Litli Bergþór - 01.07.1992, Blaðsíða 7
Hvað segirðu til?
Hér verður greint frá því helsta sem fréttnæmt telst
úr sveitinni frá miðþorra til fardaga.
Heilsufar hefur verið framur gott, þótt hvimleiðir
farandkvillar hefi hrjáð ýmsa.
Tíðarfarið hefur líka verið gott, einkum með tilliti til
möguleikaágreiðumferðumumvegi. Veturogsumar
frusu ekki saman en nokkurt frost var, einkum um
nætur, á fyrstu vikum sumars. Fyrri hluti maí var
fremur kaldur en hinn síðari hlýr og úrkomusamt hefur
verið í vor. Grasspretta er á góðum vegi og líkur á að
sláttur geti hafist snemma.
Menningarlíf hefur verið með talsverðum blóma.
Skálholtskórinn æfir reglulega a.m.k. einu sinni í viku.
Hann flutti Messu eftir Schubert með Söngfélagi
Þorlákshafnarbæði í Skálholtskirkju og Þorlákskirkju.
Söngkór Miðdalskirkju og Skálholtskórinn héldu
söngskemmtun í Aratungu 10. maí. Motettukór
Hallgrímskirkju og Bachsveitin í Skálholti fluttu
Jóhannesarpassíu eftir Bach í Skálholtskirkju
laugardaginn fyrir Þálma. Ungmennafélag Gnúpverja
sýndi Músagildru Agöthu Christie í Aratungu í mars.
Árnesingakórinn í Reykjavík hélt tónleika í Skálholti
30. maí. Á tónleikum í Aratungu í byrjun júní lék
Hildigunnur Halldórsdóttir á fiðlu og Michael Munson
á píanó og drengjakór Dómkirkjunnar í Uppsölum
söng í Skálholtskirkju 10. júní.
Leikdeild Umf. Bisk. setti upp leikritið „Þú ert í blóma
lífsins fíflið þitt“ með nemendum í efstu bekkjum
Reykholtsskóla.
símstöðvar í Reykholti.
Nú er risið annað hús við Bergholt með tveimur
kaupleiguíbúðum og einni byggðri af einstaklingi.
Verðurþaðvæntanlegatilbúiðsíðsumars. A.m.k. þrjú
önnur íbúðarhús eru um það bil fokheld.
í Bergholti hefur verið tekin í notkun félagsaðstaða.
Er það aðstaða fyrir mötuneyti, ýmlskonar
félagsstarfsemi, föndur og heilsurækt.
Vestan við Gullfoss hefur verið byggt hús við veg
þann er lagður var um austanverða Selmýri í haust og
er syðsti hluti Kjalvegar, F 37. Á það að húsa salerni
fyrir gesti.
Náttúruverndarkamar í Selmýri.
Nefna mætti þrjú mál, sem töluvert hafa verið til
umræðu hér í vetur bæði á fundum og manna á meðal.
Eru það samþykkt um hundahald, stefna Landgræðslu
ríkisins um beit á afrétti og f rumvarp umhverfisráðherra
um skipulag hálendisins.
Gunnar Sveinbjörnsson á Hvítárbakka, sem hefur
búið síðustu ár í litlu húsi þar sem hann kallaði Halakot,
lést í febrúar. Bræður tveir frá Galtalæk, Guðmundur
og Hermann Egilssynir, létust í vetur og vor. Allir voru
þessir þrír jarðaðir í Bræðratungu.
A.K.
Barnakór Biskupstungna og
Grensáskór við messu.
Barnakór Biskupstungna lauk vetrarstarfi sínu með
því að syngja við messu í Skálholti 24. maí og fékk þá
Barnakól Grensáskirkju í heimsókn.
Ýmislegt fleira mætti telja af menningarviðburðum
svo sem námskeið bæði í dansi og reiðmennsku.
Helstu tíðindi af samgöngumálum eru lagning
olíumalaráBiskupstungnabrautfráBrúarárbrúog upp
fyrirSpóastaðasmalaskála, uppbyggingsömu brautar
á móts við Reykholtshverfi og tenging stafrænnar
Litli - Bergþór 7