Litli Bergþór - 20.06.1995, Síða 10
/
Leikskólinn Alfaborg
Frá opnu húsi í maí í leikskólanum að
loknu vel heppnuðu starfsári.
í haust fórum við í leikskólanum í fjöruferð að
Eyrarbakka. Markmiðið var að börnin kynntust
fjörunni, lífríki hennar og sjávar. Börn og fullorðnir
tíndu skeljar, kuðunga, krabba, þang, glerbrot, bein,
spýtur og steina í fjörunni. Þessi efniviður var síðan
nýttur í ýmis verkefni. Skeljar, kuðungar og glerbrot
voru límd á blöð og pappadiska.
Einnig voru unnin stærri verkefni á pappaspjöld,
spónaplötur og pappakassa þar sem búin var til
eftirlíking af hafi. Börnin klipptu út pappírsfiska sem
settir voru í „hafið“ og einnig gerðu þau stærstu
fiska úr trölladeigi.
Búnir voru til bátar úr mjólkurfernum og fiskar úr
pappírsdiskum og pappamassa. Börnin vatnslituðu
litla pappakassa og límdu á þá skeljar og kuðunga
og gáfu foreldrum sínum í jólagjöf.
Skoðaðar voru bækur um hafið og ýmsar
fiskamyndir. Einnig lásum við sögur sem tengdust
þessu efni, teiknuðum, sungum söngva og lékum
fiska með leikrænni tjáningu.
Á haustdögum var vinnuhelgi fyrir foreldra í
leikskólanum. Þá var settur upp kastali með
rennibraut sem Kvenfélag Biskupstungna gaf
leikskólanum af mikilli rausn. Ber að þakka
Kvenfélaginu fyrir gott framtak. Einnig var sett niður
vegasalt, sem Biskupstungnahreppur keypti,
jafnvægisslá og staurar til að ganga á.
Síðar voru smíðuð fjögur gormadýr, (hestar) og
fest niður á útileiksvæðinu. Ég vil nota tækifærið og
þakka öllum sem lögðu af mörkum vinnu við þessar
framkvæmdir.
Við fórum upp í Haukadal fyrir jólin og vorum svo
heppin að hitta þar jólasvein sem gaf okkur jólatré.
Hann söng og dansaði í kringum tréð með okkur úti
í snjónum og gaf börnunum mandarínur. Síðan
fengum við að drekka í gistiheimilinu hjá Þóri og
Þóreyju.
Haldin voru litlu jól og sungið og dansað kringum
jólatréð frá jólasveininum. Hilmar Örn Agnarsson
spilaði undir sönginn og annar jólasveinn kom í
heimsókn.
Eftir áramót var þemavinna með sögur, ævintýri
og leikræna tjáningu. Einnig var mikið dansað og
voru þá m.a. notaðir dansar sem við starfskonur
leikskólans, Ásta Rut Sigurðardóttir, Hólmfríður
Bjarnadóttir, Sigrún Elfa Reynisdóttir og Svanhildur
Eiríksdóttir lærðum á námskeiði hjá Soffíu
Vagnsdótturtónmenntakennara. Börnin hlustuðu á
sögur og léku þær og teiknuðu. Búnar voru til
brúður og leikið með þær. Börnin sömdu sögur og
þær voru túlkaðar í ýmsum myndum.
Leikskólinn stóð fyrir sýningu á brúðuleikriti sem
Hallveig Thorlacius sýndi í Aratungu. Við buðum
nærliggjandi sveitum á sýninguna og voru viðtöku
mjög góðar.
Öskudagsskemmtun var haldin í Aratungu.
„Kötturinn" (popppokar) var sleginn úr tunnunni og
dansað og sungið við undirleik Hilmars. Börn og
fullorðnir mættu í grímubúningum og allir skemmtu
sér hið besta. Nokkrar mæður léku leikritið um
geiturnar þrjár við góðar undirtektir.
Opið hús var haft einn góðviðrisdag í maí. Þar
voru til sýnis myndir og önnur verkefni eftir börnin.
Þau sungu úti og léku leikrit fyrir gestina.
Foreldrafélagið sá um hlutaveltu og grillaði pylsur
og lagaði kaffi.
Farið var í sauðburðarferð að Heiði og upp að
Tjörn og var það vorferðalagið í ár.
Hér hefur verið farið yfir það helsta sem hefur
verið á dagskrá hjá okkur í vetur. Ég vona að
þessar línur hafi verið til nokkurs fróðleiks.
Svanhildur Eiríksdóttir.
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum. um öll leyfi fyrir heimtaug að
Efnissala og varahlutaþjónusta. sumarhúsum og lagningu raflagna.
Fljót og góð vinna.
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
Heimasími 486-8845
Verkstæði sími 486-8984
Bílasími 853-7101
Litli - Bergþór 10