Litli Bergþór - 01.06.1991, Side 7

Litli Bergþór - 01.06.1991, Side 7
Afhending myndlistaverks - málverkasýning Gísli Sigurðsson frá Úthlíð hefur á undanförnum mánuðum unnið að listaverki fyrir Reykholtsskóla, sem nú hefur verið sett upp árennihurðimar í skólanum. Myndverkið, sem fjallar um trú og hjátrú í íslenskri myndlist fyrri alda, var formlega afhent skólanum við hátíðlega athöfn þ. 16. júní s.l. Gísli sagði þar m.a. frá tilurð verksins og útskýrði myndefnið. Listskreytingasjóður ríkisins borgar kr. 650 þús. í verkinu, en skólinn borgar uppsetningu, kr. 250 þús. Það sem á vantar gefur listamaðurinn. I tengslum við afhendinguna sýndi Gísli nokkur fleiri málverk í húsnæði skólans. Sýningin var opin 16. og 17. júní og var liður í M-hátíð á Suðurlandi 1991. G.S. Listamaðurinn við verkið. Inn til fjalla. Nú eru fáanleg öll þrjú bindin af riti því er ber nafn fyrirsagnarinnar hér að ofan. Eftirfarandi pistill var settur í fyrsta bindi og segir hann allt sem segja þarf. A.K. Formáli Ijósprentunar. A árunum 1949 til 1966 gaf Félag Biskupstungnamanna í Reykjavík út þrjú bindi af ritinu Inn til fjalla. I þessum bókum erritstjóra eða umsjónarmanns hvergi getið. Undir formála tveggja hinna fyrri stendur “Ritnefndin”, en í hinu þriðja er undir formálsorðum stafirnirG.Þ. Flestir sem lásu þetta fyrst eftir að bókin kom út munu hafa vitað að þetta var fangamark Guðríðar Þórarinsdóttur og einnig að hún ritstýrði ogsáaðmestuumútgáfuáöllumþremurbindunum. Nafnhennarkemurraunaroftfyriríþessumbókum því hún skrifaði mikinn hluta af greinunum í þeim. Guðríður var fædd á Drumboddsstöðum hér í sveit 5. september 1888 og ólst hún þar upp. Hún varð gagnfræðingur frá Flensborg og aflaði sér menntunar á ýmsan hátt, svo sem á námskeiðum og þó líklega mest með bóklestri. Hún var meðal stofnenda Ungmennafélags Biskupstungna 1908, en í því starfaði hún mikið áfyrstu áratugum þess. Húnkenndi börnum, aðstoðaði við að koma upp heimilisskrúðgörðum og leiðbeindi við ræktun matjurta og vefnað. Guðríður stóð fyrirbúi hjá Þorsteini tvíburabróður sínum á Drumboddsstöðum frá 1913 til 1933. Síðar fluttist hún til Reykjavíkur og vann þar við barnakennslu og sauma. Oft hjálpaði hún til á heimilum kunningja sinna hér fyrir austan, þegar þörf var á. Hún dó 31. október 1971 I skrifum Guðríðar má glöggt greina helstu einkenni hennar, ást á sveitinni sinni, greind og mannkærleika. Hún hefur haft mjög gott vald á máli og stíl og næmt auga fyrir því, sem hefur menningargildi og er skemmtilegt. Jafnan var grunnt á kímnina hjá henni, og hún var hvers manns hugljúfi. Þegar félag Biskupstungnamanna í Reykjavík hætti starfi árið 1981 voru Biskupstungnahreppi afhentareignir þess. Meðalþeirra voru allmörgeintökaf II. ogIII. bindi af Inn til fjalla. Þar semI. bindið var ófáanlegt var ákveðið að ráðast í að ljósprenta það. Verður því nú unnt að bjóða öll þrjú bindin til sölu. Því sem inn kann að koma umfram kostnað verður varið íþágu menningarmála í Biskupstungum. Ef til vill gerir það mögulegt að halda áfram útgáfustarfi í anda Guðríðar Þórarinsdóttur. Biskupstungum í mars 1991. Arnór Karlsson. Þorfinnur Þórarinsson. Litli - Bergþór 7

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.