Nýi tíminn


Nýi tíminn - 17.12.1959, Side 3

Nýi tíminn - 17.12.1959, Side 3
 1 Ákafur óróður dynur nú á l3jóðinni síknt og heilagt. I ýmsum myndum og tilbrigðum ■er honum haldið að fólkinu. .„Þjóðin eyðir meiru en hún aflar“, j.íslendingar lifa um efni :fram“, „íslendingar kunna ekki með fé að fara“, „íslendingar 'kunna ekki að spara“, „Pen- 'ingaflóðið er að eyðileggja þjóð- ina“, Fólkið heimtar og heimt- ■ar. en vill ekkért á sig leggja“ o.s.frv., o.s.frv. Á þessu er klií- :að í ræðum og ritum hinna -,,ábyrgu“ stjórnmála- og fjár- análamanna og hver væluskjóða og' pokaprestur, sem kemur í útvarpið, reynir að koma þessu að. Þáð liggur nærri að ætla að það sé t.d. sett sem skilyrði fyrir því að menn fái að tala um daginn og veginn að þeir 'taki þátt í þessum söng. Hver ótur og lepur þetta eftir öðrum án þess vart verði að þeir hafi hugmynd um, hvað þeir eru að ræða. Þetta þykir bara fínt, þykir bera vott um mikla ábyrgðartilfinn'ingu, sannleiks- ást og hreinskilni! Hver er tilgangurinn með þessu? Er liann sá, að boða fólkinu sannlcika, uppfræða þjóðina um vandamál henn- ar? Ef svo væri, myndu þessar fögru dyggðir, sem menn ætla að springa af, þegar þeir tala eða skrifa, koma fram í breytni þeirra ©g aðgerðum þess utan. Að vísu skal ekki dregið í efa, að einhverjir taii í góðri meiningu, en þeir ættu þá að athuga um hvað þeir *ru að tala. Hinn raunvcrulegi tilgang- ur er sá, að koma inn sekt- artilfinningu hjá öllum al- menningi, fá hvern alþýðu- mann til að trúa því, að hver biti og sopi, sem hann ®g fjöiskylda hans lætur of- an í sig', sé óráðseyðsla, sem lionum og þjóðinni allri mun hefnast fyrir. Af öllum þessum áróðri gæti •maður haldið. að síðustu tutt- ugu árin hefðu verið sem eitt allsherjar fyllirí upp á krít, og nú sé ekkert annað eftir en tirnburmenn og skuldir. HifTnir þióðarbúsins bá oa nú. ■ En hver er sannleikurinn? Ef við ætlum að gera okkur .grein fyrir því, á hvern hátt þetta tímabil hefur breytt efna- hag þjóðarinnar; liggur næst að xeyna að meta eignir þjóðarbús- ins þá og nú. Ekkert slíkt upp- :gjör hefur farið fram svo vit- að sé, en við skulum líta á ------Fimmtudagur 17, desember 1959 — NÝI TÍMINN — (3 V f\ ; 1 S ' Er þeifa óráiseyðsla? — Semsnts- verksmiðjan á Akranesi í smíðum ís hefur hrakað helztu þættina, sem bera uppi framleiðslu og menningarlíf þjóðarinnar í dag. Togarafiotinn, sem flytur á land um helming sjávaraflans. var ekki til íyrir tuttugu árum. Þeir togarar, sem þá voru til, voru úr sér gengnir og á eftir tímanum. Mikill hluti bátaflot- ans hefur orðið til á þessum árum og sá bátafloti. sem þá var til þolir engan samanburð við bátaflotann nú, hvorki að því er stærð né búnað snertir. Hraðfrystihúsin, sem eru í dag ein meginstoð útflutningsfram- leiðslunnar, hafa orðið til á þessum tíma. Meginhluti iðn- fyrirtækja hefur risið upp á þessum tíma og þau eldri hafa endurnýjað og aukið svo véla- og húsakost sinn, að þau mega teljast ný. Mikill hluti ræktun- ar í sveitum og allur véla- kostur bændanna hefur iíka orðið til á þessum árum. Mik- ill hluti vega og brúa, sem nú tengja saman byggðir landsins, hefur orðið til á þessum ár- um. Flugvellir og flugvélakost- ur landsmanna, sem eru nú einn meginbáttur samgangna og flutninga bæði innanlands og milli landa, voru ekki til fyrir tuttugu árum. Mikill hluti þeirra húsa, sem þjóðin býr nú í bæði í sveit og við sjó, er yngri en tuttugu ára. Sama má segja um félagslieimili, sam- komuhús; skóla, o.s.frv. Fyrir tuttugu árum var aðeins Ljósa- fossstöðin til við Sog, þá var engin Skeiðsfossvirkjun til, engin Andakílsárvirkjun, engin Mjálkárvirkjun, engin Grímsáv- virkjun. Þá var engin áburðar- verksmiðja til né sementsverk- smic’ja. Og' svona mætti lengi telja. Lítum bara í kringum okkur og athugum, hvað af því sem fyrir augun ber. var til fyrir tuttugu árum. Ber það allt vott um eyðslu og dugleysi? En skuldirnar? Víst hvíla á okkur skuldir. en það er þó ekki verst hvað þær eru miklar, heldur hvað þær eru óhagstæð- ar. En voru ekki til skuldir fyrir tuttugu árum? Er enginn sem minnist þess, að þá voru meira að segja tolltekjurnar veðsettar útlendum lánardrottn- um? Þióðin leaaur til hliðar allt að briðjung tekna sinna. Sannleikurinn er sá, að þau verðmæti, sem þessi ár skilja eftir í þióðarbúinu, hafa gjör- breytt öllum möguleikum þjóð- arinnar til að lifa í landinu. Öil þessi verímæti hefur þjóðin skapað með mikilli vinnu og ráðdeild. Þjóðin kann ekki að spara, segja menn. En hva’ð segir aðalhagfræðingur Landsbankans og núverandi bankastjóri, Jóhannes Nordal, um það? Fyrir stuttu síðan komst hann að þeirri niður- stöðu í tímariti bankans, að fs- lendingar legfu til hliðar allt að ÞRIÐJUNGI TEKNA SINNA. .Gera aðrar þjóíir betnr? Landsbankinn hefur hó ekki hingað til staðið fyrir því, að liúga dyggðum upp á þjóðina i peningasökum. Skinulagslevsið er stór- felldasta sóunin. En er þá engin eyðsla til? Jú hún er til. Ýmsir braskaror s°m hofa rokað o° raka til sín fjórgröða á kostnað vinnandi fólks, bafa velt sér í margs- konar lúxus bæ!i í húsbúnaði, bílum, ferðalögum og öðrum lifnaðarháttum, sem ekki eru þjóðinni samboðnir. Auðmenn- irnir íslenzku hafa sannarlega ekki sýnt yfirleitt þá ráðdeild, að þeim sé trúandi fyrir meiri peningum, eins og nú virðist vera ætlunin. Og vissulega hafa ýmsir efnaminni reynt að apa eftir og lifað umfram sín per- sónulegu efni. En stórfelldasta eyðslan er þó fólgin í því skipulagsleýsi, sem er á þjóð- arbúskapnum. Ef rétt hefði ver- ið að farið, hefði verið hægt að skapa meiri varanleg verðmæti og notadrýgri og um leið búa þióðinni betri lífskjör en hún hefur. Kjörin hafa ekki fylgt framleiðslumættinum. Já, lífskjörin, eru þau ekki að sliga þjóðarbúið, enda hin beztu í heimi? Sé borinn saman fram- leiðslumáttur þjóðarinnar nú og fyrir tuttugu árum. verð- ur það að segjast, að lífs- kjörin hafa ekki batnað að sama skapi. Og séu laun manna nú borin saman við það, sem þeir fengu þá fyr- ir sama vinnutíma, bá er um afturíör að ræða. Hvort heldur er um að ræða verka- mann í fullri dagvinnu árið um kring eða fastlaunaðan mann á beim árum. þá gátu þeir leyft sér meira, lifað betra lífi, heldur en sömu menn nú með aðeins dag- vinnu eða föstu launin ein saman. Að bera saman lifs- kjör manns. sem ekki hefur atvinnu nema hluta eðlilegs vinnutíma og manns sem ekki einasta vinnur fullan vinnutíma heldur mikla yfir- vinnu. kemur hins vegar ekki til greina og er hrein vitleysa. Aí sÖmu ástæðu er villandi að bera lífskjör ís- lendinga saman við það, sem er hjá öðrum þjóðum. þar sem yfirvinna tíðkast ekki nema sem hrein undantekn- ing. Annars liggur.fátt hlut- lægt fyrir um það, hvort og að hve miklu leyti kjör ís- lendinga eru betri en ann- arra þjóða og þá hverra. Og því má ekki gleyma, að vinnutímiun er Hka hlutl lífskjaranna. Það eru út af fyrir sig engin hlunnindi að fá að þræla. Enginn ástæða til samvizkubits. Það eru því sannarlega ekki lífskjör vinnandi fólks, sem eru að sliga þjóðarbúið — og.í rauninni er það ekkert nálægt því að sligast. Enginn alþýðu- maður, sem lifir á vinnu sinni einni saman, þarf því að ganga með neitt samvizkubit vegna kjara sinna. Hann á ekki að leggja eyru að vælinu um eyðslu og lúxuslifnað, hann get- ur ekki tekið það til sín. Held- ur á hann í fullri hreinskilni við sjálfan sig og aðra að reyna að gera sér sem gleggsta grein fyrir hag sínum í sambandi við hag þjóðarinnar í heild. Þióðin er vissulega ekkert að komast á vonarvöl. Og e£ þeir ,.vísu“ sérfræðingar. sem nú sitja sveittir við að reikna út kauprán og verðbólgu yfir þjóðina og' eru sífellt að basla við að troða íslenzku efnahags- lifi í amerískar kreppuformúl- ur, notuðu lærdóm sinn til að reikna út. hvernig þjóðarbú- skapurinn yrði bezt skipulagð- ur til hagsbóta hverjum vinn- andi manni. þá þyrftum við ekki að kvíða. Launþegi. miðaö við iounin fyrir fastan, eðlilegan vinnutíma

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.