Litli Bergþór - 01.05.1994, Page 13
STEFNUSKRÁ
K-lista
Samstarfshópur um sveitarstjómarmál hefur gegnt forystuhlutverki í hreppsnefnd á þessu
kjörtímabili sem einkennst hefur af miklum framkvæmdum. Hreppurinn hefur staðið fyrir
byggingu tíu íbúða í Reykholti. Lokið var við byggingu félagsrýmis fyrir aldraða í Bergholti.
Byggt var sæluhús í afrétti. Slökkvistöð er í byggingu. Lögð var vatnsveita úr Bjamafelli. Unnið
hefur verið að gatnagerð og götulýsingu.
Fjármál:
Gæta verður aðhalds og hófsemi við fjárfestingar
meðan sveitarsjóður er að jafna sig eftir miklar
fjárfestingar á liðnum árum og vegna minnkandi
tekna sveitarfélaganna.
Atvinnumál:
Stuðla að aukinni uppbyggingu atvinnutækifæra í
sveitarfélaginu án þess að taka beinan þátt í
rekstrinum. Vinna markvisst að aukinni
ferðaþjónustu, meðal annars með því að stuðla að
aukinni samvinnu ferðaþjónustuaðila í sveitinni.
Skólamál:
Við munum ótrauð takast á við yfirfærslu
grunnskólans til sveitarfélagsins og leggjum áherslu
á að sem best verði að honum búið.
Aðstaða við leikskólann verði bætt.
Félagsmál:
Almenn félagastarfsemi, æskulýðs og
menningarstarf verði sem fyrr í höndum frjálsra
félaga. Verði þeim séð fyrir starfsaðstöðu og auk
þess styrkt eftir því sem þörf er á og ástæða þykir til
hverju sinni.
Samgöngumál:
Lögð verði áhersla á lagningu bundins slitlags á
aðalvegi sveitarinnar, stuðlað að byggingu nýrrar
brúar á Hvítá við Bræðratungu. Þrýst verði á með
viðhald malarvega.
Umhverfismál:
Gerð verði úttekt á frárennslismálum. Vegna
sívaxandi kostnaðar við förgun sorps verði leitað
leiða til hagkvæmrar lausnar. Unnið verði að
landgræðslumálum í samvinnu við nýstofnað
landgræðslufélag. Staðinn verði vörður um afnot og
yfirráð sveitarfélagsins yfir afréttinum.
Samstarfsverkefni:
Unnið verði að samstarfsverkefnum með
nágrannasveitarfélögum, auka og styrkja það
samstarf sem þegar er fyrir hendi.
Verkefni framundan:
Lagningu vatnsveitu verði framhaldið eftir því sem
framlög til hennar fást. Lokið verði við byggingu
slökkvistöðvar. Stefnt verði að byggingu
íþróttahúss eftir því sem fjárráð leyfa og framlög fást
til verksins.
K-Iistinn býður nú fram í þriðja sinn. Til samstarfs hefur komið nýtt fólk með ný
sjónarmið, en stefna hópsins er að láta verkin tala eins og á síðasta kjörtímabili.
Litli - Bergþór 13