Nýi tíminn - 15.01.1947, Side 8

Nýi tíminn - 15.01.1947, Side 8
Sjómaður skrifar um „kjörin sem íslenzkri sjómannastétt eru boðin enn í dag“ á 2. síðu Blek og bloð, seinni hluti greinar eftir Ilja, Erénborg, er á 5. síðu Gamlárskvöld var æði róstusamt á Skagastrond Ileiftorleg glagsmál og glaiftnaleg iifteúferð sprengna Gamlárskvöld var æði róstusamt á Skagaströnd. Slags mál voru þar heiftarleg, hættulegum sprengjum víða varp- að og munaði minnstu að af hlytizt eldsvoðar. Sýslumaður- inn í Húnavatnssýslu hefur yfirheyrt 20—30 manns í sam- bandi við þessa atburði, en rannsókn á þeim er samt enn ekki lokið. Óspektir þessar hófust um kl. hálf tólf á samkomu, sem haldin var í skála nokkrum, er notaður hefur verið sem matsalur verksmiðjufólks. — Um 40 manns höfðu setið þarna að kaffidrykkju og hugðust fara að stíga dans. þegar sprengju var varpað inn í salinn og sprakk hún þar með þeim afleiðingum að eldur kviknaði samstundis. Fljótlega tókst þó að slökkva eldinn, og ekkert af fólkinu varð fyrir meiðslum af sprengingunni- En þetta var aðeins tiltölu Iega saklaus forleikur að þeim atburðum, sem áttu eft- ir að gerast þarna á samkom- unni. Hópur óróaseggja, sem fyrr um kvöldið hafði gert sér það til gamans, að brjóta allar perur í götuljósum þorpsins, svo að aldimmt varð í því, ruddist inn í sam- komusalinn og gáfu þessir náungar sig óðara að því að berja á karlmönnum þeim, sem þar voru fyrir. For- sprakkar þessa flokks eru nafngreindir af sýlumannin- um og heita þeir Guðmundnr Karlsson (frá Suðurnesjum) og Birgir Árnason (úr Húna- vatnssýslu). Upphófust nú slagsmál mikil þarna í saln- um, og fengu margir við þau slæmar skrámur 1 andlit, en 2 menn voru slegnir 1 rot, og var annar þeirra meðvitundar laus í hálfa klukkustund. — Tvö rifbein í sama manni munu hafa brákazt nokkuð. Þeir, sem urðu fyrir rot- höggum, heita Högni Sigurðs son og Þórður Jónsson, sá síð arnefndi rifbeinsbrotnaði- — Þórður átti einkum í höggi við Guðmund Karlsson og segja sjónarvottar, að Þórð- ur hafi tvívegis komið mót- stöðumanni sínum undir, en slagsmálahetjan Guðmundur tnaut í bæði skiptin aðstoðar félaga sinna til að ná aftur góðri vígstöðu. Þá segir sýslumaður einnig frá því, að sprengju hafi ver ið varpað inn í Ijósastöð síld arverksmiðjanna á Skaga- strönd þetta sama kvöld, og við það kviknað eldur, sem bráðlega tókst þó að slökkva. Ekki hefur enn hafzt upp á manni þeim, sem þessari sprengju varpaði. Stoínar Wallace nýjan flokk Telur siuðnmg Bandaríkjanna við afturhaldsstjórnir og útgjöld til hernaðar vera ógnun I fyrstu greininni sem Henry A. Wallace skrifaði sem rit- stjóri liins frjáislynda vikurits: New Republic, segir hann að meginverkefni framfarasinnaðra manna í Bandaríkjuijum só að endurskapa Demókrataflokkinn, og sagði jafnframt: „verði ekki hægt að breyta Demokrataflokknum verðura við að grípa íil annarra ráða“. Tímarit þetta hyggst Wall- ace að nota sem tæki í bar- áttunni fyrir friði ,,byggðum á samstillingu allra krafta til að útrýma fáfræði og skorti úr heiminum.“ Áðurnefnd ritstjómargrein, undir fyrir- sögninni: Atvinna — friður — frelsi, tók 5 blaðsíður og kom út 16. des. s.l. í grein sinni hvetur Wall- ace Bandaríkin til að stöðva hinn hættulega undirbúning styrjaldar,“ og talar um stuðning Bandaríkjanna við „spilltar og ólýðræðislegar ríkisstjórnir og útgjöld til vopnaframleiðslu sem ógn- un.“ í sambandsmálum er stefna hans að berjast gegn krepp- unni sem Repúblikanaflokk- urinn er að leiða yfir þjóð- ina, bæta úr húsnæðisvand- ræðunum, koma á endunbót- um í heilbrigðismálum al- mennings og lækka vöruverð ið með því að brjóta vald hringanna eða að ríkið taki að sér að starfrækja og full- nýta meginiðngreinarnar sem vanreknar eru. (ALN). Búnaðar- Þrátt fyrir heimsstyrjaldir gegn kynþáttaofstæki og yfirdrottn- unarstefnu, er ameríski fasisminn ennþá í blóma. Jafnvel í Norð urríkjunum kemur það fyrir, að negrar verða fyrir árásum og eru grýttir. Hér á myndinni sjást tveir hvítir menn vera að bjarga svertingja frá því að verða blóðugt fómarlamb hinna sömu kynþáttaofsókna sem Ameríkumenn m. a. börðust gegn í Evrópu. (Sjá grein á 3. síðu). Veríiir við Faxaflóa Frumvarp um að ríkið byggi verbúðir við Faxaflóa flutt að tilhlutan Áka Jakobssonar atvinnumálaráðherra Sjávarútvegsnefnd neðri deild-* ar flytur; samkvæmt tilmælum atvinnumálaráðherra, frumvarp til laga um heimild fyrir ríkis- stjórnina til þess að koma upp verbúðum við Faxaflóa. — Frum varpið er svohljóðandi: 1. gr. Riíkisstjórninni er heim- ilt að láta reisa verbúðir fyrir fiskibóta utan af landi í þeim ver stöðvum við Faxaflóa, þar sem hafnarskilyrði eru fyrir hendi. Ennfremur er ríkisstjórninni heimilt að taka leigunámi hús- pláss í þessu skyni og útbúa það til notkunar. 2. gr. Hafa skal samráð og samvinnu við hlutaðeigandi bæj Millilanda- ferðir Flug- félagsins í þessum mánuði heldur Flug- félag íslands uppi einni ferð vikulega til Kaupmannahafnar, með viðkomu í Prestwick, og ennfremur einni ferð vikulega til Prestwick. Til Kaupmannahafnar eru ferð irnar héðan á miðvikudögum, gist í Prestwick og komið til Kaupmannahafnar á fimmtudög- Framh. á 6. síðu banki íslands Efnahagsyfirlit bankans 1 jan- .1947. er nýkomið út. . ; Skuldlaus eign allra deilda bankans hefur aukizt á árinu og er nú orðin nærri fimmtán Skuldlaus sparisjóðsdeildarinnar hefur aukizt um ca. 880 þús. kr., en auk þess hefur verið fært á fyrningarsjóð fast- kr. 300 þús. og á afskriftareikning 160 þús- und kr,- Útlán allra deilda bankans hafa á árinu aukizt um nærri 5 millj. og 420 þús. kr- og verðbréfaeign um ca. 3 og 400 þús. kr., en bankainnstæða og peningar í minnkað um 7 millj. og þús. kr- Innstæðufé í sparisjóði og á skírteinum hefur vaxið um eina millj- og 400 þús. kr., en innstæður í hlaupareikningi og á reikningslánum hafa minnkað um 2 millj. og 100 þús. kr. Hagur bankans hefur farið sífellt batnandi hin síðustu ár, allt frá því að hann flutti í miðbæinn. Bankinn á nú hús í smíðum upp á sex hæð ir í Austurstræti. Húsið er komið undir þak og byrjað á innréttingum og gert ráð fyr- ir að hægt verði að flytja starfsemi bankans þangað seint á þessu ári- Á tveim síðustu árum hef- ur bankinn lagt í sjóð til þess arar byggingar, og nemur sjóðurinn nú 600 þús. kr. Nýr bátur Brintiftes Fyrir jólin kom nýr bátur til Patreksfjaröar frá Dan- mörk. Heitir hann Brimnes og er eign Vestumess h- f- Báturinn var 8 sólanhringa á leiðinni, fékk vont veður alla leiðina. Skipstjóri var Helgi Guðmundsson og lætur hann hið bezta af bátnum. Báturinn er 38 smál. Bæjaístjora Akraness skorar á Alþingi að samþykkja írumvarpið um aðstoð ríhisins við byggingar bæja- og sveitafélaga Bæjarstjóm Akraness samþykkti á fimdi sínum 2. þ. m. áskorim til Alþingis um að lögfesta fmmvarp Sigfúsar Sigurhjartarsonar um aðstoð rfldsins við opinberar bygg- ingar bæja- og sveitafélaga. Flutningsmaður tillögunnar var Axel Eyjólfsson vara- bæjarfulltrúi Sósíabstaflokksins. ar- eða sveitarstjórn um tilhög- un og framkvæmd verksins svo og um þátttöku í kostnaði við framkvæmdir. Skorist bæjar- eða sveitar- stjórn undan því að taka þátt í kostnaði við að koma upp ver- búðum þessum, er ríkisstjórn- inni heimilt að reisa þær að öllu á kostnað ríkissjóðs, en hlutað- eigandi bæjar- eða sveitarstjórn skal endurgreiða ríkissjóði hluta af kostnaðinum í þeim hlutföll- um, sem ákveðið er í 2. gr. laga nr. 29 23. april 1946, sé ekki um algerar bráðabirgðaverbúðir að ræða. 3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Á sama bæjarstjórnarfundi var samþykkt að á sumri komanda skuli steypa Hafnar götuna frá hafnargarði að Suðurgötu. Ennfremur sam- þykkti fundurinn að Skírnis- gata, sem framvegis á að heita Skólabraut, verði einn- ig malbikuð. Fréttaritari.

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.