Litli Bergþór - 01.12.1991, Qupperneq 18

Litli Bergþór - 01.12.1991, Qupperneq 18
HVÍTÁRGLJÚFUR OG GULLFOSS. Eftir Skarphéöinn Pétursson Hvítáereittmestavatnsfall landsins. Lengd þess er um 135 km, ef talið er frá upptökum til Ölfusárósa. Vatnasvið Hvítár er nokkuð stórt og þekur um 6100 ferkm. Þarna telst reyndar með vatnasvið Ölfusár en svo heitir Hvítá síðustu 25 km til sjávar eftir að Sogið rennur í hana. Venja er að tala um Hvítá/ Ölfusá sem eitt aðalvatnsfall. Upptök Hvítáreru í Hvítárvatni sem ersjötta stærsta stöðuvatn íslands og liggur í lægð undan sunnanverðri austurrönd Langjökuls. Yfirborð þess er 29,6 ferkm og rúmmálið er 817miljón rúmmetrar. Vatniðmjókkarnokkuð til suðurs og endar í löngum mjóum vogi þar sem áin rennur úr því. Matsatriði verður að telja hvar vatnið endi og áin taki við. Hvítá verður strax mikið vatnsfall og er meðal- vatnsrennslið við upptökin 50 rúmm/sek.Eftir að hafa steypst niður Gullfoss og fram HvftárgIjúfur rennur áin niður á undirlendið þar sem hún heldur áfram að liðast allt fram til Ölfusárósa. Á vatnasviði Hvítár eru allar höfuðtegundir íslenskravatnsfalla: dragársamanberStóra- Laxá, Lindársbr. Brúaráogjökulársbr. Hvítá. En þar sem í aðalvatnsfallið renna allar gerðir telst það blandað vatnsfall. GULLFOSS og HVÍTÁRGLJÚFUR. Ég held að það leiki enginn vafi á því að Gullfoss er einn fallegasti foss landsins ef ekki sá fallegasti. Gullfoss skiptist reyndar í tvo fossa en örstutt er á milli þeirra. Sá efri er heldur lægri en nokkuð breiðari en sá neðri. Hann blasir við suðri og sést best austan ár, en strax neðan við fossinn snarbeygir áin í vestur og horfir neðri fossinn i þá átt. Er neðri fossinn mjórri en hærri og skiptir lágur gróðurlaushólmihonum ítvennt. Neðri fossinn blasir við vestan ár en fast neðan við fossinn tekur áin aftur upp aðalstefnu sína í útsuður. Vestan við fossinn liggur göngustígur niður í hvamm eða stall þar sem neðri fossinn sést mjög vel og skáhallt á þann efri. Hægt er að halda áfram ferðinni upp á klettasnös við vesturbrún efri fossins. Af henni sést efri fossinn vel og langt niður eftir Hvítárgljúfri. „Hvítárglúfur eru rúmir 3 km að lengd. Gljúfrið er víðast 40-50 metra djúpt, hæstir eru barmar þess í mynninu að austan um 70 m. Gullfoss er í tveimur þrepum, neðra þrepið er um 20 m að hæð en efra þrepið um 11 m ,þ.e.fossinnerallsum31 mhár. Meðalrennsli Hvítár í Gullfossi hefur síðustu 30 árin verið um 109 rúmm/sek, samkvæmt upplýsingum frá Sigurjóni Rist, en í mestu flóðum mun rennslið vera 2000 rúmm/sek.“ (Þ.E. Eldur í norðri, bls.443.) Af þessu má vera Ijóst að gljúfrið er ansi hrikalegt en það á sínarfallegu hliðar líka. Má þarfyrstan nefna hvamminn Pjaxa. Hann er vestan ár um 2 km fyrir neðan fossinn og fært er niður í hann þó nokkuð bratt sé. Ekki vita allir af þessum hvammi vegna þess hve illa hann sést frá veginum. Skammt neðan við Pjaxa stendur sérkennileg klettaborg sem nefnist Álfakirkja. Stærsti hvammurinn ÍHvítá er þar rétt hjá og heitir Hrútatunga. Hann er austan ár sem og Álfakirkja. JARÐLÖG, LANDMÓTUN OG ALDUR HVÍTÁRGLJÚFURS OG GULLFOSS. Eins og segir í grein Þorleifs eru jarðlög Hvítárgljúfurs og Gullfoss öll mynduð um eða uppúr miðri ísöld. Berggrunninum má skipta Litli - Bergþór 18

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.