Litli Bergþór - 01.12.1991, Page 19

Litli Bergþór - 01.12.1991, Page 19
í þrjár jarðlagasyrpur, neðst og elst er BRÚARHLAÐABREKSÍAN, mislæg ofan á henni eru svo GULLFOSSLÖGIN og efst og yngst eru HÓLA- og TUNGUFELLSLÖGIN. Brúarhlaðabreksían (bólstraberg-móberg) er líklega leifar eldfjalls eða eldhryggs sem hlaðist hefur upp ýmist undir jökli eða á auðu landi (hraunlög). Greinist hún í bökkum gljúfursins frá Brúarhlöðum og inn í mynni Hvítárgljúfurs innan Brattholts og Jaðars. Brúrarhlaðabreksían tekur á sig ýmsar myndir en mest áberandi er þó fíngert móberg sem víða er hulið gosbrotabergi og á stöku stað er hún gerð úr bólstrabergi. Nokkuð er um basalt ívaf í henni og sumstaðar hraunlög. Af segulmagnsrannsóknum má geta sér til um að Brúarhlaðabreksían sé aðeins eldri en 0,7 milljónir ára. Gullfosslögin eru nefnd þau 2 hraunlög semmyndafossbrúnirGullfosssvoogsetlögin sem liggja undir, milli og ofan á þeim í Hvítárgljúfri. Elst laganna er setlagið SA sem kemur vel fram í veggjum gljúfursins. Það er víða aðgengilegt og er það víðast völuberg en sumstaðar þó sandsteinn. Efsti hluti þessa lags er víða lítt samlímdur og hefur það eflaust átt drjúgan þátt í hröðu niðurbroti neðri fossbrúnarinnar. Ofan á setlagið SA hefur síðan runnið basalthraunlagið B1, neðra fossbrúnarlagið. Það kemurfram í báðum veggjum gljúfursins og allt inn í neðri brún Gullfoss. Neðra fossbrúnarlagið er feldspatdílótt grágrýti að gerð og víða straumflögótt og reglulega stuðlað. Þykkt þess er nokkuð breytileg eða 12-20 m, í Gullfossi er það um 12,5 metrar. Milli B1 neðra fossbrúnarlagsins og efra fossbrúnarlagsins B2 liggur setlagið SB og sjást þverskurðir í það víða vel í gljúfrinu. Setlagið er nokkuð misþykkt eða 4-12 m. Neðstihluti SB er víðast gerður úr leirsteins eða hnullungabergi. Miðhluti lagsins er víða gerður úr silt- eða sandsteini en efsti hlutinn erúrvölubergisem ervíðaansiauðgræfurog laus í sér. Ofan á setlagið SB rann svo annar mikill hraunstraumur sem efra fossbrúnarlagið er myndað úr. Basaltlagið er kallað B2. Er lagið grágrýtiskennt og allvel stuðlað. í veggjum Hvítárglúfurserþað um 5-15 m þykkt en við Gullfoss um 10 m. Lagið B2 myndar undirlag hinnafornu eyra austan Hvítár- gljúfurs og þaðan má rekja það inn að mynni Búðarár.Til austurs má rekja þaðtil Dalsdragaog upp á Hálsa allt suður til Svartár. Ofan á B2 leggst svo 2-7 m þykkt setlag , SC. Setlag þetta er gert úr völubergi, þó er víða í því siltsteinn. Hóla- og Tungufellslögin eru yngstu jarðmyndanir berggrunnsins við Hvítárgljúfur. Yngstu lög berggrunnsins vestan Hvítárvestur að Tungufljóti eru gerð úr beltuðu grágrýti sem víða eru vel Ólivín- og Feldspatítót (Hólalög). Austan Hvítár lítur bergið allt öðruvísi út, þar er bergið mjög þétt og glerkennt og kubbastuðlað, í einu lagi Tungufellslögin. Af þessu má draga þá ályktun að Hólalögin Grágrýtislög Völuberg Jökulberg Sandsteinn Litli - Bergþór 19

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.