Nýi tíminn - 26.01.1956, Blaðsíða 4
&) — NÝI TíiMINN — Fimmtudagur 26. janúar 1956
Lífsleiðanum sem gagntók
mikinn hluta rússneska há-
aðalsins á hnignunartímabili
keisaradæmisins hefur löngum
verið við brugðið. Stórfurstar,
greifar og barónar og hispurs-
meyjar þeirra máttu ekki virð-
ingar sinnar vegna gera ærlegt
handtak; veiðiferðir, veizlur og
og hverskonar skemmtanir var
það eina sem þetta fólk mátti
hafa fyrir stafni. En þar kom,
oft á unga aldri, að allar á-
striður voru kulnaðar, glysið
og glaumurinn veittu ekki leng-
ur nautn heldur fylgdi þeim
óbærileg þjáning, allt Kfið
hafði misst bragð og lit. Þeg-
ar svo var komið var fangaráð
margra að varpa sér út í
tryllta fjárhættuspilamennsku,
en jafnvel hún varð með tím-
anum tilbreytingarlaus. Þá var
það að einhver í þessum lífs-
leiða hópi fann upp leik, sem
megnaði að gefa lífinu inni-
hald þegar allt -annað þraut. Sá
leikur heitjr rússnesk rúletta,
og í honum leika menn sér að
lífi sínu. Maður lætur eitt
skot í sex hólfa skammbyssu,
snýr hjólinu rösklega, ber
býssuhlaupið upp að gagnaug-
anu og hleypir af þegar hjól-
ið stöðvast. Ef skotið hleypur
af héfur leikmaðurinn að vísu
tapað, en hann er jafnframt
iaus við lífsleiðann í eitt
skipti fyrir öll. Ef hinsvegar
hjólið hefur stöðvazt með eitt-
hvert af tómu hólfunum fimm
í skotstöðu, hefur hann unnið,
sloppið heill á húfi úr sjálf-
skapaðri lífshættu. Kenndin
sém því fylgdi þótti bægja
lifsleiðanum frá, að minnsta
kbsti um stund.
Nú á tímum nýtur rússnesk
rúletta lítilla vinsælda í
iandi því sem hún er kennd
við, enda iðjulaus yfirstétt
]>ar úr sögunni. Ekki er þó
sjálfsmorðsle'ikur þessi al-
dauða, hann virðist hafa fest
rætur í Bandaríkjunum. Þess
sést öðru hvoru getið í frétt-
uin þaðan, að ungir menn, oft-
ast milljónarasynir, hafi látið
iífið fyrir aldur fram, vegna
þess að þeir hafi tapað í
rússneskri rúlettu. Svo kunnur
er leikurinn orðinn þarna vestra
að stjórnmálamenn, sem allra
manna sízt mega við því að
haga orðum sínum svo að þau
fijúgi fyrir ofan skiining þorra
háttvirtra kjósenda, eru famir
að sækja í hann líkingar þeg-
ar þeir vilja bauna rækilega
á andstæðinga sína. Laug-
ardaginn í síðustu viku lýsti
foringi stjómarandstöðuflokks-
ins bandaríska yfir þeirri skoð-
un, að • utanríkisráðherrann í
núverandi ríkisstjórn hefði gert
sig sdcan um háttalag sem til
einskis svipaði meir en rúss-
neskrar rúlettu, ef trúa mætti
orðum hans sjálfs.
(Ttilefni þesara ummæla var
•*- grein, sem birtist í síðasta
hefti tímaritsins Life. Greinar-
höfundur hefur þar eftir Dull-
os ut -*nríkisráðherra ýmis um-
mæli um utanrikisstefnu
Bandaríkjanna þau þrjú ár
sem Eisenhower forseti hefur
setið að völdum. Dulles hefur
iýst yfir að hann hafi ekkert
við það að athuga sem Life
hefur eftir honum, en Þar á
meðal er þetta: „Auðvitað
römbuðum við á barmi styrj-
aldar. Sá hæfiieiki að fara
fram á yztu nöf án þess að
Mssnesk rúletta
leikin í Washington
lenda i styrjöldinni sem við
blasir, er lífsnauðsynleg list.
Ef maður hefur hann ekki
á valdi sínu lendir maður ó-
hjákvæmilega í styrjöld". Þessi
ummæli, ásamt fullyrðingum
um að Bandaríkjastjórn hefði
þrisvar á þrem árum hótað að
hefja kjarnorkustríð gegn
Kína, vöktu að vonum mikla
athygli og kröftug mótmæli.
Ein harðasta ádrepan sem
Dulles fékk var frá Adlai Stev-
enson, sem demókratar buðu
fram gegn Eisenhower 1952 og
mestar líkur þykja á að verði
aftur í kjöri fyrir flokk sinn
í forsetakosningunum í haust.
„Mér hrýs hugur við því“,
sagði Stevenson, „að utanrík-
isráðherrann skuli vera þess
albúinn að leika rússneska
rúlettu með tilveru þjóðar
vorrar. Ég er eklci sammála því
að list hinnar æðstu stjórn-
kænsku sé í því fólgin að
teyma oss hvað eftir annað
fram á brún styrjaldar. Sér-
staklega nú á kjarnorkuöldinni
er list stjórnkænskunnar fólg-
in í því að stefna að friði, en
eklii styrjöld eða fram á barm
styrjaldar".
Skyssurnar sem Dulles hefur
gert síðan hann varð utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
nægja vafalaust til að halda
minningu hans á lofti um lang-
an aldur. Hann hóf feril sinn
méð því að heita því að „frelsa
hinar undirokuðu þjóðir" í
Austur-Evrópu og hóta „end-
urgjaldsárásum með hinum
stórfelldustu vopnum hvar- og
hvenær sem okkur sjálfum
sýnist“, en varð að éta það allt
ofaní sig aftur til að lægja
óttann sem stóryrði þessi höfðu
vakið meðal bandamanna
Bandaríkjanna. Hann hótaði
„þjáningarfullu endurmati" á
afstöðu Bandaríkjanna til
Frakklands ef franska þingið
hafnaði Vestur-Evrópuhernum,
en lét sitja við orðin ein þeg-
ar frumvarpið um herinn var
fellt. Hann móðgaði Indverja
með því að lýsa yfir að Banda-
ríkjastjórn teldi nýlenduna
Goa hluta af Portúgal einmitt
þegar æðstu menn Sovétríkj-
anna voru staddir í Indlandi
og höfðu heitið landsmönnum
fulltingi í baráttu þeirra fyrir
endurheimt Goa. En greinin í
Life er þó mesta reginskyssa
sem Dulles hefur orðið á. Vand-
séð er, hvernig hann hefði get-
að spillt öllu rækilegar fyrir
sér en þar er gert.
Nú fara í hönd forsetakosn-
ingar í Bandaríkjunum, og
með greininni í Life hefurDull-
es tryggt það að utanríkismálin
verði eitt helzta deilumálið í
kosningabaráttunni. Uppá síð-
kastið hafði Eisenhower haft
nóna samvinr'i við demókrat-
ann Walter George, hinn ó-
hrifamikla formann utanrikis-
málanefndar öldungadefldar-
innar, um mótun utanríkis-
stefnunnar. Þeir höfðu komið
því til leiðar að utanríkismálin
virtust ætla að verða fyrir utan
fiokkadeilumar. Það hefur allt
breytzt við grein Dullesar, eins
og sjá má af orðum Stevensons
sem áðan voru tilfærð. Hubert
Humphrey, einn af fulltrúum
demókrata í utanríkismála-
nefnd öldungadeildarinnar, hef-
ur lýst yfir að Dulles hafi gert
sig beran að sögufölsunum,
vitnisburður hans sjálfs um
Indó Kína á lokuðum fundum
nefndarinnar afsanni fullyrð-
ingar hans í Life um að það
hafi verið bandarískar hótanir
< " "
Erlend
tí ðlndi
i. . j
um kjamorkuárásir á kín-
verskar borgir sem orðið hafi
til þess að vopnahié var samið
í Indó Kína. Humphrey hefur
við orð að krefjast þess að
vitnisburður Dullesar verði
birtur. Slíkra sönnunargagna
er ekki þörf til að reka ofan
í Dulles það sem hann segir um
Indó Kína. Nú þakkar hann sér
að friður komst þar á, en öll-
um sem fylgjast með fréttum
er í fersku minni að hann fór
í fússi af vopnahlésráðstefn-
unni í Genf þegar stjómir
Bretlands og Frakklands höfn-
uðu kröfu hans um að halda
stríðinu áfram. Fréttamenn í
Washington benda á að svip-
uðu máli gegnir um staðhæf-
ingu Dullesar um að hótanir
um kjamorkuárásir á Kína
hafi hindrað styrjöld útaf smá-
eyjunum við Kinaströnd. Það
er nefnilega búið að vera opin-
bert leyr.darmál í Washington
síðan í fyrravor, að krafa Duíl-
esár og þriggja af f jórum
fulltrúum í yfirherróði Banda-
ríkjanna um að bandrískum
flota og flugher yrði beitt til
hjáipar Sjang Kaisék að verja
aðstöðu hers hans á Tatséneyj-
um strandaði á andstöðu Ei-
senhowers.
að er nokkumveginn sam-
dóma álit fréttamanna í
Washington að markmið Dull-
ésar með greininnr' í víðlesn-
£ asta tímariti Bandaríkjanna
)• hafi verið að hnekkjá þeirri
skoðun að Eisenhower hafi upp
á síðkastið tekið af honum
ráðin og mótað sáttfúsari utan-
ríkisstefnu, þá sem hæst bar
á fundi æðstu manna fjórveld-
anna í Genf. Dulles tökst að
koma Eisenhower í þá aðstöðu
að hann átti um það að velja
að setja hann af, og valda með
því klofningi í Republikana-
flokknum, eða lýsa óbeint yfir
samþykki við það sem sagt er
i greininni í Life. Forsetinn valdi
síðari kostinn. En vafasamt er
að það nægi til að bjarga á-
liti Dullesar. Flest mikilsvirt-
ustu blöð Bandaríkjanna hafa
kveðið upp þunga áfellisdóma
yfir málflutningi hans. New
York Times kemst svo að orði
að utanríkisráðherrann hafi
„viðhaft óviturleg ummæli, sem
eru hróplegt dæmi um það,
hvemig ekki á að halda á utan-
ríkismálum, svo ekki sé fast*
ar að orði kveðið“. Washington
Post segir að ekki verði .annað
séð af greininni í Life en að
Dulles sé glanni og ángurgapi
sem hafi nautn af því að tefla
á tvær hættur.
I7nn óblíðari viðtökur fékk
^ Dulles þó utan Bandaríkj-
anna. Eina blaðið í Evrópu sem
birti ummæli hans með vel-
þóknun var Morgunblaðið.
Blöðum, sem hingað til hafa
varið hvað eina, sem banda-
ríski utanríkisráðherrann hefur
tekið sér fyrir hendur, var nú
loks nóg boðið. Brezka íhalds-
blaðið Daily Mail rekur tal
Dullesar um listina að vega
salt á barmi styrjaldar og bæt-
ir við: „Sé þetta list, þá er
það sú hryllilegasta list sem
vér höfum kynnzt“. „Guð
verndi oss fyrir þessum línu-
dansara og kæruleysi hans“,
segir Daily Herald, málgagrt
Verkamannaflokksins. Talsmað-
ur brezka utanríkisráðuneytis
ins sagði umbúðalaust, að Dull-
es færi með rangt mál, þar
sem hann segir að brezka
stjórnin hafi lofað sér þvi vorið
1954 að grípa til vopna við hlið
Bandaríkjamanna i Indó Kína,
en síðan gengið á bak þeirra
orða sinna. Dulles hefur minnt
heiminn rækilega á að í Banda-
ríkjunum er öflugur og harð-
snúinn stríðsflokkur og full-
trúar hans skipa ýmsar mestu
áhrifastöður í stjórnarkerfinu,
eiga meira að segja sæti í rík-
isstjórninni sjálfri.
M. T. Ó.
HerfSugvélar
rekast á
Tvær sovézkar orustuflugvæl-
ar rákust á fyrir helgina ná-
lægt landamærum Ungverja-
lands og Austurríkis og hröpuðu
til jarðar í Austurriki. Annar
flugmaðurinn komst Hfs af.
Segir liami að vélamar hafi
verið að elta tvær ókxmnar her-
flugvélar sem flogið hafi yfir
ungverskt land, og hafi rekizt
á í þeim eltingaleik.
Rólegra
} Indlandi
Heita mátti að allt væri með
kyrrum kjönun í gær í milljóna-
borgiimi Bombay á Indlandi. Yf-
irvöldin segja að 71 maður hafi
beðið bana og yfir 500 meiðzt
í viku óeirðum þar. Uppþot hafa
orðið á öðrum stöðum í Indlandi
vegna óánægju manna með
fyrirætlanir ríkisstjómarinnar
um að gera gagngerðar breyt-
ingar á skiptingu landsins í
fylki.
Rhee heimtar
kjarnorkuvopn
Herstjóm Syngmans ‘Rhee í
Suður-Kóreu krafðist þess nýl.
af Bandaríkjastjóm að fá
kjarnorkuvopn til umráða.
Sagði forseti suðurkóreska her-
foringjaráðsins, að herinn
Norður-Kóreu væri orðinn svo
öflugur að suðurkóreski her-
inn yrði að fá kjamorkuvopn
til að geta haft í fullu tré við
hann. v
John Foster DuUes