Nýi tíminn - 12.10.1961, Síða 1

Nýi tíminn - 12.10.1961, Síða 1
Munið ÞJÖÐVILJANS Nyi timinn Kaupið NÍJA TlMANN Fimmtudagur 12. október 1961 — 2. tölublað. Verkfall yfir- mannc á banda- rísknm skipum SAN FRANCISCO — Verkfallið meðal yfirmanna á kaupskipa- flota Bandaríkjamanna á Kyrra- hafi hefur nú færzt yfir til Baltimore á austurströndinni. Þegar kaupfarið Hawaiian Tour- ist kom þar inn á fimmtudags- kvöld gekk öll áhöfnin í land. Á Háskólahátíðinni 7. okt. voru 23 karlar og kona sæmd heiðursdokt- orsnafnbót við mjög virðulega athöfn í sam- komuhúsi Háskólans. Fjöldi manns var við at- höfnina en þó ekki skip- að í hvert sæti eins og á hátíðarsamkomunni á föstudag. Athöfninnf var útvarpað. Samkoman hófst að þessu Sirini með því að Sigurður Nordal flutti erindi. Þá söng Guðmundur Jónsson óperusöngvari með undirleik Fritz,. Weisshappels lögin Út- laginn eftir Karl O. Runólfs- sóri, Siglum á sæinn eftir Dr. Hallgrím Helgason og Til skýs- ins eftir Emil Thoroddsen. Rektor Háskóla isl'ands, prófessor Ármarin Snævar lýsti síðan kjöri heiðursdokt- ora ásamt deildarforsetum guðfræðideildar prófessor Þóri Kr. Þórðarsyni, læknadeildar prófessor Kristni Stefánssyni, laga- og viðskiptadeildar prófessor Ólafi Björnssyni og heimspekideildar prófessor Matthíasi Jónassyni. Kallaði hver deildarforseti fram heið- ursdoktora sinnar déildar, rakti í stuttu máli starfs- og æviíeril þeirra og lýsti þá doctores honoris causa. Hinir nýju heiðursdoktorar tóku síð- an við skjali úr hendi há- skólarektors og var með dynjandi lófataki af sam- komugestum. Einn þeirra, dr. Henry Goddard Leach gat ekki sjálfur tekið á móti nafnbót sinni sökum skindilegra for- falla og tók bandaríski sendi- herrann á móti henni fyrir hans hönd. Hinir nýju heiðursdoktorar Háskólans eru; í guðfræðideild dr. theol. h. c.: Prófessor Regin Prenter, Ár- ósum Herra Sigurbjörn Einarsson, Biskup íslands í læknadeild dr. med. h. c.: Prófessor Earl Judson King, Postgraduate Medical School, University of London Prófessör Eduard Busch. Rigs- hospitalet, Kaupmannahöfn Prófessor Lárus Einarsson. Árósum Dr. P. H. T. Thorlakson Winnipeg Clinic í laga- og viðskiptadeild dr. jur. h. c.: Prófessor Alexander Jóhann- esson / Foráætisráðherra Bjarni Bene- diktsson Hinir nýkjörnu heiðursdoktorar sátu á fremsta bckk a Ha- skólahátíðinni í gær. Á efri myndinni sjást greinilega, talið frá hægri: próf. Regin Prentcr, Sigurbjörn Einarsson biskup, próf. E. A. King, próf. Lárus Einarsson, dr. P. T. Thorlakson, próf. Alexander Jóhannesson, Bjarni Benediktsson forsætisráðh., próf. K. Robberstad og próf. Nils Herlitz. Á hinni eru í fremstu röð talið frá vinstri: próf. Anne Holtsmark, próf. Stefán Ein- arsson, dr. Sigurður Þórarinsson, próf. S. Ó. Duilearga, próf. Richard Beck, próf. Gabriel Turville-Petre, Finnur Sigmunds- son landsbókav., próf. Elias Wessén, próf. Dag Strömback og próf. Christian Matras. Prófessor Knut Robberstad, Ósló Prófessor Nils Herlitz, Stokk- hólmi Prófessor Oscar A. Borum, Kaupmannahöfn x Prófessor Tauno Tirkkonen, Helsinki í heimspekideild dr. phil. h. c.: Prófessor Anne Holtsmark ósló Prófessor Christian Matras, Kaupmannahöfn Prófessor Dag Strömbáck, Uppsölum Prófessor Elias Wessén, Stokk- hólmi Landsbókavörður Finnur Sig- mundsson Prófessor Gabriel Turville- Petre, Oxford Prófessor Hans Kuhn, Kiel Dr. Henry Goddard Leach, American Scandinavian Fond- ation Prófessor Richard Beck, Uni- versity of North Dakota Prófessor Séamus Ó. Duile- arga, University College Dr. Sigurður Þórarinsson Prófessor Stefán Einarsson, Johns Iiopkins University. Eftir að lýst hafði verið kjöri heigursdoktora söng Kristinn Hallsson óperusöngv- Framhald á 2. síðu. BERLlN 7/10 — Varaforsætisráð- herra Austur-Þýzkalands, Bruno Leuschner, sagði á fjöldafundi á Marx-Engels-torgi í Austur-Ber- lín í dag að úrslit nálguðust í baráttunni fyrir friðarsgmningum við Þýzkaland. Fundurinn var haldinn til að minnast þess að 12 ár voru liðin frá því að austurþýzka lýðveld- ið var stofnað og voru um 100.000 NAT0 verndar NEW YORK 7/10 — Utanrík- isráðherra íraks, Hachim Jawad, sagði í ræðu á allsherjarþingi SÞ í gær að Atlanzbandalagið héldi verndarhendi yfir Frökk- um í Alsír.. Það væru frönsku fjármálahringarnir sem stæðu fyrir stríðinu í Alsír og þeir inytu sívaxandi áðstoðar auð- fhringa í öðrum löndum. manns á fundinum að sögn frönsku fréttastofunnar AFP. Leuschner aðvaraði hernaðar- sinna í Vestur-Þýzkalandi og sagði að sérhver * tilraun til að skerða landamæri Austur-Þýzka- lands myndi leiða til styrjaldar. Mikojan, aðstoðarforsætisráð- herra Sovétríkjanna, talaði einn- ig á fundinum. Hann sagði í ræðu sinni að Sovétríkin væru fús til að veita fullkomna trygg- ingu fyrir að staða Vestur-Ber- línar sem fríríkis yrði ekki skert. Mikojan sagði að í friðarsamn- ingnum sem gerður yrði við Austur-Þýzkaland myndu þýzku landamærin endanlega ákveðin í samræmi við alþjóðalög. Við vilj- um ekki stríð. Friðsamleg sam- keppni á sviði efnahagsmála verður að ráða úrslitum í bar- áttunni milli sósíalismans og kapítalismans, sagði Mikojan. Mannfjöldinn lét fögnuð sinn í ljós hvað eftir annað meðan á ræðu hans stóð.

x

Nýi tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.