Litli Bergþór - 01.06.1988, Side 15
15
FRETTIR
Það hefur varla farið ffam hjá neinum hér í sveit að
keypt hefur verið vatnsrennibraut í sundlaugina að hætti
æðstráðanda í borg Davíðs.
Fyrir um einu og hálfu ári síðan kom þessi umræða
fyrst upp á borðið hjá sundlaugarnefnd. Kannaður var
vilji hjá sveitarstjórn, sem gaf vilyrði fyrir kr. 200.000,-
sem þá dugði fyrir lítilli braut eins og á Selfossi. Einnig
var reynt að fá smíðaða braut hér innaniands fyrir svip-
aðan pening en það mistókst á síðustu stundu. Þrátt fyr-
ir svekkelsi fyrra árs efldust nefndarmenn (flestir) í þeim
ásetningi að braut skyldi koma. Var nú aftur leitað til-
boða hjá innflytjendum og innlendum framleiðanda.
Margt stóð til boða og misdýrt. Af þeim möguleikum
sem okkur buðust tókum við þann stærsta, sem menn
hafa nú barið augum. Samtals áætiaður kostnaður var
liðlega kr. 700.000,- Framlag hreppsins fékkst hækkað í
kr. 300.000.- en afganginn ætluðum við að afla sjálf.
Héldu þá flestir að sundlaugarnefnd væri orðin alveg
gufurugluð.
Nú voru góð ráð dýr, brautina þurfti að panta strax,
enda komið fram í mars og fjármögnun vægast sagt
mjög ótrygg. Þá var sest niður og lögð drög að áhlaupi
á alla þá aðila sem okkur datt í hug að væru verkinu vel-
viljaðir.
Flestum starfandi félögum í sveitinni var ritað bréf, haft
var samband við fyrirtæki í sveitinni, lögð drög að
áheitasundi hjá skólabörnunum og sent bréf til þeirra fé-
lagasamtaka sem eiga sumarbústaði í sveitinni.
Þó töluverð vinna fylgdi áheitasundinu var það fyrir
okkur sem að þessu stóðu, langskemmtilegasti þáttur
verksins. Áhuginn og leikgleðin hjá börnunum hvatti alla
til dáða og var án efa hvatinn að þeim velvilja, sem við
mættum víðast hvar.
Það er skemmtilegt frá því að segja að hernaðaráætl-
unin er í þann veginn að ganga upp.
í dag er staðan þessi:
TEKJUR
Biskupstungnahreppur kr. 300.000,-
Áheitasöfnun kr. 162.000,-
Lionsklúbburinn Geysir kr. 50.000,-
Starfsmannafélag ÍSAL kr. 50.000,-
Kvenfélag Biskupstungna kr. 37.600.-
Bjarnabúð kr. 25.000,-
Ungmennafélagið kr. 20.000,-
Búnaðarfélagið kr. 15.000,-
Meðferðarheimilið Torfastöðum kr. 10.000,-
Féiagsbúið Espiflöt kr. 10.000.-
GJÖLD
Rennibraut kr. 589.378,-
Dæla kr. 54.600,-
Vinna við uppsetningu
og raflögn ca. kr. 90.000.-
Annar efniskostnaður ca. kr. 40.000,-
Unnið við uppsetningu brautarinnar.
Það sem á vantar teljum við alls ekki útilokað að skili
sér með einhverju móti á næstu vikum.
Að lokum vil ég fyrir hönd Reyhholtsiaugar þakka öll-
um þeim fjölmörgu sem hafa lagt okkur lið á einn eða
annan hátt, í formi peninga, vinnu eða annars velvilja,
kærlega fyrir og vona að rennibrautin eigi eftir að upp-
fylla þær væntingar sem til hennar voru gerðar. Alla
vega hefur aðsóknin fyrrihluta júnímánaðar aukist um
hátt í helming.
Sveinn A. Sæland