Litli Bergþór - 01.04.1990, Blaðsíða 9

Litli Bergþór - 01.04.1990, Blaðsíða 9
Uffl.ft veffisjöröina. iii Til að undirbúa okkur undir feröina, töluöum við viö ferðareynda vini okkar og lásum okkur vei til um þá sjúkdóma, sem búast mætti viö í hitabeltinu og helstu lyf viö þeim. - Hæg voru heimantökin aö því leyti, meö lyfjafræöing, hjúkrunarkonu og dýralækni í hópnum. Við höföum ekki ákveðið fyrirfram hve lengi, eöa hve langt viö myndum ferðast. Kannski í ár ef vel gengi, annars, ef illa færi, viö yrðum veikar eöa rændar, eöa annað geröist þaöanaf verra, yröum viö komnar heim eftir hálfan mánuö. Eins komum viö okkur saman um, aö ef einhverja okkar langaöi til aö fara eöa gera eitthvað annað en hinar, skyldi sú ekki vera bundin af hinum, heldur gera þaö sem hana langaði til. Ég haföi kynnst "Poste Restante" þjónustunni, sem finnst á öllum aöalpósthúsum í borgum um allan heim, þegar ég skrifaðist á viö kunningja minn, sem varáferðalagi í Asíu. Og þessaþjónustu notuðumviðsíðartil aö haldasambandi okkarámilli og til að fápóst heiman að. "Poste Restante"ersemsagteinskonarpósthólf áaðalpósthúsunum, (eöa á skrifstofum fyrirtækja eins og "American Express", sem sérhæfa sig í ferðamannaþjónustu), sem geymir bréfin í nokkra mánuöi og maður getur beðið vini og kunningjaaösendasérpóstþangaö, eöaferöafélagargetalagtþarinnskilaboð. En þaö kostar auðvitað aö maöur veröur aö vita ferðaáætlunina f stórum dráttum 2-3 mánuöi fram í tímann, allavega hafa fasta punkta í henni. Oft var þar álitlegur bréfabunki sem beiö manns, ef maður haföi veriö duglegurað rekaáróöurfyrirbréfaskriftum! - Vissulega mjög hjartavermandi aöfá bréf heimanað - og nauösynlegt fyrir aðstandendur aö geta haft samband viö mann. - Eftir aö öllum undirbúningi var lokiö, keyptum viö okkur ódýrasta miöann sem viö fundum, aöra leiö til Nýju Delhi á Indlandi. - Meö "Syrian Airlines".- Okkur þótti ekkert verra aö innifaliö í miðanum voru nokkrarmillilendingar: Berlín, Aþena, Damaskus íSýrlandi í3 dagaog Kuwait. Aöalatriöiö var aö komast á sem ódýrastan hátt út úr Evrópu, viö höföum nefnilega heyrt aö mun ódýraraværi aö kaupaflugmiöa í Asíu. Og svo höföu góöir vinir gefiö okkurþað ráö, aö binda ekki ferðir okkar of mikiö fyrirfram. Feröaáætlanir breytast auöveldlega, þegar af stað er komið, eins og sannaðist heldur betur í okkar tilfelli! 1. hluti. Ferðast um Asíu Loks kom að því að lagt var í hann, einn dæmigerðan danskan haustmorgun, nánar til tekið fimmtudaginn 12. nóvember 1981, frá Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn. Nokkrir vinir fylgdu okkur út á völl til að drekka með okkur kveðjubjórinn, og svo var haldið til Damaskus í Sýrlandi í fyrsta áfanga. Það var heilmikill léttir að komast af stað, eftir stressið síðustu dagana í Kaupmannahöfn. Allur undirbúningur undir ferðina var náttúrlega á síðustu stundu að íslenskum sið, og svo þurfti ég að ganga frá öllu mínu dóti og senda heim til íslands eftir 5 ára búsetu íDanmörku. Ekki bætti svo úr skák að tveim dögum áður en við lögðum af stað, fóru þær Gauja og Anna, samferðakonur mínar út að skemmta sér, og þá var Litli - Bergþór 9

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.