Litli Bergþór - 01.06.1988, Síða 17
Af Loga
Aðalfimdur Loga var haldinn í Aratungu 18.apríl 1988.
Formaður setti fundinn og kynnti dagskrá hans. Þá var
lesin fundargerð síðasta félagsfundar og gjaldkeri gerði
grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins. Niðurstöðutölur
reikninga voru 325.156,93 kr. Formaður tók næst til
máls og rakti starfsemi félagsins á liðnu ári. Gerði hann
einkum að umtalsefni húsnæðismál, væntanlegan efnis-
flutning í hringvöll og unglingastarfið. Táldi hann að þar
mætti margt betur fara og að foreldrar þyrftu að hvetja
börnin til þátttöku. Nokkrar umræður urðu um félags-
starfið og reikninga félagsins. Síðan var gengið til kosn-
inga. Úr stjórn gengu Kristján Kristjánsson ritari og
Helga Karlsdóttir meðstjórnandi, en hvorugt þeirra gaf
kost á sér til endurkjörs. í þeirra stað voru kosin Kjartan
Sveinsson ritari og Þórey Jónasdóttir meðstjórnandi.
Fulltrúar á þing Landssambands hestamannafélaga
voru kosnir Olafur Einarsson og Kristinn Antonsson en
varamenn þeirra Þráinn Jónsson og Guðni Ölversson.
Aðrar nefndir voru þannig skipaðar:
Kappreiðanefnd: Kristján Kristjánsson, Guðni Ölvers-
son,Karl Jónsson, Þráinn jónsson,Trausti Kristjánsson.
Varamaður: Ólafúr Einarsson.
Skeiðvallarnefnd: Kjartan Sveinsson, Ingvar R.
Ingvarsson, Magnús Kristinsson. Varamaður: Haraldur
Kristjánsson.
Firma- og reiðnámskeiðanefnd: Kristinn Antonsson,
Jakob Hjaltason, Loftur Jónasson. Varamaður: Ágúst
Sæland.
Kappreiðadómnefnd: Arnór Karlsson.Guðni Karlsson,
Njörður Jónsson.Varamaður: Valur Lýðsson.
Útbreiðslunefnd: Kjartan Sveinsson, Þórey Jónasdóttir,
Varamaður: Gunnlaugur Skúlason.
Útreiðanefnd: Haraldur Kristjánsson.Einar P. Sigurðs-
son,Elsa Fjóla Þráinsdóttir. Varamaður: Þórarinn Guð-
laugsson.
Æskulýðsnefnd: Sigurlína Kristinsdóttir.Svavar Njarð-
arson,Skúli Gunnlaugsson. Varamaður: Sigríður J. Sigur-
finnsdóttir.
Veitinganefnd: Helga Karlsdóttir, Þórdís Sigfúsdóttit
Sigríður J. Sigurfinnsdóttir.Varamaður: Þórey Jónasdótt-
ir. Kjartan Sveinsson.
FÉLAGSMÁL
Magnhildur Indriðadóttir með afrekshornið góða.
Afrekshornið
Á aðalfúndi Búnaðarfélags Biskupstungna 15. apríl s.l.
var tilkynnt um veitingu affekshorns Búnaðarfélagsins.
Það hlaut að þessu sinni Magnhildur Indriðadóttir ffá
Drumboddsstöðum, nú til heimilis að Bergholti. Magn-
hildur hóf störf sem ljósmóðir hér í sveit 1940 og starfaði
um áratugaskeið sem slík, auk þess að standa með
manni sínum, Sveini Kristjánssyni, að einu mesta
myndarbúi og rausnarheimili hér um slóðir. Auk þessa,
sem að ffaman greinir, hefúr Magnhildur oftsinnis sýnt
hlýhug sinn til sveitarinnar og sveitunga sinna í verki.
Litli-Bergþór óskar Magnhildi til hamingju. Hún er sann-
arlega vel að þessari viðurkenningu komin. s j s