Nýi tíminn


Nýi tíminn - 13.11.1958, Page 4

Nýi tíminn - 13.11.1958, Page 4
4) — NÝI TÍMESíN — Fimrntudagur 13. nóvember 1958 —- v' Ságurði,iBjiarjiasyai Iileypt,af stokkunum. Hann mun verða atlientur 12. þ.m. o,g eigandi er Leó Sigurðsson útgerðarmaður á Akureyri. ... Tólf nýfiskisklp sem verða mikilvœg viSbót viS skipastól landsmanna Einn af litlu togurunum skírður. Viðstaddir eru auk fulltrúa skipasmíðastöðvarinnar íslenzku eftirlitsmeimirnir Kári Krist- jánsson og Jóhann Þorláksson. Kona Kára braut kampavíns- ilöskú á stefni skipsins og gaf því hcitið Sigurður Bjarnason. 10. nóv. s.l. afhenti austurþýzka skipasmíðastöðin^ Volkswerft Stralsund hinn fyrsta þeirra tólf togara, sem) þar er veriö aö smíða handa íslendingum, og mun hann væntanlegur hingaö til lands um það bil viku síðar. Var Hjálmar Bárðarson, skipaskoðunarstjóri ríkisins, við- staddur til þess að veita togaranum viðtöku fyrir hönd íslenzka ríkisins. Breiðfírðingafélagið senn tuttugu ára Tímarit íélagsins, Breiðfirðingur, heíur nú komiS út óslitið í seytján ár Næsti togari var svo af- hentur tveimur dögum síðar, og síðan verða þeir afhentir einn af öðrum, og munu allir verða komnir hingað til lands um mitt næsta ár. Verður þar um mjög mikiivæga aukningu á fiski- skipas'tól okkar að ræða. 250 rúmlestir Þessir togarar eru talsvert mjnni en nýsköpunartogararnir og fyrst o« fremst ætlaðir smærri útgerðarstöðum, þar sem ekki er aðstaða til að gera út stóra tog- ara. Stærð þeirra er rúmlega 250 rúmlestir; þeir eru 38,65 metrar á lengd, 7,30 metrar á breidd og 3,60 metrar á hæð. Mikið véiaafl verður í skipun- um, og er aðalvélin 800 hestöfl. Vélbúnaður fyrir togveiðarnar er af fullkomnustu gerð og má því reikna með að þessi skip verði mjög hagkvæm fyrir veiðar í ís fyrir frystihúsin. Einnig ættu þessi skip að verða mjög hentug til síldveiða. 12 skip Fiskiskip þessi eru 12 talsins, og munu eins og áður er sagt einkum verða gerðir út á ýmsum smærri útgerðarstöðum úti um land. Eitt skip fer á hvern eftir- talinna staða: Bíldudal, Þingeyri, Bolungavík, Hólinavík, Siglufjörð, Dalvík, Hrísey og Akureyri, Neskaupstað, Eskifjörð, Reyðarfjörð. Loks fara tvö skipanna til bæjanna á Norðuausturlandi, þ. e. Raufarhafnar, Þórshafnar og Vopnafjarðar. íslenzkir eftirlitsmenn Skipin eru byggð samkvæmt teikningu Hjálmars Bárðarsonar skipaskoðunarstjóra og hefur hann jafnframt ákveðið staðsetn- ingu tækja og allt fyrirkomulag. Tveir íslendingar hafa dvalizt í Stralsund til eftirlits, þeir Kári Kristjánsson og Jóhann Þorláks- son. Breiðfirðirigafélagið heldur 20 ára afmælishátíð sína 22. þ.m. í hinu nýja félagsheimili, „Herðubreið“. Breið- firöingafélagið'er eitt fjölmennasta og elzta átthagafélag landsins, en nokkrir ágætir 17. nóv. 1938. Sr. Áreiíus Níelsson formað- ur félagsins setur afmælishátíð- ina, Sigurður Hólmsteinn Jóns- son forstjóri flytur ræðu um sögu félagsins, minni Breiða- fjarðar flytur Friðjón Þórðarson alþingismaður og mnni kvenna Stefán Jónsson námsstjóri. Félag- ar verða heiðraðir o.fl. Calypso- söngparið Nína og Friðrik Yfirlitsmynd sem sýnir liluta af sldpasmíðastöðinni Volks- werft Stralsund. Þetta er í rauninni skipabyggingar- verksmiðja, þ.e.a.s. hún er rniðuð við fjöldaframleiðslu en ekki sérbyggingu og tek- ur ekki að sér að smíða færri en fimm skip af söinu gerð. Starfsmenn munu nú vera 5—6000 talsins. Breiðfiröingar stofnuðu það skemmta, fjöldasöngur verður milli atriða og að lokum dans- að. Breiðfirðingafélagið hefur starf- að að ýmis konar menningarmál- um og leitazt við að treysta tengslin milli þeirra sem heima eru og heiman eru fluttjr. Þetta hefur verið gert með fundum og skemmtisamkomum hér í borginni, og ferðalögum ,il heimastöðvanna við Breiðafjörð. Hafa þá gjarnan verið gefnar gjafir til átaks og eflingar menn- ingarmálum heima, skemmtisam- komur og söngskemmtanir haidn- ar. Tveir vinsælir sönghópar hafa starfað á vegum Breiðfirð- ingafélagsins undir stjórn hins snjalla söngstjóra Gunnars Sig- urgeirssonar: Breiðfirðingakór- inn og Leikbræður. Félagið hefur einnig gefið út tímaritið Breiðfirðing, sem flyt- ur margs konar fróðleik og minn- ingargreinar um merka Breið- firðinga. Einnig starfrækir félagið og stofnað Minningarsjóð Breið- firðinga og hefur einnig stofn- að við nýju Móðurkirkju Matth- íasar Jochumssonar á Reykhól- um, Minningarsjóð breiðfirzkra mæðra. Eitt af aðaláhugamálum félags- ins nú er Byggðasaga Breiða- fjarðar, en ekki er enn fullráðið, hvernig því starfi verður hag- að, ennfremur er mikill áhugi fyrir byggðasafni við Breiðafjörð og kvikmjmdatöku þar vestra. Árlega hefur félagið skemmti- samkomur fyrir aldraða Breið- firðinga og jólatréssamkomur fyrir börn. Félagið er nú aðaleigandi Breiðfirðingabúðar i Reykjavík og hefur það verið mikið fjár- hagslegt átak, sem tryggir var- anlegt húsnæði, en húsnæðismál- in eru eitt helzta vandamál átt- hagafélaganna í Reykjavík. Má því segja að hagur og störf þessa félags sé með all- miklum blóma við tvíugsaldur- inn. Eru Breiðfirðingar og venzla- fólk þeirra hvattir til að 'áta sem fyrst vita um þátttöku sína í væntanlegum hátíðahöldum 22. nóv. n.k., en það er mkils virði til að auðvelda störf undirbúnings- nefndarinnar. Sömuleiðis er ungt fólk að vestan hvatt til að ganga í fér lagið, en ungt fólk sækir nú spilakvöld og skemmtifundi fé- lagsins í Breiðfirðingabúð betuí Framhald á 9 . síáu.

x

Nýi tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.