Litli Bergþór - 01.12.1992, Blaðsíða 27
ákveðin kl. 11. Smyrja þurfti nesti, pakka niður og
ganga frá í bílínn, skrúbba húsið og þessháttar.
Tímaáætlun stóðst og kl. 11 var lagt af stað heim á
heimfúsum hrossum. Áð var á hefðbundnum
stöðum. Gott var vatnið í Brunnalækjum sem
forðum. Lá leið okkar bílveginn niður að Gullfossi.
Urðum við þar
skotspónar
myndavélaaugna
túrhestanna, og
grun hef ég um að
sumir hafi sett upp
sparibrosið. Við
Brattholt kvaddi
Hrafnhildur hópinn,
rauð og sælleg. Við
hin fórum austan við
fjallið og niður
Eystri-Tunguna að
nýju brúnni.
Fækkaði í hópnum
eftir því sem neðar dróg. Við Hrosshaga kvaddi ég
og mitt fólk Iðufólkið um 6 leytið að kveldi. Má því
segja að þau sem lögðu fyrst af stað voru síðust
heim. Ferðin heppnaðist í alla staði vel. Undan
duttu nokkrar skeifur, sem undir fóru aftur, slitin
reiðver og fleira í þeim dúr. Talið var að ein hryssa
hafi fengið hrossasótt.
Einn knapi fékk byltu
og haltraði lítið eitt. En
margir sólbrunnu og
áttu í því um tíma. Að
lokum þakka ég öllum
ferðafélögunum
samveruna og nefndin
þakkar öllum sem
gerðu ferðina
mögulega.
Með
hestamannakveðju,
Helgi Guðmundsson.
Áð og matast í Selhögum í blíðskaparveðri.
1 vinn. á kr. 25.000.000, 4 vinn. á kr. 5.000.000. 6 vinn. á kr. 10.000.000, 24 vinn. á kr.2.000.000, 17 vinn. á kr. 5.000.000, 68 vinn. á kr. 1.000.000. 56 vinn á kr
Ef þú ætlar að spila í
HAPPDRÆTTI til vinnings ...
skaltu athuga vinningsfilutfallið
Umboðsmaður
Sveinn A. Sæland
Espiflöt Bisk.
Símar: 68813 og 68955
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegcist til vinnini’s
1
. á kr.2.000.000. 17 vinn. á kr. 5.000.000, 68 vinn. á kr. 1.000.000, 56 vinn. á kr. 1.250.000, 224 vinn. á kr. 250.000, 266 vinn. á kr. 375.000, 1.064 vinn á kr
Litli - Bergþór 27
kr. 250.000, 266 vinn. á kr. 375.000. 1.064 vmn.