Nýi tíminn - 04.09.1958, Qupperneq 4
4) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagnr 4 september 1958
flllir viðurkenna nema Bretar
•* . •> '■*
„VerncL smáþjóðanna“ undir brezkum fána: „réttur“ hins sterka til að rœna hinn
máttarminni í skjóli hervalds. — (Ljósmst. Sig. Guðm.)
Bretar ráðast inn í íslenzka
landhelgi og ræna með valdi
Framhald af 1. síðu.
Shilja fféttirnar nú betur
Við Islendingar höfum á
undanförnum árum heyrt
fregnir brezka útvarpsins af
því þegar þeir hafa skýrt frá
aðgerðum á num til að halda
uppi lögum og rétti og „vernda
smáþjóðir" í ýmsum hlutum
heims.
t gær skýrði brezka útvarpið
frá slíkum aðgerðum á íslands-
miðum. Það lýsti því hvernig
breZkir togarar hefðu í glaða-
tunglskini gert innrás í land-
helgi íslands undir vernd og
samkvæmf fyrirskipun brezks
herskips. Var síðan aðgerðum
lýst nánar, sagt að veiðisvæðin
væru 8 mílna breið og 30 rmína
löng og loks sagt að „aðgerð-
irnar hefðu byrjað mjög vel,
togaraskipstjórarnir hlýtt öll-
um fyrirskipuniim (um ránið)]
íslendingar munu eftirleiðis
skilja betur þegar brezka út-
varpið skýrir frá „velheppn-
uðum aðgerðum" Breta til að
halda uppi rétti meðal annarra
þjóða.
Kæiar sigurminningar.
Tveir brezkir ránstogarar
fóru að Horni, en aðalræn-
ingjaflotanum, 9 togurum und-
ir vernd brezks herskips, var
stefnt tii Dýrafjarðar. Er auð-
sætt að hið „brezka ljón“ hef-
ur valið stað þenna af sinni al-
kunnu smekkvisi, því
þarna eiga Bretar kærar
sigurminningar; fyrir 50 ár-
um sökktu þeir þar íslenzk-
um bát og tókst að drepa
þrjá Islendinga sem voru
þar að lö.ggæzlustörfum.
Bi:ezkar íallbyssur
mannaðar.
Þegar Í3lenzku varðskipin
hófu i gærmorgun aðgerðir
gegn hinum brezku ræningjum
við Dvrafjörð beitti brezka
freigátan Palliser þegar valdi
tij að hindra að varðskipið
■kæmist að sökudólgnum. Kom
hún á mikilli ferð með mannað-
ar fallbyssur r«cr sigldi á milli
varðskipsins og landhelgis-
brjótsins, þannig að varðskip-
ið komst ekki að togaranum.
Betur gátu Bretar vart
lýst löngun sinni til að end-
urtaka manndrápin frá því
fyrir hálfri öld. Enn þyrstir
hið ellihruma „brezka ljón“
í jslenzkt blóð.
íslendingar vakna.
Þeir Islendingar sem fram
að þessu hafa ekki viljað trúa
að brezk vinátta þýddi
kröfu Breta um að ræna hinn
máttarminni vöknuðu í gær —
og margir allhastarlega.
Fréttamenn Þjóðviljans
skruppu með flugvél Flugfé-
lags Islands síðdegis í gær til
að sjá hina brezku „vernd
smáþjóðanna" í verki úti fyrir
Vestfjörðum. Og þeir voru
ekki einir á ferð: flugvélin var
fullskipuð mönnum er fóru
sömu erinda. Þar voru ungir
menn og aldraðir. Elztur mun
hafa verið Skagfirðingur einn,
64ra ára gamall.
„Róstugt vai í Riíi".
Það er flogið móti sól, yfir
þveran Faxaflóa og Snæfells-
nes. Úti á nesinu blasir Rif við
síðdegissólinni. Það var þar
sem brezkir ofbeldismenn
drápu Björn ríka fyrr á öld-
um. -— Brezkir ræingjar ern
ekki að koma fyrst við sögu á
fslandi i dag. En þegar Björn
var fallinn sagði Ólöf Lofts-
dóttir kona hans: „Eigi skai
gráta Björn bónda, heldur
safna liði“. Það heit kvað hún
hafa efnt með því að setja
hóp brezkra manna í fanga-
vinnu vestur á Skarði.
Hin brezka öxi og Snæ-
björn í Hergilsey.
Rif á Snæfellsnesi er ekki
langt að baki þegar niðri blasa
Bjarneyjar. í október árið 1910
fór sýslumaðurinn, Guðmundur
Björnsson, þar til fundar við
brezkan landhelgisbrjót. Þegar
hann réðist til uppgöngu á tog-
arann ætlaði hinn brezki ræn-
ingi að hindra það en sýslu-
maður og Snæbjörn í Hergils-
ey komust þó um borð. Sneri
þá brezki skipstjórinn móti
sýslumanni og reiddi öxi til
höggs, en Snæbjörn þreif járn-
flein og lét Bretinn þá öxina
síga. En hann neytti liðsmun-
arins til þess að ræna íslenzk-
um löggæzlumönnum og sigla
með þá til Englands.
Manndráp á Býraíirði.
Það er flogið norður yfir
ströndina og út Patreksfjörð,
vestur undir Dýrafjörð. Það
var árið 1899 að Hannes Haf-
stein var sýslumaður þar
vestra. Þá áttu Islendingar
engin varðskip, en sýslumaður
fór út í brezkan landhelgis-
brjót á róðrarbát. Bretarnir
meinuðu þeim uppgöngu — og
sökktu bátnum. Horfðu þeir á
þrjá íslendinga farast og drógu
hina ekki upp í togarann fyrr
en aðrir íslenzkir bátar *rá
landi voru að koma á vett-
vang. — Það er auðvitað til
að lialda þetta sigurafmæli há-
tíðlegt að Bretar stefndu ráns-
flota síniun til Dýrafjarðar í
fyrrinótt.
1. september 1958.
Þannig mætti lengi telja, þV.
segja má að strönd íslands sé
vörðuð minningum um brezkt
ofbeldi, brezk rán. En nú erum
við komin á ákvörðunarstað.
Hinn 1. sept. — í dag —
gerðu Bretar innrás í land-
helgi íslands: sendu herskip
sín gegn einni minnstu þjóð
veraldar; þjóð án hers. Er
þetta góður vottur hins
brezka hugreltkis.
„Vernd smáþjóða": Rán í
skjóli íallbyssukjafia.
Þarna voru þeir. Um 11 míl-
ur úti af Kópsnesi, milli
Tálknafjarðar og Arnarfjarðar,
gat að lita 9 brezka togara að
veiðum og verndáði brezkt her-
skip ránið með gapandi fall-
byssukjöftum.
Við erum ekki á öld Björns
ríka, heldur ekki á öldinni sem
leið, — þetta er að gerast í
dag: 1. september 1958.
„Engiand vænfir
þess ..."
Samkvæmt upplýsingum frá
landhelgisgæzlunni í gærkvöldi
kvað einn skipstjóranna í
brezka ræningjaflotanum hafa
beðizt leyfis um að leita hafn-
ar á íslándi. Honum var bann-
að það.
Annar skipstjóri í ræningja-
hópnum baðst leyfis að fara
út fyrir landhelgislínuna — í
von um að fiska eitthvað! —
Framhald á 2. síðu.
Framhald af 1. síðu.
Belgisk skip og þýzk, sem voru
að veiðum ínnan 12 mihia
markanna á sunnudag, færðu sig
út fyrir 12 nulna línuna áður
en reglugerðin tók gildi. Á
tveimur stöðum við landið hafa
brezkir togarar undir stjórn
brezkra herskipa gert tilraunir
til að veiða innan liinnar nýju
fiskveiðilandlielgi. Þar er um
að ræða 11 skip, 9 á öðrinn
staðnum og 2 á hinum.
Alls staðar annarss'‘.Hðar við
landið hefur fiskveiðilandhelg-
in verið laus við ágang brezkra
skipa af ótta við Iandhelgis-
gæzluna.
Það er því augljóst að strax á
fyrsta degi hefur mikilvægum
árangri verið náð, þar sem skip
allra þjóða. sem fiskveiðar
stunda við ísland, nema Breta,
viðurkenna í framkvæmd fisk-
veiðilandhelgi íslands. Tilraunir
Breta til veiða undir stjóm her-
skipa eru fyrirfram dæmdar til
að nústakast, þar sem slíkar
veiðar er ekki Irægt að s.únda
með neinum árangri.
Þá er einnig vitað um ýmsa
brezka togara, seni hafa haldið
sig fyrh' utan 12 milna mörkin
og vilja ekki veiða innan fisk-
veiðilandhelginnar.
Þeir brezkir togarar, sem veitt
hafa innan fiskveiðilandlielgiim-
ar vevða allir teknir á sínum
tíma og sektaðir. Nöfn þeírra og
númer hafa þegar verið tekin
upp, og fullnægjandi saimanir
liggja fyrir um sekt þeirra.
Tólf mílna fiskvedðilandhelgin
er því þegar orðin staðreynd
sem ekki verður kvikað frá“.
Þegar á undanhaldi
Landhelgisbrot Breta eru í
senn níðingsleg og heimskuieg.
og undanhald ofbeldismannanna
birtist greinilega í gær. Upphaf-
lega hafði verið sagt að 200
brezkir togarar myndu koma á
íslandsmið til landhelgisbrota,
síðan urðu þeir 100, því næst
50 og þegar á átti að herða voru
þeir komnir ofan í 11 — en
eitt manndrápaskip brezka flot-
ans beið togaralaust fyrir aust-
urströndinni! Það kom sem sé
í ljós að veiðar undir herskipa-
vernd, eru óíramkvæmanlegar.
Þegar í fyrrakvöld átti einn af
brezku blaðamönnunum hér tal
við togarann Northern Sky og
spurði hvort hann myndi ekki
koma inn fyrir 12 mílurnar,
samkvæmt fyrirmælum brezku
stjórnarinnar. Skipstjórinn
kvaðs ekkj myndu brjóta land-
helgina; það væri of núkil á-
hætta. í gær bað einnig einn af
togurunum 11 urn leyfi herskips
til að fara út fyrir 12 mílurnar,
til þess að geta veitt fisk á eðli-
legan háit! Fékk hann það leyfi
eftir mikla eftirgangsmuni og
með því skilyrði að hann kæmi
inn fyrir landhelgina áður en
myrkur skylli á!
Mannslíf fyrir brezka
heimsveldið?
Þá bað einn af brezku togur-
unum um leyfi herskips til þess
að mega fara til hafnar. Mun
ástæðan hafa verið sú að alvar-
lega veikur sjómaður var um
borð. Neitaðj yfirmaður herskips-
ins um þá beiðni; sektin var
mikilvægari en sjómaðurinn.
Vonlaus barátta
Brezku togaraskipstjórarnir
vita fullvel að barátta þeirra e:r
vonlaus. Þeir munu allir fá
dóm og þeim dómi verður full-
nægt þegar er til þeirra næst.
Og öll skip sem veiðar stunda &
íslandsmiðum verða fljótlega aií
hafa samband við land, bæði af
völdum illviðra, bilunar, sjúk-
leika og af öðriim ástiæðum. Og
þá verða þjófarnir teknir. Þeir
vita einnig fullvel að þeir geta
ekki farið einir til Bretlands
með afla sinn — þá verða þeir
einnig teknir — allir ve/iiþjóf-
arnir verða að sigla saman ti:I
Bretlands undir herskipavernd.
Og veiðitíminn hér verður
skammur, því herskipin hér
þurfa fljótt að fá nýjar olíu-
birgðir, og þær birgðir verða
ekki afhentar hér. Öll bernaðar-
áætlun Breta er óframkvæman-
leg, vonlaus; og það munu ekki
líða margir dagar þar til þeir
sjá sér þann kost vænstan að
gefast upp, skilyrðislaust.
Mikill sigurdagur
Dagurinn í gær var mikill sig-
urdagur fyrir íslendinga. Marg-
ir munu hafa óttast að erlendar
þjóðir myndu sýna aðgerðum
okkar alvarlega andstöðu; en £
gær kom í ljós að allar þjóðir
viðurkenna aðgerðir okkar, sum-
ar formlega, aðrar í verki —
nema Bretar. Það kom einnig
í ljós — sem ýmsum mun hafa
komið meira á óvart — að yfir-
gnæfandi meirihluti brezka tog-
araflotans viðurkennir einnig að-
gerðir okkar í verki. Æsinga-
mennirnir í samtökum brezkra
togaraeigenda hafa auðsjáanlega
ekki einu sinni stuðning starfs-
bræðra sinna — en þeir hafa
fengið því áorkað að bæta enn.
einum smánarbletti á hinn flekk-
aða fána brezka heimsveldisins.
Bað ni vernd
íslenzku
lögregluimar
Á sama tíiua og brezki flot-
inn gerði árás sína á ís-
lenzka löggæzlumenn um
borð j Ægi á mánudagsm.
sueri brezka sendiráðið í
Rcykjavík sér til lögreglu-
s/ijórans og bað um vernd
islenzkra löggæzlumanna
í Reykjavík. Var þeirri
beiðni að sjálfsögðu vel
tekið, og í gær stóðu Iög-
reglumenn, óednkennis-
klæddir og einkennis-
klæddir, vörð við aðsetur
Breta við Laufásveg og í
Þórshamri, en Erlingur
Pálsson yfirlögregluþjónn
kannaði liðið við og við
í fullum skrúða. Er þess að
væiií'a að brezka sendi-
herranum, mr. Gilehrist,
liafi liðið vel í skjólj ís-
lenzku löggæzlumannanna
á sama tíma og starfsbræð-
ur þeirra stóðu andspæn-
is fallbyssukjöftum brezkra
herskipa.