Nýi tíminn - 21.06.1956, Qupperneq 12
NÝI TÍMINN
Fimmtudagur 21. júní 1956 — 10. árgangur — 22. tölublað
Stúdentarnir, sem brautskráðir voru frá Menntaskólanum í Reykjavík s.l. föstud. fyrir
framan skólann. Frétt um skólaslitin á 3. síðu. (Ljósm. Sig. Guöm.)
Menntaskólanum í Reykjavik slitið
15, jímí og brautskráir 95 stúdentar
289 nemendur stóBust árspróf i skólanum
Menntaskólanum í Reykjavík var slitið 15. júní og lauk
þá 110. starfsári skólans. Brautskráðir voru 95 stúdentar,
59 úr máladeild og 36 úr stæröfræðideild.
Pálmi Hannesson rektor rakti
við skólaslit störf skólans á iiðn-
um vetri. Nemendur voru 420 í
upphafi skólaárs, 148 stúlkur og
272 piltar. í þriðja bekk voru
117 nemendur, 188 í máladeild
og 115 í stærðfræðideild. Bekkja-
deildir voru 20 og kennarar 32,
þar af 20 fastakennarar.
289 stóðust árspróf
Undjr árspróf gengu 323 nem-
endur, þar af 9 utan skóla. 306
nemendur luku prófi og stóðust
289, en 17 féllu, þar af 10 í 3.
bekk. Við árspróf hlutu 2 á-
gætiseinkunn, 98 fyrstu einkunn,
158 aðra einkunn og 31 þriðju
einkunn. Hæstar einkunnir
hlutu: Jónatan Þórmundsson 5.
E. ág. 9.68, Gísii Þorsteinsson
5. B. 9.43, Gylfi ísaksson 4. X og
Jakob Ármannsson 3. C., báðir
I. 8.97. Þorsteinn Þorsteinsson
ia's utanskóla 4. og 5. bekk máia-
deiidar og fékk 8.54 í 4. bekk en
8,82 í 5. bekk.
Hæstu einkunnir á
stúdentsprófi
Undir stúdentspróf gengu 96
nemendur, 93 skóianemendur og
3 utanskóla. 59 iuku prófi í
máiadeild og hlaut einn þeirra
ágætiseinkunn, 31 fyrstu eink-
unn og 27 aðra einkunn. Hæstu
einkunn i máladeild hlaut Guð-
rún Erlendsdóttir ág. 9.25, næst-
hæstu einkunn hlaut Ragnheið-
ur Torfadóttir I. 8.94, þriðju
hæstu Heimir Þorleifsson I 8.90
og fjórðu hæstu Kristín Gísla-
dóttir I. 8.80.
í stærðfræðideild luku 36
nemendur prófi; þrír hlutu á-
gætiseinkunn, 19 I. einkunn, 12.
II. einkunn og 2 þriðju einkunn.
Hæstur í deildinni varð Ketill
Ingólfsson ág. 9.38, næsthæsta
einkunn hlaut Sveinbjörn
Björnsson ág. 9.16, þriðju hæstu
Pálmi Lárusson ág. 9,08 og
fjórðu hæstu þeir Hólmgeir
Björnsson og Jakob Jónsson,
báðir I. 8.73.
Verkafólk og aðrlr launþegar!
Hafið sem nánast samband við
kosningaskrifstofur Alþýðubanda-
lagsins.
Nýir stúdentar:
MÁLADEILD:
6. A.
Anna Sigurjónsdóttir
Auður I. Óskarsdóttir
Ása Jónsdóttir
Ásta Thors
Ásthildur Sigurðardóttir
Bergljót Eiríksson
Birna H. Stefánsdóttir
Erna Andrésdóttir
Guðlaug Einarsdótir
Guðrún Erlendsdóttir
Jarþrúður Þórarinsdóttir
Jóhanna Stefánsdóttir
Kristín Bjarnadóttir
Kristín Gísladóttir
Kristín Gústavsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir
Ragnheiður Torfiadóttir
Sigriður Þ. Sigfúsdóttir
Svanhildur Sigurgeirsdóttir
Vigdís Sigurðardóttir
Hermenn í
skógareldi
Brezka herstjórnin á Kýpur
segir að 19 hermenn hennar
hafi beðið bana og 18 skað-
brennzt í skógareldi. Telja
Bretar að skæruliðar hafi
kveikt i skóginum til að sleppa
Brezkur dómari hefur dæmt
tvo 22 ára Kýpurbúa til dauða
fyrir að skjóta brezkan her-
mann til bana.
Bandarikjastjórn hefur sent
brezku stjórninni mótmæli
vegna þess að bandarískur
vararæðismaður í Nicosia beið
bana og fimm aðrir Bandaríkja-
menn særðust þegar sprengju
var varpað inn í veitingahús
Neltaði að
hneigja sig
Drottningarhoh íhaldsblöð i
Bretlandi, svo sem Sunilay Ex-
press, eru stórhneyksluð yfir því
að sænski félagsmáiaráðherrann
frú Uila Lindström beygði ekki
kné fyrir Elísabetu drottningu
þegar hún heilsaði henni við
komu brezku drottningarhjón-
anna til Stokkhólms um daginn.
Frú Lindström sagði fréttaritara
biaðsins, að hún félli ekki á kné
fyrir Svíakonungi og því síður
myndi hún gera það fyrir ungri,
útlenzkri konu.
6. B.
Auðunn Guðmundssori
Bernharður Guðmundsson
Eggert Briem
Einar Sigurðsson
Ernst Daníelsson
Guðni Á. Sigurðsson
Gylfi Ásmundsson
Gylfi Baldursson
Heimir Iun'leifsson
Jón Blöndal
Jón Jakobsson
Magnús Sigurðsson
Ólafur Jónsson
Ólafur R. Jónsson
Pétur Jósefsson
Sveinn Matthíasson
Vialdemar Hansen
6. C.
Alma E. Hansen
Arnar Þorgeirsson
Benedikt Guðbrandsson
Bergljót Halldórsdóttir
Elín Finnbogadóttir
Gottskálk Björnsson
Guðmundur Ó. Ólafsson
Gylfi M. Guðbergsson
Halldór Vilhjálmsson
Heiga Priðfinnsdóttir
Framhald á 11. síðu
Alvaran bak við brottllutningshjalið:
Firaia II þns. lesta flutningaskip
til hersins á l vikirai
Blöð hernámsflokkanna hafa undanfarið rætt með
skelfingu um brottför bandaríska hersins frá íslandi.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert baráttuna fyrir varan-
legu hernámi íslands að aðalkosningamáli eins og
reynir að afla sér atkvæða með þeim áróðri að hér verði
atvinnuleysi ef herinn fari. Enda þótt ríkisstjórnin hafi
fyrst nú nýlega tilkynnt samþykkt Alþingis um
brottFór hersins hefur Bandaríkjastjórn reynt að hjálpa
Sjálfstæðisflokknum í kosningunum með því að tilkynna
að þegar verði hætt öllum framkvæmdum á Keflavikur-
flugvelli, jafnvel viðhaldi vallarins!
Alvaran á bak við brottfarartal hersins sést bezt á því
að á s.l. 10 dögum til hálfum mánuði hafa 5 birgðaskip
um 10 þús. lestir hvert ltomið til hersins og hafa þau
m.a. flutt byggingarefni!
Franskir kommúnistar
átelja sovétleiðtoga
Stjórn Kommúnistaflokks Frakklands hefur átalið aö-
farir forustu Kommúnistaflokks Sovétríkjanna við endur-
matiö á Stalín.
1 samþykkt flokksstjórnar-
innar, sem birt var í gær, er vítt
meðferðin á ræðu Krústjoffs á
lokuðum fundi 20. flokksþings-
ins í vetur. Sé það óviðunandi
að Kommúnistaflokki Frakk-
lands skuli fyrst berast
vitneskja um ræðuna í borgara-
blöðum.
Þá lýsir franska flokks-
stjórnin yfir, að hún telji af-
stöðu forustumanna Kommún-
istaflokks Sovétríkjanna í end-
urmatinu á Stalín einhliða og
neikvæða. Það nær engri átt að
kenna Stalín einum um allt sem
miður hefur farið í Sovétríkjun-
um, segir i yfirlýsingu stjórnar
Kommúnistaflokks Frakklands.
Greinargerð sovétleiðfoga um persónu
ófullnægjandi, segir Togliatfi
Foringi italskra kommúnista telur að or-
sakanna sé að leita i st]ornarkerfinu
Á sunnudag birtist í UNITA, málgagni Kommún-
istaflokks ftalíu, viðtal viö Palmiro Togliatti, foringja
flokksins, um endurmatið á Stalín í Sovétríkjunum.
Togliatti segir, að það sé
góðra gjalda vert að forustu-
menn Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna skuli gagnrýna það
sem miður hefur farið á liðnum
árum og lýsa yfir, að slíkt verði
ekki látið koma fyrir aftur.
Ekki hægt að
skella allri skuldinni
á Stalín
Hinsvegar telur Togliatti að
greinargerð sovétleiðtoganna sé
einhliða og ófullnægjandi. Stalín
sé fundið flest til foráttu en
gengið framhjá þeim þáttum í
starfi hans sem voru þess vald-
andi að hann naut stuðnings og
trausts íorustumanna flokksins
og fjöldans.
Enn hefur forusta Kommún-
istaflokks Sovétrikjanna ekki
gert fullnægjandi grein íyrir
því, hvernig þau alvarlegu frá-
vik frá lýðræði sem skýrt hefur
verið frá gátu átt sér stað, segir
Togliatti. Það er ekki hægt að
skella allri skuld á Stalín. Or-
sakanna hlýtur að vera að leita
í alvarlegum ágöllum á stjórnar-
kerfi Sovétrikjanna. Af því leið-
ir að ekki er lengur hægt að
líta á þau sem sjálfsagða fyrir-
mynd sósíalistiskra ríkja, segir
Togliatti.
Ilann segir einnig, að til séu
lönd þar sem hægt sé að koma
á sósíalisma án þess að úrslita-
völd þurfi nauðsynlega að vera
í höndum kommúnistiskra
flokka.
Blöð með nákvæmum frásögn-
um af ummælum Togliattis
hafa elíki 'enn borizt hingað til
lands, það sem hér hefur verið
tilfært er tekið eftir lauslegum
útvarpsfregnum.
Vekur mikla athygli
Gagnrýni Togliattis á vinnu-
brögðum Kommúnistaflokks Sov-
étrikjanna var eitt helzta um-
ræðuefni blaða víða urn heim á
mánud. Daily Worker, málgagn
Kommúnistaflokks Bretlands,
segir að hann hafi hitt naglann
á höfuðið með því að benda á
að eitthvað hljóti að vera bogið
við stjórnarkerfið þar sem eins
mikið fari aflaga og verið hafi
í Sovétríkjunum á stjórnarárum
Stalíns.
Mótmælir dauðadómum
Á sunnudag birtist í Daily
Worker, málgagni Kommúnista-
flokks Bandarikjanna, grein eft-
ir rithöfundinn Howard Fast.
Hann kveðst hafa beðið eftir því
síðan skýrt var frá því að
dómsmorð hefðu átt sér stað
í Sovétríkjunum að stjórnend-
ur þar tilkynntu að aftökur
hefðu verið lagðar niður fyrir
fullt og allt. Nú hafi enn borizt
fregn um þrjár aftökur, við
hana hafi sér runnið kalt vatn
milli skinns og hörunds. Hér
eftir mun ég líta á það sem
gerist í Sovétríkjunum af meiri
gagnrýni en áður, segir Fast.