Litli Bergþór - 01.04.1990, Blaðsíða 6
Afhending gjafar fjögurrafélaga til húsgagnakaupa.
Oddvitar nærsveitanna afhendamálverk.
þeim til hamingju með vel unnið
verk og vona að við getum notið
þess vel og lengi.
Takk fyrir."
Þá tók til máls Gísli Einarsson
oddviti og gerði hann grein fyrir
fjármálum byggingarinnar. Kom
fram aö óframreiknaður heildar-
kostnaður nam á vígsludegi
50.965.000 og að kostnaður á
fermetra væri með því lægsta sem
gerðist í sambærilegum bygg-
ingum eða um 65.000 kr. per fm.
Því næstgerði arkitektinndr. Maggi
Jónsson grein fyrir hugmyndum
að baki byggingunni og lýsti henni.
Næstur sté í pontu Jón Ingi Gísla-
son framkvæmdastjóri SH-
verktaka, þakkaði gott samstarf og
afhenti skólastjóra lyklana að
húsinu.
Unnar Þór Böðvarsson skólastjóri
ræddi helstu nýmæli í skólastarfinu
með tilkomu hins nýja húss.
Ennfremur þakkaði Unnar hlýhug
samfélagsins til skólans og gjafir,
sbr. gjafaskrá sem birt er annars
staðar í blaðinu, og minnti á að
hlýhugurinn væri meira virði en
gjafirnar.
Sr. Guðmundur Óli Ólafsson flutti
nú hugvekju. Bað hann húsinu og
allri starfsemi þess blessunar og
heilla.
Aðrir sem tóku til máls voru:
menntamálaráðherra Svavar
Gestsson, Jón Eiríksson oddviti
Skeiðamanna, Þóra Júlíusdóttir
Varmagerði, Jón R. Hjálmarsson
fræðslustjóri, Guðni Ágústsson
alþingismaður og Jón Ingi
Gíslason.
Að lokum sleit Sveinn A. Sæland
hinni formlegu dagskrá, bað gesti
að skoðasigumog þiggja veitingar,
sem Kvenfélagskonurframreiddu.
Líklega er óhætt að fullyrða að allir
hafi horfið saddir og sælir til síns
heima eftir þennan glaðning í
bakkelsi og byggingalist.
S.B.
Gjafir til Reykholtsskóla í tilefni af vígslu nýbyggingarinnar:
160 þús
kr. 70 þús
Torfastaðasókn gaf fé til kaupa á ljósritunarvél, kr.
Haukadalssókn gaf fé til kaupa á leirbrennsluofni,
Bræðratungusókn gaf fé til kaupa á leirbrennsluofni, kr. 50 þús.
Skálholtssókn gaf biblíu í skinnbandi, Passíusálma (2 eint.),
i- og
cr.
ogmynd.
Gnúpverjar, Hruna- og Skeiðamenn
Ýmsir gáfu vinnuframlag sitt.
gáfu málverk
Litli - Bergþór 6