnar. Tító er
kommúnisti og á bak við hann
stendur hrein alþýðu- og þjóð-
frelsishreyfing. En átök urðu
nokkur milli auðvaldsríkjanna
annarsvegar og Sovétríkjanna
hinsvegar um, hvorn viðurkenna
skyldi.
Við töku Rómaborgar kom
einnig til stjórnarkreppu á Ítaíu.
Konungurinn sagði af sér og
lagði ríkisstjórnina í hendur son-
ar síns. Badoglíó varð að beiðast
lausnar fyrir ráðuneyti sitt og
varð með öllu að hverfa úr
stjórninni. Sósíalistar og komm-
únistar ráða mestu í liinni nýju
stjórn og ýrnsir ráðherranna hafa
neitað að vinna Umbertó kon-
ungi hollustueiða.
Og nú er þriðja vandamálið
komið til skjalanna og líklegt að
verða þyngst fyrir. Það er í Pól-
landi. Pólska útlagastjórnin í
Lundúlium er eina útlagaríkis-
stjórnin, sem Sovétríkin hafa sagt
upp stjórnmálasambandi við á
þeim grundvelli, að pólska
stjórnin hafi gert sig seka um
fjandsamlega starfsemi gagnvart
Sovétríkjunum. Þegar Rauði her-
inn hafði sótt vestur fyrir Bug-
fljót og þannig kominn inn á
ótvíræða pólska grund, var kom-
ið á pólskri stjórnarnefnd, sem
Sovétríkin viðurkenndu og tóku
upp samvinnu við. Pólska stjórn-
in í Lundúnum hefur mótmælt
þessu, segir að stjórnarnefndin sé
samsett af kommúnistum, og er
ekki ólíklega tilgetið. Bretar og
Bandaríkjamenn viðurkenna
hinsvegar pólsku stjórnina í
Lundúnum sem hina löglegu
stjórn Póllands og hafa um all-
langt skeið leitað um sættir milli
hennar og Sovétstjórnarinnar.
Fór forsætisráðherra pólsku
Lundúnastjórnarinnar til
Moskvu til að reyna að ná samn-
ingum en ekki er annað vitað en
að sú för hafi orðið árangurslaus.
Upplausn í herbúðum
fasistanna.
Síðan ofanritað var skrifað,
hafa gerzt hinir merkustu atburð-
ir styrjaldarinnar. Höfuðborg
Frakklands, margar aðrar stærstu
borgir þess og mikill hluti lands-
ins er korninn í hendur Frakka
sjálfra og bandamanna þeirra,
franska fasistastjórnin týnd og
vörn þýzka hersins mjög í molum
á þeim svæðum, sem hann liefur
enn á valdi sínu. Og sízt er útlitið
glæsilegra á Balkanskaaga, upp-
reist í Rúmeníu gegn fasista-
stjórninni og mestur hluti rúm-
enska hersins hefur snúið vopn-
um sínum gegn fyrri banda-
manni. Missir Rúmeníu þýðir
missi Balkanskagans fyrir Þjóð-
verja, og ekki sízt þar sem Búlg-
arar sækja mjög fast að komast
í sátt við bandamenn. Það má því
óhætt segja, að nú miði hröðum
skrefum í áttina að bráðum styrj-
aldarlokum.
NÝI TÍMINN
RÆTT við félaga
Framh. af 1. siðu
hreyfi sig hvergi til mótmæla og
því síður að þeir svifti þessa sömu
menn aðstöðu til að fara með
umboð þeirra í framtíðinni. í
þessu mikilvæga atriði skortir
á starf hjá ykkur, frjálslyndu
bændunum, það skortir á það, að
þið væruð búnir að velta aftur-
haldsskörfunum úr forustu sam-
taka ykkar, eða láta þá vita svo
greinilega af ykkur, að þeir sæju
sig neydda til að taka tillit til
ykkar.
Nú bjóðast ykkur sérstök skil-
yrði til að láta til ykkar taka. Al-
þýðusambandið boðar til ráð-
stefnu með fulltrúum frá búnað-
ar- og ungmennafélögunum. Nú
ríður á, að þið hefjið baráttu fyr-
ir því, hver á sínum stað, að full-
trúar verði sendir til að tryggja
grundvöll að samstarfi þessara
liópa alþýðustéttanna. Nú verður
þú að gera allt sem í þínu valdi
stendur, til þess að búnaðarfélag-
ið í þinni sveit sendi fulltrúa, og
fáist það ekki fram, þá verður þú
að reyna að stuðla að því að hóp-
ur manna sendi fulltrúa. Ég
vænti þess mjög, að þú getir verið
þar, hvort sem þú værir kosinn
fulltrúi eða ekki. Það myndi
verða mjög til að skýra fyrir þér
viðhorfin í því mikla máli, sem
nú er mál málanna: hvernig
tryggilegast verði grundvallað
samstarf alþýðustéttanna í land-
inu. . . .
Gunnar Benediktssoti.
Hljómlistin og dýrin
„Hljómlistin er sú eina tegund
listar, sem dýr og fávitar skilja“,
sagði franska skáldið De Laprade.
Það hafa líka verið gerðar ná-
kvæmar rannsóknir á hvernig
áhrif hljómlist hefur á ýmsar
dýrategundir. Hestar, hundar og
birnir eru mestir hljómlistarvin-
ir. Reynslan sýndi að þegar fiðlu-
leikarinn kom í hesthúsdyrnar,
þar sem fjöldi hesta var á stalli,
litu allir upp, þegar þeir lieyrðu
fyrstu tónana. Þegar þeir höfðu
séð hvaðan hljóðið kom, sneri
einstaka hestur sér aftur að stall-
inum og leit ekki upp eftir það.
(Það voru alltaf sömu hestarnir).
Hinir horfðu stöðugt á hljóð-
færið og lögðu við eyrun, án þess
þó að sýna nokkur hræðslumerki.
Einu sinni voru gerðar tilraun-
ir á dýrum í dýragarðinum í
London. Birnirnir komu út að
járngrindinni, lögðu við eyrun
og hlustuðu rólegir. En í hvert
skipti, sem farið var að leika lag-
leysu, snautuðu þeir frá grind-
inni. Þegar leikið var hergöngu-
lag, þrömmuðu þeir fram og aft-
ur í búrinu.
Úlfar eru hræddir við hljóm-
list: Úlfurinn skaut upp kryppu
og hvæsti, þegar hann heyrði leik-
ið á fiðlu. Indverski úlfurinn
skalf af hræðslu og skreið á kviðn-
um eins langt og hann komst.
Sjakalarnir og refirnir urðu líka
hræddir, en þó ekki eins.
Kindurnar stóðu hreyfingar-
lausar og báru höfuðið hátt, án
þess að sýna hræðslumerki. Þær
hættu að jórtra og hlustuðu ótrú-
lega lengi.
Afríkufíllinn varð reiður og
lamdi höfðinu við grindina.
Hann virtist jafnvel hræddur.
Apinn varð líka hræddur.
Hundurinn reyndist næmur
fyrir öllum tónum. Hann urrar
og er hinn versti, þegar hann
heyrir stutta, hvella tóna. Sagan
segir, að hundur tónlistarmanns
nokkurs liafi fengið krampa í
hvert skifti sem húsbóndi hans
lék á hljóðfæri og það hafi orðið
honum að bana.
(Lauslega þýtt).
Sýnishorn
af menningarstefnu Sam-
vinunnar. Viðbótarritstjór-
inn nýi, Jón Eypórsson veð-
urfrœðingur, skrifar þann-
ig um Mál og menningu:
„Hinir íslenzku byltingapost-
ular hafa siglt beggja skauta byr
í andlegri valdastreitu, sem þeir
hófu hér á landi með stofnun út-
gáfufélagsins Máls og menningar.
Þeir hafa komið einskonar hring
í miðsnesin á nokkrum „borgara-
legum“ máttarstólpum og sveigt
þá til þjónustu við sig á margvís-
legan hátt: til ritstarfa, til und-
irskrifta undir fáránlegar áskor-
anir og erindi til Alþingis, til
meðstjórnar og meðábyrgðar í
áróðursbraski sínu o. s. frv.“
Það mun sérstaklega vera ís-
lenzk menning og Sigurður pró-
fessor Nordal, sem veðurfræðing-
urinn á við, þegar hann ræðir um
máttarstólpa með hring í miðs-
nesinu.
Merkileg bók!
E£ þér ætlið að gefa vinum yðar ánægjulega gjöf,
þá er bókin
• *
„Minningar frá Möðruvöllum“
tvímælalaust sú eigulegasta.
Hún er hvortveggja í senn stórmerk heimild um
þátt úr menningarlífi okkar á liðnum tímum og
skemmtileg aflestrar.
Einnig afburða vönduð að öllum frágangi
ÚTGEFANDI
RADDIR
úr sveitinni
.... Það skal tekið fram, að
Nýi tíminn er það blaðið, sem ég
vil sízt án vera. Margt er þar vel
sagt og hressandi, og ekki er hægt
að segja það um umrætt blað og
stefnu þess, að það sé neikvætt.
Enda stendur örtvaxandi flokkur
að baki þess, og viljasterkir braut-
ryðjendur eru alltaf mikils virði.
Kákið þarf að lwerfa.
.... Meðan svo er, að gamli
Tíminn liefur allflesta búfróða
menn í tjóðurbandi sínu, sem
beint og óbeint túlka „stefnu“
Framsóknarflokksins í fræði-
greinum sínum og leiðbeininga-
starfsemi, hlýtur það að vera
dragbítur á öllu því, sem þarf að
gera í landbúnaðarmálum vor-
um. Kákið þarf að hverfa, styrk-
irnir þurfa að færast í annað horf,
bændurnir þurfa að ná sam-
bandi við þá menn, sem bera fræ
komandi ára í lífsstarfi sínu....
Tvcer stefnur i dýrtiðarmálum.
. . . .Þá vildi ég minnast ögn
á dýrtíðarmálin, sem allir ábyrg-
ir (og hinir víst líka) eru að bisa
við ár eftir ár. Tvær stefnur hafa
komið í dagsljósið, en hvorug
hefur verið reynd. Stefna sósíal-
ista er að mínum dómi svo sjálf-
sögð, að ég er agndofa af undrun,
að til skuli vera fulltrúar á þingi
þjóðar vorrar, sem gera sig að
þeim flónum að tolla nauðsynjar
manna og auka með því dýrtíð-
ina, sem þeir eru þó að kvarta
undan. Á að taka slíka menn al-
varlega? En þessir sömu menn
einblína aftur á móti á það að
lækka kaup alls vinnandi fólks
þjóðarinnar. . . . Annars er það
ekkert nýtt þetta volaða nöldur
um of hátt kaup, of hátt afurða-
verð, öll framleiðsla sé að stöðv-
ast, nú verði að taka í taumana, á
morgun verði það um seinan.
Þetta er tal þeirra manna, sem
hafa haft sérstöðu' í þjóðfélaginu,
sem þekkja ekki, hvað erfiði er,
þekkja ekki hvað húsleysi og
klæðleysi er köldum, hungruð-
um, snauðum eða menntunar-
þorsti sár efnalausum.
Greitt úr mikilli flœkju
.... Með sexmannanefndinni
svonefndu var greitt úr mikilli
flækju, sem stjórnmálaflokkarnir
voru búnir að koma þessu máli í.
Að vísu er langt í land með það,
að viðunandi lausn sé komin, en
grundvöllurinn er lagður og við-
urkenndur .Þessi sexmannanefnd
á rniklar þakkir skyldar frá al-
þjóð fyrir mikið og gott starf. Þó
hafa heyrzt hjáróma raddir, sem
hafa viljað samkomulag þetta
feigt, en slíkt ber að skoða sem
sjúkdómseinkenni.
KAUPENDUR
eru beðnir að greiða blaðið
hið fyrsta.
KAUPENDUR i Reykjavík!
Komið á afgreiðsluna, Skóla-
vörðustíg 19, og greiðið
blaðið.
************