Nýi tíminn


Nýi tíminn - 18.06.1959, Side 9

Nýi tíminn - 18.06.1959, Side 9
41 — 'ÓSKASTUNDIN PÓSTH HUNDURINN GÓÐI Duglegur strákur, sem skrifar vel eftir aldri sendi okkur sögu, þessi orð fylgdu: Kæra Óskastund. Eg þakka þér fyrir allar sögurnar og skrítlu.Hnar þinar, mér finnast þær svo skemmtilegar. Svo sendi ég þér sögu, sem ég gerði sjálfur. Eg er 8 ára gamall. Vertu bíéssuð og sæl. Guðmundur Þór Brynjólfsson, Brúarlandi, Mosfellssveit. Þegar ég fór á fætur í gær fór ég strax út og fór að leika mér við ókunnugan hund. Eg var ekkert hræddur við hann. En þá kom rolla til mín. Eg skipti mér ekkert af henni. En þá kom ’lítið lamb. Þá sleppti ég hundinum og fór að leika mér við lambið. Og það var gott við mig, Þa<i; ya^ mark- að og ég las markið. Það var sílt og gagnbit- að hægra, sílt og fjöð- ur framan vinstra. Eg hélt áfram að leika mér við lambið fram að mat. Og lambið elti mig inn. Svo fór ég að borða og ég gaf lambinu mat. Þá kom maður inn og sagðist eiga lambið. Og hann tók það með sér. Nú hafði ég engan til að leika mér við nema ÓLFIÐ hundinn, svo ég fór að leika mér við hann. Ilundurinn var með ól og á ólinni stóð Lappi. Eg sá að hundurinn hét Lappi og ég fór að leika mér við Lappa. Þarna sá ég tvo stráka. Strákarnir komu til mín. Eg spurði þá hvað þeir væru gamlir. Þeir voru f> og 10 ára. Eg spurði þá hvaðan Lappi væri. „Hvaða Lappi“, sögðu þeir. „Hundurinn heitir Lappi,“ sagði ég. „Hann er frá næsta bæ“, sögðu þeir. „Og þú mátt hafa Lappa að láni.“ Og alla daga lék ég mér við Lappa karlinn. GIMBRIN BJÖRG Ólöf Jónsdóttir 10 ára gömul, Borgarholti í Biskupstungum skrifaði okkur og segir svo fal- lega frá litlu gimbrinni sinni. — Hér er bréfið: Kæra Óskastund! Eg þakka þér fyrir all- ar þær ánægjustundir sem þú hefur veitt mér með sögum, skrítlum, gátum og fleiru. Eg sendi þér hér sögu af lambi. I dag v'ar ein óborin ær svo veik að það varð að aflífa hana, en þegar átti að grafa hana, spriklaði lambið svo mikið að pabbi risti á kviðinn á ánni. Þá kom hvít gimbur í ljós og var mér gefin hún. Eg hef verið í allan dag að reyna að halda lífinu í gimbrinni. Eg setti hana við miðstöð- ina og gaf henni volga mjólk á pela. Hún erfar- in að labba um allt og ég varð syo glöð, að ég fór að skrifa um hana. Ærin átti ekki að bera fyrr en eftir átta daga. Eg skírði litlu gimbr- ina mína „Björgu“. Og ég vona að hún dafni vel hjá mér þó hún sé móð- urlaus. sænsku blaði). Hamingjufuglinn Þjóðsaga frá Tíbet hann sá stórt fjall í fjarska. Snjórinn í hlíðum þess skein eins og silfur. Allt í einu birtist honum hræði- leg ófreskja með mikið svart skegg. Með rámri röddu eins og kráka spurði ihún: „Hver er svo djarfur að koma hingað? Hvað vilt þú?“ „Eg heiti Wangji. Eg er að leita að ham- ingjufuglinum..“ „Ha-a-a!“ Ófreskjan hló. „Barn ekki stærra en egg vogar að koma hingað! Ef þú vilt finna hamingjufuglinn verður þú fyrst að drepa móður Lobsang. | Ef þú gerir það ekki mun ég finna þig í fjöru.“ „Eg elska móður mina,“ sagði Wangji, f og ég mun aldrei drepa móður nokkurs manns, hvað sem þú gerir mér.“ Líf annars eins smælingja er ekki þess virði að ég taki það með eigin höndum", sagði ófreskjan. „Eg ætla að láta þig ganga 53 dagleiðir, og það getur þú aldrei.“ Svo blés ófreskjan í skeggið og góði vegurinn sem Wangji hafði gengið á breyttist í grjóturð. Steineggjarnar voru beittar eíns. og hnífar, en Wangji hélt áfram. Þegar hann hafði gengið eina dagleið voru hvassar stein- nybburnar búnar að tæta sundur skósólana hans. En þegar hann hafði gengið aðra voru iljar hans blóðrisa svo hann fór að skríða, þá urðu hendur hans og hné líka blóðrisa. „Eg get ekki snúið aftur,“ hugsaði Wangji. „Fólk- ið heima bíður eftir því að ég komi með hamingjufuglinn." Þá stóð fyrir framan hann ófreskja með gult skegg. Rödd hennar var eins og hvinurinn i vind- inum: „Hú ú ú! Ef þú ætlar að finna ham- ingjufuglinn verður þú að gefa afa Soolongs eitur. Annars svelti ég þig í hel.“ Wahájl horfði beint framan í ó- freskjuna og sagði: „Eg mun aldrei drepa afa nokkurs manns.“ Þá blés ófreskjan i skeggið, og nestisbaggi Wangji fauk út í busk- ann. Framuindan var endalaus eyðimörk, þar var ekkert ætilegt að fá. Þegar Wangji hafði gengið ein.a dagleið J var hann sársvangur en ’ eftir aðra kvaldist hann af hungri. Þegar hainn hafði gengið 33 dagleiðir var hann ekk- ert nema skinn og bein- 1 ! Þá stóð fyrir fram- an hann ófreskja með hvítt skegg rödd henn- ! ar var eins og þrumu- j hljóð, „Hó o ó! Hver er ' sá sem óttast ekki dauðann en kemur hingað?" „Eg er Wangji, að leita að hamingjufugl- inum.“ Framhald. Frjálsf land í fjötrum Framhald af 5. siðu. Þessi hægri öfl vildu aldrei neit't vinstra samstarf, og þau spilltu því að það yrði far- sælt. Flokkavaldið og flokka- streitan skyldi drottna á ný og vinstristjórnin féll. Heiðarleg vinstri samvinna byggist á málefnum en ekki flokkshagsmunum og er þetta trygging fyrir heilbrigðu stjórnarfkri í landinu. Það er hið mikilvægasta í stjórn- málum íslendinga nú að mál- efnin séu hafin til vegs og stjórnmálamennimir skipi sér um þau sem frjálsir menn en ekki flokksþrælar. Það eru þessi háu sjónar- mið um málefnalega stjórn- málabaráttu og frelsi og sjálf- stæði Islands, sem frjálshuga menn gera að sínum málstað í na&stu kosningum, á vegiun Alþýðubandalagsins, sem eru frjálsustu kosningasamtökin í landinu. Þar er kosningavettvangur þeirra sem losa vilja um hina fastreyrðu flokksfjötra og leysa land og þjóð frá her- námi og hernaðaranda. Deilurnar um kjördæma- skipunina eru vel til þess falínar að dreifa hugsun manna frá öðrum alvarlegri málum. Þær eru vel til þess fallnar að leyna þvi að Ey- steinn Jónsson og Guðmundur í. Guðmundsson, þessir linru þjónar Atlanzhafsbandalags- ins og hernaðarandans, þessir auðmjúku þjónar liins. alþjóð- lega auðvalds og kapítalisma, gátu ekki setið í vinstri stjórn á íslandi vegna þeirrar þjónk-i unar sinnar. — Það hljóta allir vinstri menn að sjá, að á meðan þessir menn og aðr- ir slíkir ráða yfir Framsókn- ar- og Alþýðuflokknum fær heiðarleg vinstri stjórn í land- inu ekki staðizt. Við höfum nú rétt nýskeð heyrt þessa menn o. fl. lof- syngja vígbúnaðarkapphlaup- ið og hernaðarandann („hern- aðarjafnvægið") á 10 ára af- mæli Atlanzhafsbandalagsins. Við heyrðum þá lepja úr söguþróuninni þá atburði, sem stutt gátu lofgerð þeirra. Við heyrðum þá „harma“ of- beldisaðgerðir Breta gegn ís- lendingum og við heyrðum fróma ósk um að íslendingar tækju virkan þátt í vörnun- um í landinu (,,kostnaðinum“) en þíað þýðir á skýru máli, að álitlegur hópur hreinrækt- aðra heimdallarfasista sé þjálfaður í vopnaburði og vígfimi, og þeim siðan ætl- að að hressa upp á lýðræðið á íslandi þegar lienta þykir. En við heyrðum þessa menn ekki minnast á kjarnorku- sprengjuna — hvernig Banda- ríkin í lok heimsstyrjaldar- innar reyndu með ógnarmætti hennar að beygja alllar þjóðir undir sinn vilja og hófu þann- ig kalda stríðið og vígbúnað- arkapphlaupið. Við heyrðum þá ekki nefna sorg og þjáningu þeirra for- eldra sem nú og í framtíðinni Fimmtudagur 18. júní 1959 — NÝI TÍMINN — (9 fæða af sér vanskapaða aum- ingja í Japan. Við heyrðum þá ekki nefna nokkra hættu í sambandi við vígþúnaðar- kapphlaupið, og ekki að Is- lendingar hefðu nokkru öðru hlutverki að gegna, en að fylgja blindu hernaðaræði eins og skynlaus skepna æ lengra á tortímingarbrautinni. Og þeir minntu okkur á skyldur okkar við frelsið og lýðræðið. Þeir menn, sem fóru á bak við þjóð sína með her- námssamningnum við Banda- ríkin, og reyrðu hana í -f jötra Atlanzhafsbandalagsins, líta á sjálfa sig sem verði frelsisins. $ En örlögin eru kaldhæðin. Nú standa þeir frammi fyrir fall- byssukjöftum Breta, „frels- isvinanna" og nýlendukúgar- anna, og í algerum vanmætti sínum og niðurlægingu reyna þeir að æpa lofsöng um „frels- ið“ og „samstarf frjálsra inga nú í sumar og haust þá þurfum við margt að muna, og við þurfum að greina aðal- atriði frá aukaatriðum. Her- námsflokkarnir þrír vilja helzt að við gleymum öllu öðru en kjördæmamálinu, og á því einu ætlar Framsóknarflo’kk- urinn að reyna að krafsa sér saman aukið fylgi í strjál- býlinu. Hann veit að vísu vel að málið er honum. tapað og að kjördæmaskipuninni verð- ur breytt, en það getur engu að síður orðið flokknum til stuðnings og framdráttar ef honum tekst að hræða marga á breyttri kjördæmaskipun. Vinstri menn þurfa að koma með sigur úr kosning- unum í sumar, því það er for- senda enn stærri sigurs í kosn- ingunum í haust. Stórsigur vinstri manna á vegum Alþýðubandalagsins er eina tryggingin fyrir vinstra samstarfi og nýrri vinstri stjórn, eina tryggingin fyrir því að Island losni undan hinu bandariska hernámi, eina tryggingin fyrir því að sjálf- stæði Islands verði endurreist og virt. Ol.geir Lúthersson. Spáð að siglingakreppan standi um ófyrirsjáanlegan fíma Fimmti hluti kaupskipaflota heimsins liggur nú 'við festar og hefur ekkert verkefni. þjóða“. I heimsstyrjöldiiini síðari hertóku Bretar ísland þrátt fyrir mótmæli íslendinga. Eft- ir styrjöldina neituðu Banda- ríkin að fara héðan með her sinn samkvæmt samningi en fengu fram nýtt hernám á bak við þjóðina. Nú stunda Bretar veiðiþjófnað undir her- skipavernd í íslenzkri land- helgi og hafa hótað að sökkva íslenzkum varðskipum við lög- gæzlustörf. Og Guðmundur I. og Eystéinn og Bjarni, og hvað þeir allir heita, beygja sig dýpra og dýpra. En ætlar þjóðin sjálf að beýgja sig? Ætlar hún einnig áð verða hinn óbarði þræll hernaðar- valds og ofbeldis,- Þegar við göngtim til kosn- Frá þessu skýrði forseti Al- þjóða siglingaráðstefnunnar, Finninn Krogier, év hann setti fund ráðstefnunnar í London nýlega. Hain kvað skipastól heimsins nú nema 125 millj. lesta. Þar af liefði 24 millj- óna lesta skipastól verið lagt, vegna þess að ekkert verk- efni væri fyrir hann. Ræðumaður sagði, að hann sæi ekki fram á að siglinga- kreppunni myndi ljú'ka á næstu árum. Einnig.vék hann að því vand- ræðaástandi sem.skapazt hefur við það að útgerðaimenn isækj- ast eftir að koma skipum sín- um undir „þægindafána", skrá þau 1 löndum, þar sem stéttar- samtök sjómanna njóta engr- ar lagaverndar og litlar kröf- ur eru gerðar til öryggisráð- stafana og sjóhæfiii. Kvað hann siglingaþjóðum í Evrópu hafa brugðið óþægilega á síðásta ári, þegar Bandaríkjastjórn gekk opinberlega í lið með bándarískum útgerðarmönnum sem skrá skip sín í ríkjum eins og Panama, Honduras.og Líberíu. iiAiiiÉOjfe; fe.'i.öt.óií:

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.