Nýi tíminn - 04.09.1958, Síða 12
■ -4t-
Ág®
w,
Upp kemsð um stórfellt simifgl á
áfengi með m.s. Tungufessi
Margir menn viSriSnir máliS og rannsókn
jfcess enn skammt á veg komin
29. ágúst.
Við sakadómavaembættið í Reykjavík er nú unnið að
rannsókn eins mesta áfengissmyglmáls, sem uppvíst hef-
ur orðið hér á landi. Stóðu lögregluþjónar nokkra menn
að verki í fyrrakvöld, er þeir voru að flytja spíritus á
bifreiðum frá Kópavogi til Reýkjavíkur, en áfengi þessu
var smyglað hingað til landsins með ms. Tungufossi í
siðustu ferð skipsins.
Smyg’.mál þetta er mjög um- athygli bíl á
fangsmikið, margir menn við arins. Fannst
það rið"ir, og var því rannsókn
þess skammt á veg komin síð-
degis í "ser, er Guðmundur Ingvi
Sigurðsson, fulltrúi sakadómara
í Reykjavík, hóf réttarrannsókn.
Sú atvikalýsing, sem hér fer á
eftir, er byggð á upplýsingum
rannsóknarlögreg’unnar,
I
Þóttu ferðir bílsins
gTunsamlegar
í fyrradag veittu iögreglumenn,
sem voru á eftirlitsferð í einni
af bifreiðum iögreglunnar í
Reykjavík á Reykjanesbraut,
Öll þjáÓin
fagnaSi
leið til bæj-
lögreglumönnun-
um ferð bílsins grunsamleg og
veittu honum því eftirför. Bif-
reið þessari, sem er gömul her-
bifreið, var fyrst ekið niður i
miðbæ og um Þingholtin en
síðan austur á bóginn og loks
staðnæmzt við Veitingahúsið
Silfurtunglið við Snorrabraut.
Við athugun fundu lögregluþjón-
arnir mikiar spíritusbirgðir í
bílnum og kvað einn mannanna,
sem í bílnum voru, þær vera
í sinni umsjá. Maður þessi
kvaðst vera skinverji á m.s.
Tungufossi og hafa sótt áfeng-
ið í tilgreindan skúr við Álf-
hólsveg.
Margir koma við sögu.
Lögreglumenn voru þegar
sendir að umræddum skúr í
Kópavogi og komu þá að nokkr-
um mönnum, sem voru að hlaða
spíritusbrúsum á annan bíl.
Menn þessir voru einnig skip-
verjar á Tungufossi.
Menn þeir allir, sem að áfeng-
isflutningum þessum stóðu, voru
nú teknir til yfirheyrslu og vann
rannsóknarlögreglan að frum-
rannsókn málsins langt fram á
nótt og í gærmorgun hófst rann-
sókn að nýju. Spíritusmn tók
lögreglan að sjálfsögðu í vörzlu
sína og er það mikið magn.
Sl. mánudagur verður merkis-
da,gur í sögu okkar Islendinga.
Um gjörvallt land fagnaði al-
þýða manna til sjávar og
sveita tólf mílna fiskveiðilög-
sögimni. Fáni blakti á hverju
skipi, í hverju sjávarþorpi
voru fánar dregnir að hún, í
höfuðborginni var víðast hvar
flaggað. Ríkisstjórninni barst
f jöldi árnaðaróska og mörg fé-
lög gerðu samþykktir l»ess efn-
Is, að Islendingar standi fast á
rétti sínum í þessu mali. —
1‘jóðviljinn óskar öllum lands-
mönnum til hamingju með sig-
nrinn og hina órjúfándi sam-
stöðu.
Bæjarráð Hása-
víkyr fagnar
landbelginni
Húsaví'k. Frá fréttarit-
ara Þjóðviljans.
Á fundi sínum í gær sam-
þykkti bæjarráð Húsavíkur
einróma eftirfarandi álykt-
un:
„Bæjarráð Húsavkur-
kaupstaðar fagnar útfærslu
fiskveiðilandhelginnar í 12
mílur, þakkar ríldsstjórn-
inni einbeitta framgöngu og
öðrum þeim sem mest hafa
að unnið. Telur bæjarráð
liina einstæðu framkomu
Breta meðal fiskveiðiþjóð-
anna dæma sig sjálfa.“
Miklir hitar í
Grikklandi
Geysilegir hitar eru nú í
Grikklandi, þeir mestu sera þar
hafa komið í nær heila öld. í
gær mældist þar 45 stiga hiti á
einum stað.
Greiðið
tímann
Sniyglvai’ningurinn
sótiur á haf út
Við yfirheyrslur upplýstist,' áð
áfenginu hefur verið smýg'lað
hingað til lands í síðustu ferð
Tungufoss. Munu skipverjar
þeir, sem áttu þátt í smyglinu.
hafa varpað áfangisbrúsunum
fyrir borð áður en siglt var
fyrir Reykjanes, en vélbátur ti'
þess ráðinn hirt síðan upp og
komið til lands. Var smyglfarmi
þessum skipað upp í Kársnesi í
Kópavogi og komið fyrir til
bráðabirgðageymslu í fyrrnefnd-
um skúr við Álfhólsveg. Upp um
smygl þetta komst svo, er lög-
reglumennirnir urðu varir -við
flutning á áfenginu til Reykja-
víkur í fyrrakvöld, sem fyrr-
greinir.
Fimmtudagur 4. september 1958 — 12. árga.igur 28. tölublað.
P
Sjóienií m aðrir landsinenn að-
“ 1:
Einróma samþykkt hreppsneínaar Miðnes-
hrepps um stuðning við stækkun landhelginnar
Á fundi í hreppsnefnd Miðnesshrepps sl. laug-
ardag var eftirfarandi ályktun samþykkt í einu
hljóði af fulltrúum allrá ílokka, sem þar eiga sæti:
„Hreppsnefnd Miðnesshrepps skorar á ríkis-
stjórn íslands að hvika hvergi frá útfœrslu fisk-
veiðalögsögu. í 12 sjómílur. Jafnframt heitir
hreppsnefndin á alla sjómenn og aðra landsmenn,
sem kunna að fá tækifœri til að aðstoða land-
helgisgœzluna í starfi sínu, að gera það í hið
ýtrasta“.
-v
2. september.
Brezkt herskip gerði í gær til-
raiin til að sigla Ægi niður
Brezka stjórnin virSist reiÓubúin fil að
vernda veiðiþjófa sina meÓ manndrápum
í gærmorgun þegar varðskipið Ægir bjó sig til þess
að taka brezkan togara sem stundaði veiðiþjófnað út af
Vestfjörðum, kom freigátan Pallister, 1.100 tonna her-
skip, með skotbúnar, mannaðar fallbyssur og stefndi
beint á Ægi, svo að hann varð aö sveigja undan til þess
að forða árekstri. Ætlun brezka herskipsins var auð-
sjáanlega sú að sigla íslenzku löggœzlumennina niður;
brezka stjórnin er þannig auðsjáanlega reiðubúin til þess
að vernda veiðiþjófa sína með manndrápum.
Framferði brezku herskip-þjóð heims. Hér er ekki um
anna á íslandsmiðum í gærneinn venjulegan veiðiþjófnað
jafngildir vopnaori árás á ís-að ræða, heldur skipulagða
lenzku þjóðina, árás illræmd-ránsherferð, framkvæmda
asta herveldis heims á minnstu samkvæmt fyrirmælum brezku
Fá ár líða svo, að íslenzkar björgunarsveitir séu ekki
kvaddar til bjargar brezkum sjómönnum, sem brotið
hafa skip sín eða lent í öðrum sjávarliáska við íslands-
str&ndur, og vœri hægt að greina frá mörgum stór-
kostlegum björgunarafrekum íslendinga sem lagt hafa
sig í bráða lífshœttu við að bjarga brezkum togara-
mönnum. Og þó að Bretar beiti íslendinga hinu sví-
vir&ilegasta ofbeldi í dag, stundi veiðirán í islenzkri
landhelgi og hertaki íslenzka löggœzlumenn að skyldu-
störfum, munu þeir brezicu sjérínenn, sem' lenda kunna
i lífsháska hér við land hljóta samskonar viðtókur og
aðhlynningu og t. d. peir landar þeirra, er bjargað var
fyrir nokkrum árum úr togaranum St. Crispin, sem
--'..-u.-3 f myndin er af.
stjórnarinnar, óþokkabragð
sem aðeins á sér hliðstæður í
fyrri annálum brezku nýlendu-
kúgaranna.
Islendingar hafa áður haft
reynslu af ofbeldisverkum
Breta, herveldið hefur áður
myrt íslendinga sem reyndu
að gæta íslenzkrar landhelgi;
og þess er skemmst að minn-
ast að 1952, þegar landhelgin
var stækkuð í 4 mílur, gerðu
iBretar tilraun til að svelta Is-
lendinga til hlýðni með lönd-
unarbanninu. Nú vita Bretar
að Islendingar verða ekki svelt-
ir; því er nú opinskátt siglt
hingað með herskip.
Enginn íslendingur efast
um að Bretar biða einnig ó-
sigur í þessum þætti dauða-
stríðs síns, En Islendingar
munu í leiðinni þakka Bretum
drengskapinn og manndóminn.
Eftir að fréttirnar bárust um
ofbelclisverk Breta í gær voru
það hvarvetna viðbrögð manna
að íslendingar ættu án tafar
að slíta stjórnmálasambandi
við árásarríkið og kæra of-
beldisverkin fyrir Sameinuðu
þjóðunum.
Þungaðuraf
smyglvíni
Lögregluþjónar í Bombay á
Indlandi fylltust grunsemdum
um daginn, þegar allir farþegar
í langt að komnum langferðabíl
reyndust framsettar konúr. Við
rannsókn kom í Ijós að innan
klæða báru þær gúmmíblöðrur
fullar af áfengi-
í Bombay eins og víðar í Ind-
landi er áfengisbann og lögreglan
á sífellt í höggi við smyglara og
heimabrugggra. Algengt er að
mjólkurbrúsar reynast tvíbytpur,
mjólk í efra hólfinu en áfengi í
því neðra. Einnig er áfengi
smyglað í holum bókum, þíþum
innan í reiðhjólagrindum og und-
ir sorpihu í ílátum götuaóþarg.