Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.03.1951, Page 7

Skólablaðið - 01.03.1951, Page 7
- 7 - yfir félagsskap Pjölnismanna, Er Jonas lezt svo vorið 1845» kom Fjölnir ekki út nœsta árið, eins og vera skyldi. Af þessu má marka, hvað Fjölnir er nátengd- ur ástsælasta þjóðskáldi okkar og sýnir, hver framkvæmdarmaður hann hefur verið í þessu efni. Sá þó 9. árgangur, og um leið sá síð- asti, dagsins ljós árið 1847* Hefti þetta er að mestu helgað JÓnasi og í þeim tilgangi gefið út. Þar er fremst á blaði afhragðs minningargrein um hann eftir nánasta vininn, Konráð Gíslason, Lysir hann sorg íslendinganna í Khöfn yfir fráfalli hanss "hörmuðu þeir for- lög hans og tjón ættjarðar sinnar, hver sá mest, sem honum var kunnugastur, og hezt vissi, hvað í hann var varið." Ennfremur birtist þarna kvæði um JÓnas, höfundarlaust, en allar líkur henda til þess, að Konráð eigi það einnig, svo mjög her það svip hans. Konrað, sem fylgdi Jonasi "í lífsins glaumi", - eins og segir í kvæðinu -, og vissi manna hezt, hvað í honum bjó, lýsir þar aðdáun sinni á skáldinu, en hryggist jafnframt yfir fálæti landa hans. Að öðru leyti er efni síðasta árgangs- ins aðalega kvæði og sögiar JÓnasar. Með þessum árgangi lýkur útgáfu Fjöln- is og fólag þeirra manna, sem að honum standa, líður undir lok, Er það vel skiljanlegt, þar sem sá maður, er átti stærstan þáttinn í, að gera Fjölni að því sem hann varð, er nú hniginn í val- inn. XI. Vinurinn, sem unni fegurðinni framar öllu öðru, listaskáldið góða, var sárt syrgður aí fcCWÍnuntim tveimur, sem eftir voru í Khöfn. Þeir trega hann á einlæg- an og innilegan hátt, því að þeim er það ljóst, hvílíkt tjón ættjörð þeirra hefur heðið við fráfall hans. Þeir harma snillinginn, sem lifði erfiðu og gæfu- snauðu lífi í fátækt og heilsuleysi og "lagður lágt í mold" aðeins 37 úra gam- all, fjarri ströndum og hlíðum fóstur- jarðarinnar, sem hann unni svo heitt, Við andlát hans minnist Konráð orða Jök- uls Bárðarsonar í Grettissögu, og honum finnast þau sannast "á honum, eins og mörgum öðrum íslendingi": "...satt er það, sem mælt er, að sitt er hvort, gæfa eða gjörvileikur." Víst er það, að önnur orð virðast ekki eiga betur við. Og harmur þeirra vinanna,sem eftir eru, yrði aldrei hættur. Þriðji félaginn á heldur ekki langt líf fyrir höndum. Einnig Brynjólfur Petursson fellur í valinn, þega starf hans í þágu ættjarðarinnar er hafið að fullu. Vil ég nú, að nokkru, rekja sviferil þessai’a tv^ggjalyanismajma er eftir lifðu í Khöfn, þar sem ævistörf þeirra eru svo fjarri því að vera ómerk, og þeir aulc þess ekki nándar nærri eins kunnir og JÓnas og TÓmas eru. Brynjólfur PÓturnson gaf sig fljót- lega að lögfræðistörfum eftir emhættis- prófið og gerðist starfsmaður í Rentu- kammerinu, sem hafði fjármál- og át— ' vinnumál með höndum, Hann mun þó hafa haft í hyggju að hverfa til fslands og setjast þar að, þv£ að vorið 1844 er honum veitt sýslumannsemhættið í Skafta- fellssýslu, þó að aldrei tæki hann við því. Ilefur því sjálfsagt valdið, að hann hefur talið sig geta unnið betur í þágu íslands að malum, sem horfðu til framfara, en ella. Hann heldur því á- fram störfum í Rentukammerinu og hækkar þar að metorðum, Það álit, sem Bryn- jólfur hafði aflað sér £ starfi sinu þessi ár, kom berlega £ ljós, þegar hin islenzka stjórnardeild, sem annast skyldi malefni íslands, var sett á stofn með úrskurði lconungs, lo, nóvemher 1848, þvi að hann var þegar skipaður forstöðu- maður hennar. £ rikisþing það, grund- vallarlagaþingið, sem samdi nýja stjórn- arskrá handa Danmörku, 1848-'49» hlutu íslendingar 5 fulltrúa og þeirra á meðal voru þeir Brynjólfur og Konráð, en auk þess var Brynjolfur kjörinn £ sjálfa grundvallarlaganefndina. Ma af þessu marka, hve mikils metinn hann var, £ þessum árum kom Brynjólfur mjög við félagslíf íslendinga í Khöfn. Irið 1843 stóð hann fremstur í flokki fyrir •stofnun hófsemdar- og bindindisfélags meðal landa sinna, BÓkmenntastarfsemi lét hann til sin taka, sem hófst með þátttöku hans £ útgáfu Fjölnis og var forseti Hafnardeildar BÓkmenntafélagsins árin 1848-'51, er hann lét af þv£ starfi vegna veikinda og JÓn Sigurðsson tók við.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.