Litli Bergþór - 01.12.1995, Qupperneq 7
Hreppsnefndarfréttir
Vatnsveitu Biskupstungna. Stofnlagnir I: Drumboddsstaðir 900.000
Bergsstaðir 342.000
Hrísholt 323.000
Holtak. Hjarðarl. 304.000
samtals: II' 1.869.000
II. Kjarnh. Einholt 1.440.000
Múli 570.000
samtals: 3.879.000
stofngjöld f1.780.0001
mism. 2.099.000
Samþykkt að senda sumarhúsaeigendum á þessu
svæði hugmyndir að kostnaðarskiptingu veitunnar.
Lagt fram bréf dags. 13. júní 1995 undirritað af
Sveini Skúlasyni, Hjalta Ragnarssyni, Sigurbjörgu
Snorradóttur og Sveini Skúlasyni f.h. Magnúsar
Jóhannessonar þar sem farið er fram á kalt vatn úr
sameiginlegri veitu hreppsins.
Ákveðið að gera kostnaðaráætlun fyrir verkið.
Lagt fram erindi frá Veiðifélagi Hvítárvatns
sem biður um aðstoð við fjármögnun viðbyggingar
við húsið í Fremstaveri. Einnig var lögð fram
teikning af byggingunni. Samþykkt að veita félaginu
liðsinni.
Ákveðið var að leita eftir samstöðu
jarðaeigenda um að teknar verði upp girðingar í
Reykholti, enda sé svæðið friðað fyrir hrossabeit og
svæðið girt í heild.
Lagt fram bréf dags. 29. maí 1995 undirritað af
Skúla Sveinssyni og Þorsteini Þórarinssyni varðandi
Yleiningu. Oddvita falið að svara bréfinu.
Hitaveita Reykholts óskar eftir það fá aðstöðu
fyrir lagerpláss hjá hreppnum. Oddvita falið að
vinna að lausn málsins.
Hreppsráðsfundur 27. júní 1995.
Skipulag við Norðurbrún. Þétur Jónsson mætir
og gerir grein fyrir breytingu á deiliskipulagi við
Norðurbrún. Ábúendur á Norðurbrún lögðust gegn
því í makaskiptum við hreppinn að íbúðarlóðir
kæmu beint framundan bæjarstæði þeirra. þessi
nýja tillaga kemur til móts við þær kröfur. Gísla var
falið að ganga aftur til samninga við eigendur
Norðurbrúnar og auglýsa síðan breytt deiliskipulag.
Beiðni Guðna Lýðssonar um stækkun bílskúrs.
Kynnt var álitsgerð Réturs vegna þessa. Samþykkt
var að leyfa ekki stækkun vegna aukinna krafna um
brunavarnir o.fl. eins og áður er getið í fundargerð
hreppsráðs 23. maí.
Bréf frá sýslumanni 31.5.1995 vegna
umsóknar Kristjáns Vals Ingólfssonar um leyfi til að
reka gististað með veitingarekstri í Skálholtsskóla.
Samþykkt af hálfu hreppsráðs.
Bréf frá sýslumanni dags. 13. 6.1995 vegna
umsóknar um endurnýjun á fyrra vínveitingaleyfi í
Réttinni í Úthlíð. Samþykkt svo framarlega sem
jákvæð umsögn fáist hjá félagsmálanefnd sem fer
með áfengismál.
Bréf Náttúruverndarráðs dags. 13. júní vegna
sölutjalds við Gullfoss. Ráðið heimilar fyrir sitt leyti
uppsetningu tjaldsins svo framarlega sem ruslahirðu
verði gætt vel og ekki sett upp nein skilti.
Afrit af bréfi Ferðamálaráðs til Njarðar Jónssonar
dagsett 20. júní kynnt.
Kaupsamningur v/Ljósalands. Kaupsamningur
þar sem Sigurbjörg Steindórsdóttir selur Friðriki
Svani Oddssyni garðyrkjubýlið Ljósaland á kr.
8.500.000,-. Hreppsráð leggur til að ekki verði neytt
forkaupsréttar.
Málefni Yleiningar.
Gísli lagði fram drög að nauðasamningi fyrir
Yleiningu þar er farið fram á heimild af hálfu
Biskupstungnahrepps til nauðasamnings.
Oddviti hefur þegar undirritað beiðnina og
samþykkir hreppsráð það.
Að öðru leyti yfirfór oddviti stöðu Yleinginar og
aðdraganda þessarar uppákomu.
Hreppsnefndarfundur 18. júlí 1995.
Fundargerð hreppsráðs 27. júní. Fundargerðin
samþykkt.
Málefni Yleiningar. Oddviti fór yfir stöðu
Yleiningar. Byggðastofnun hefur verið gert tilboð
um að greidd verði upp ábyrgð að láni byggðasjóðs
að upphæð kr. 15.000.000. Hlutur Biskupstungna-
hrepps er 31,9%. Krafa Byggðasjóðs er kr.
22.424.577,61.
Bréf Elínar Erlingsdóttur. Lagt fram bréf dags.
16. maí 1995 frá Elínu Erlingsdóttur varðandi
bæklinginn „Uppsveitir Árnessýslu".
Vísað til ferðamálafulltrúa Biskupstungna.
Vatnsveitan. Lögð var fram gróf kostnaðar-
áætlun fyrir fjóra áfanga vatnsveitu, Drumbodds-
staða-, Kjarnholta-, Holtakota- og Tungugrein.
Samþykkt að fara yfir kostnaðaráætlun með Óttari
Geirssyni og leita tilboða í efni og ákveða
framhaldið með hliðsjón af því.
Bréf Landgræðslu ríkisins. Lagt fram bréf frá
Landgræðslu dags. 26. júní þar sem kynnt er
fyrirhuguð hækkun vatnsborðs við Hagavatn.
Samningur við Sorpstöð Suðurlands. Lagt
fram bréf dags. 23. júní frá Sorpstöð Suðurlands þar
sem tilkynnt er að stjórn Sorpstöðvar Suðurlands
hafi samþykkt Biskupstungnahrepp sem fullgildan
aðila að Sorpstöð Suðurlands. Meðfylgjandi er
samningurinn undirritaður af báðum aðilum.
Lagt fram bréf dags. 5. 7.1995 undirritað af Jóni
Rögnvaldssyni aðst. vegamálastjóra um lagningu
gangstétta í Laugaráshverfi. Samþykkt var að óska
eftir viðræðum við Vegagerð ríkisins um frágang
vegarins.
Önnur mál.
Oddviti sagði frá viðræðum við jarðeigendur um
_______________________ Litli - Bergþór 7