Litli Bergþór - 01.04.1990, Side 3

Litli Bergþór - 01.04.1990, Side 3
Ritstjómarspiall Það er stundum sagt að uppáhalds umræðuefni okkar íslendinga sé veðrið. Veðrið og færðin Hka held ég. Við höfum í það minnsta ekki farið varhluta af fjölbreyttu veðurfari að undanfömu. Þegar þessar línur eru ritaðar, er að ljúka yndislegum degi, sem gefur von um að “bráðum komi betri tíð með blóm í haga.” Þá gleymist strax að gærdagurinn var einn af mestu óveðursdögum vetrarins. En í þessum skrifuðum orðum verður mér litið út um gluggann og ... er hann ekki enn farinn að snjóa! En þrátt fyrir allt, þá vitum við að vorið er á næsta leiti, sést hefur til tjaldsins, gúrkubændur em famir að senda uppskeru og styttist í það hjá tómatabændum líka. Vorkoman hleypir kjarki og krafti í fólk og veitir ekki afþví annir flestra aukast. Mikið er framundan þetta vorið þar sem em sveitarstjórnarkosningar. Heyrst hefur að talsverðar breytingar verði á hreppsnefnd, hvort sem til koma listakosningar eða ekki. í því sambandi minni ég enn á tilvist Litla-Bergþórs. Næsta tbl. ætti að koma út fyrir kosningar og öllum er fijálst að senda inn efni. Eins og alþjóð veit hefur orðið mikil uppbygging hér í Tungunum síðustu ár. Er óskandi að komandi hreppsnefnd haldi áfram á sömu braut framsýni og ríkt hefur, en leki ekki úr henni allur vindur líkt og sprunginni blöðm. Rætt er um að uppgangstímar hér í Tungunum komi alltaf í bylgjum og fylgi það skólabyggingum, þ.e. á 31 árs fresti, en detti síðan allt í deyfð og dmnga þess á milli. Vonandi verður raunin ekki sú þegar Yleiningar-byggingu lýkur að ráðamenn telji að þá sé nóg komið og hægt að fara í frí. Því þó peningaleysi hljóti að fara að plaga, þá fer nú fyrst að streyma að fólk, fólk sem vill búa hér og þarf að hafa möguleika til þess. Ég vona að blaðið höfði til sem flestra að þessu sinni, en stundum hafa heyrst gagnrýnisraddir varðandi efnið. Það sé of einhæft, allavega verður þetta tbl. ekki kallað afréttarblað, því þeim málum eru lítil skil gerð. Það er alltaf jafn gott að leita til fólks með greinarskrif. Við leituðum til þeirra Ingva, Jómnnar og Geirþrúðar og var okkur alls staðar vel tekið. Færum við þeim okkar bestu þakkir. Látum við þessu þá lokið að sinni. Gleðilegt sumar. S. J. S. Litli - Bergþór 3

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.