Litli Bergþór - 01.12.1991, Page 29

Litli Bergþór - 01.12.1991, Page 29
áþrjávegu. Nægursnjórvartil þessaðhlaða varnarvegg og hnoða dágott magn af snjókúlum. Við þetta unnum við lengi dags, en þávarfariðað rigna. Við urðum blautirog kaldirog höfðum engantil þessað berjastvið. Að lokum ákváðum við að fara heim í skóla, hvað svo sem biði okkar þar. Á heimleiðinni ræddum við það klandur sem við höfðum komið okkur í. Niðurstaðan var sú að í framtíðinni skyldum við reyna að halda frið við alla menn. Um kvöldið bauð Ásgerður upp á kakó og heitar kleinur. Við Gísli þóttumst vita hvað biði okkar undir borðhaldinu. Skárra var að vera nálægt skólastjóranum heldur en að fá skammarræðunayfiröll skólasystkinin. Sæti skólastjóransvarviðendann.svoviðsettumst honum hvor á sína hönd. Allir voru hljóðir en skólastjórinn ótrúlega rólegur. Lengi vel sagði hann ekkert og biðin var svolítið erfið. Allt í einu fór stjóri að segja okkur frá kvæði sem hann hafði heyrt fyrr um daginn og væri eftir Stein Steinarr. Hann ætlaði bráðum að setja okkur fyrir að læra kvæðið - kannski vildum við lærafyrstu vísuna strax. Ættum við að fara í kapp hvert okkar væri fyrst að læra hana? Allir voru til í það. Skólasystkini mín voru svo hugulsöm að leyfa mér, aðalsakamanni, að vera fyrstum aðlæravísuna. Skólastjórinn hrósaði mérog sagði að ég gæti verið fljótur að læra. Sáttin var innsigluð. Kópavogi, 31. október 1991. Guðni Karlsson. BÆNDA SKRIF- STOFA BLAÐIÐ & BLAÐSINS ER NÚ í LANDSB Y GGÐIN EINARS- HÖFNÁ SKELEGGUR MÁLSSVARI LANDSBYGGÐAR OG BÆNDA. BLAÐ SEM ÆTTI AÐ VERATILÁ HVERJU SVEITAHEIMILI. EYRAR- BAKKA ÁSKRIFTARSÍMINN ER 98-31376. BÆNDASYNIRHF. SKÓBÚÐ SELFOSS rSPDRTBÆR’ Austurvegi 34 - sími 21289 Austurvegi 11 SELFOSSI Sími 98-21660 Leitið ekki langt yfir skammt Stöndum saman í skóm því það er frá nógu dýrt samt Skóbúð Selfoss Litli - Bergþór 29

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.