Litli Bergþór - 01.05.1990, Page 26
BA-BÚ///FRASLÖKKVILIÐINU///BA-BU///FRASLÖKKVILIÐINU///BA-BÚ
Þátttakendur og leiðbeinendur.
Slökkviliðsmenn þjálfaðir.
Dagana 6.-8. apríl voru haldin námskeið íreykköfun
og skyndihj álp á vegum slökkviliðs Biskupstungna.
Leiðbeinendur komu frá Brunamálastofnun.
N ámskeiðið fór fram í sláturhúsinu í Laugarási, en
þar er afbragðsaðstaða til slíks. Þátttakendur voru
8, bæði úr Biskupstungum og Laugardal en
samvinna er allmikil milli slökkviliða þessara
hreppa.
Þátttakendum fannst námskeiðið vel heppnað og
ekki þarf að fjölyrða um hversu mikilvægt það er
að brunaverðir fái fræðslu og þjálfun.
Æfing í reykköfun.
Gjafir frá Geysi.
Miðvikudaginn 2. maí afhenti Lions-
klúbburinn Geysir, slökkviliðinu að gjöf
reykköfunartæki ásamt aukasúrefniskút.
Aður hefur Lionsklúbburinn gefið
slökkvihðinu handluktir og líflmu fyrir
reykkafara.
Lionsmönnum eru hér með sendar bestu
þakkir fyrir góðar gjafir og velvilja.
Gunnar Sverrisson.
mun^m^num
AFGR. SELFOSSI: ÁRNESTISÍMI98-21599 - SKRIFST SÍMI 98 22599
SUMARÁÆTLUN
10.05 -- 15.06. 1990.
16.08 - 30.09. 1990.
REYKJAVÍK - GRÍMSNES - BISKUPSTUNGUR - GEYSIR - GULLFOSS
Frá Reykjavík - austur S 09.00 M 09.00 Þ 09.00 M 09.00 F 09.00 F 09.00 L 09.00
Frá Hveragerði - austur 09.45 09.45 09.45 09.45 09.45 09.45 09.45
Frá Selfossi - austur 10.10 10.10 10.10 10.10 10.10 10.10 10.10
Frá Geysi til Reykjavíkur 17.00 14.30 14.30 14.30 14.30 08.00 14.30 14.30
Frá Reykholti til Reykjav. 17.20 14.45 14.45 14.45 14.45 08.20 14.45 14.45
Frá Laugarási til Reykjav. 17.40 15.00 15.00 15.00 15.00 08.40 15.00 15.00
Frá Minni Borg til Reykjav. 18.00 09.00 15.20 09.00 15.20 15.20 12.30 15.20 09.00 15.20 09.00 15.20
Litli - Bergþór 26