Litli Bergþór - 01.07.1992, Qupperneq 22
Umhverfis jörðina
8. þáttur
Ferðasaga í nokkrum þáttum,
eftir Geirþrúði Sighvatsdóttur á Miðhúsum.
ENN UM ÁSTRALÍU
Það er6. nóvember 1982 og við Anna erum komnartil
bæjarins ALICE SPRINGS, inn í miðri eyðimörk
Ástralíu, í atvinnuleit. Og þarna átti ég eftir að vinna
næstu 3 mánuðina við hreingerningar og
framreiðslustörf á veitingahúsi og börum. - Það er
kannski rétt aðtakaþaðframaðmargumræddáströlsk
eyðimörk líkist ekki mikið Sahara eða öðrum gulum
sandauðnum, sem við tengjum yfirleitt eyðimörkum.
Eyðimörk Ástralíu er mörg þúsund ferkílómetrar af
skrælþurrum rauðleitum jarðvegi sem víða er þakinn
gisnum kirkingslegum runnagróðri. Sumsstaðar eru
þurrsaltvötn og “ár”, sem ekki sést vatn í nema kannski
einu sinni til tvisvar á ári ef heppnin ermeð, ensvogeta
liðið mörg ár án þess að deigur dropi komi úr lofti.
Alice Springs, eða ALICE eins og bærinn er yfirleitt
kallaður,ereinkennilegurstaður. Þaðeru 1200-1500
km til næsta byggðakjarna af sömu stærð, sama í
hvaða átt er farið. Bærinn liggur í skjóli við lágan
rauðan fjallgarð og á tilvist sína að þakka vatnsbólum
sem þar eru við jarðvegsfellingarnar. í gegnum bæinn
“rennur” Todd-áin, sem að vísu er þurr mestan part
ársins, nemaþegar húnflæðiryfirbakkasínatvisvartil
þrisvar á ári eftir stórrigningar. Þetta er græn vin í
eyðimörkinni, himinninn er blár mestallt árið, hitinn 40
- 50 gráður, jörðin rauð og sólsetrin fjólublá. Þarna er
blómskrúð og trjágróður - og froskar og brunnklukkur
í klósettunum. Alice Springs er lítið samfélag, um
30.000 manns, þar sem allir þekkja alla, jafnvel
ferðafólkið, sem sífellt kemur og fer í atvinnuleit. Það
leið heldur ekki á löngu áður en við Anna urðum
“frægar” fyrir okkar skandinavísku framhleypni, svo
sem að tala við karlmenn eins og jafningja og taka í
hendina á vinnuveitendum. - En þrátt fyrir íslenskan
kjaftamóral reyndust Alice-búar umburðarlyndari en
margir aðrir gagnvart furðufuglum og
atvinnuleyfislausum puttalingum í atvinnuleit, enda
sjálfir fáséð samsafn af skrítnum karakterum, sem
kunna að meta að fólk bjargi sér. Og aldrei var ég
spurð um atvinnuleyfi meðan ég vann þar. - Reyndar
var ég líka passalaus til að byrja með, því eins og ég
sagði frá í 6. þætti, fylltist passinn minn af
vegabréfsáritunum í Singapore og ég hefði ekki komist
útúrÁstralíu nemafánýjanpassa. En íslensksendiráð
eru ekki á hverju strái og ekki í Ástralíu, svo ég tók það
til ráðs að senda passann minn, ásamt mynd, heim til
lögreglustjórans í Reykjavík og biðja um nýjan passa.
Að vísu gat hann ekki gefið út nýjan passa að mér
fjarverandi, en af góðsemi sinni bætti hann bara nýjum
blaðsíðum í gamla passann og sendi mér hann um
hæl, og það dugði mér það sem eftir var ferðarinnar.
Eitt er það sem setur mikinn svip á Alice, en það eru
frumbyggjarnir, sem eru þar fleiri og í verra ástandi en
maður á að venjast í öðrum borgum Ástralíu. Sorglegt
dæmi um uppleystaog rótslitnamenningu. Þarna ráfa
þeir um göturnarog uppþornaðan árfarveginn, skítugir,
illalyktandi, rifnirogtötralegir, meiraog minnadrukknir
með reifað höfuð, fót eða handlegg, veifandi sínum
tveggjalítrahvítvínsflöskum. Konurnaryfirleittakfeitar
og mennirnir með bjórvömb. Slagsmál, rifrildi - og
barinn aðal áhugamálið. Þeireru atvinnulausir, enginn
vill fá frumbyggja í vinnu nú í kreppunni, því þeir hugsa
öðruvísi en hvítir. Stundvísi, ábyrgð og skyldur eru
loðin hugtök, - þegar þeir hafa unnið sér inn dálítinn
pening sjá þeir enga ástæðu til að púla meira í bili og
hverfameðanþeireyðaaurunum. Kannski íbrennivín,
kannski kaupaþeirsérbílhræogbjóðaallrifjölskyldunni
í bíltúr út í eyðimörkina þar til druslan bilar eða verður
bensínlaus. Þeir vilja helst láta hverjum degi nægja
sína þjáningu og eiga erfitt með að aðlagast vestrænni
menningu. Hugsunarháttur þeirra, trú og
verðmætaskyn er svo frábrugið okkar. Áströlsku
frumbyggjarnir hafa semsagt, eins og eskimóarnir og
indjánarnir; tapað menningu sinni og verða að aðlagast
okkar vestrænu menningu, sem öllu tröllríður, hvort
sem þeim líkar betur eða verr. Og rótleysið leiðir til
óhamingju og drykkjuskapar. - Þó þeir vildu hverfa til
baka til gamalla lifnaðarhátta, er það hægara sagt en
gert eftir kynni af öðru, enda ekki að miklu að hverfa
nema eyðimörkinni. Þeir hvítu hafa hirt af þeim allt
nýtilegt land og í staðinn látið þeim í té
atvinnuleysisbætur, sem eytt er í vitleysu, og hús, sem
eru vanrækt og jafnvel notuð í brenni á veturna. - Og
allt þetta kyndir undir kynþáttahatrinu. -
Auðvitað lifa þó ekki nærri því allir frumbyggjar í
strætinu, það fer bara minna fyrir þeim, sem hafa
aðlagast reglubundinni vinnu og fjölskyldulífi. Eins og
ævinlegaeruþað svörtusauðirnirsemmerkjastofninn.
Atvinnuleysi var mikið í Ástralíu þegar við vorum
þarna, ein 12% var okkur sagt. Það var því kannski
skiljanlegt að þeir hvítu, sérstaklega þeir sem voru
atvinnulausir, sæju ofsjónum yfir þeim skattpeningum
sem ausið var í frumbyggjana og fyndust þeir ekki fá
sömu fyrirgreiðslu og þeir. Kvöld eftir kvöld, viku eftir
viku, gat maður hlustað á nágranna okkar í húsvagni
nr. 59 og drykkjufélaga þeirra, þar sem þeir sátu fyrir
utan húsvagninn og sögðu ótrúlega hatursfullar sögur
Litli - Bergþór 22