Litli Bergþór - 20.06.1995, Síða 33

Litli Bergþór - 20.06.1995, Síða 33
Frá Lionsklúbbnum Geysi Lionsklúbburinn Geysir hefur nú starfað í rúman áratug. Hann var stofnaður 8. aprfl 1984 og voru stofnfélagar 25. I stjórn þess starfsárs sem nú er að enda eru: Kristófer Tómasson, formaður, Kristján Valur Ingólfsson, ritari og Gylfi Haraldsson, gjaldkeri. A starfsárinu hefur fjölgað verulega í klúbbnum; Fimm nýir félagar bættust í hópinn og sá sjötti bættist við með flutningi frá Lkl. Blönduóss, þannig að nú eru 22 skráðir félagar. Fjáröflun klúbbsins hefur verið með hefðbundnu sniði. Seldar voru perur, pennar og símaskrár fyrir jólin og að sjálfsögðu tók klúbburinn þátt í sölu rauðu fjaðrarinnar. Það er ánægjulegt hversu vel fólk tekur á móti klúbbfélögum í söluferðum og raunar stórkostlegt, því að væntanlega hefur hver nóg með sig og óskir um stuðning koma úr mörgum áttum. Lkl. Geysir vill því á þessum vettvangi koma á framfæri innilegri þökk til allra sem studdu klúbbinn með framlagi á liðnu starfsári. Klúbburinn styrkti á árinu kaup á bamavigt fyrir sjúkrahúsið á Selfossi, en það var samstarfsverkefni klúbbanna á svæðinu. Klúbburinn styrkti starfsemi Ungmennafélagsins og lagði framlag til söfnunar vegna snjóflóðanna í vetur. Þá gaf klúbburinn eldri bekkjum Reykholtsskóla myndband með fræðsluefni um fíkniefni, en yngri bekkjum myndabækur um eldvamir. Þá hefur líknarsjóður klúbbsins verið efldur, en alltaf er þörf á slíkum sjóði vegna óvæntra viðfangsefna. Til jafnaðar hefur annar hver fundur starfsársins verið fræðslufundur um ákveðið efni. Fundarefnin hafa verið mjög fjölbreytt og má nefna sem dæmi fíkniefni, gigt, umhverfis- og ferðamál, og málefni Skálholts. Árlegt konukvöld var haldið í Uthlíð í nóvember. Eitt aðal baráttumál klúbbsins frá upphafi hefur verið uppgræðsla á Haukadalsheiði. Hafa margar ferðir verið famar á þær slóðir, og er sú næsta fyrirhuguð í lok júní. Næsta stjóm er þannig skipuð: Bjami Kristinsson, formaður, Jens Pétur Jóhannsson, ritari, Georg Fransson, gjaldkeri. Kristján Valur Ingólfsson, ritari. uuuuunuum wiiwmnwmwwmimmu Veitingafíúsiö Aratunga Opið atJÁri daginn alla dagaj sumar. Líonsmenn á fundi: Efri myndf.v. Bjarni, Georg, Skúli og Magnús Neðri myndf.v. Sr. Sigurður Sigurðsson, Magnús,Guttormur, Jens Pétur, Kristófer og Kristján Valur. $ • Rómantjl&ur kvöldverður, sP & Nr< & & $ ko & jS' Áý/. **r& & ‘A4 ■ 'áfrsy. hUt % Sími: 486 8811 Sími: 486 8810 Fax: 486 8709 % TíWalið fyrir ættarmót og einkasamkvæmi. Litli - Bergþór 33 MAIiiMAMi

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.