Litli Bergþór - 01.12.1995, Blaðsíða 9
Hreppsnefndarfréttir
Þrjár fundargerðir Sorpstöðvar Suðurlands.
Fundargerðir stjórnar frá 28.9. - 29.9. 1995 og
fundargerð aðalfundar 25.9.1995 þar sem m.a. var
ákveðin gjaldskrá v/1995. Frá áramótum verður
sorpið vegið og greitt skv.því.
Bréf Samb. ísl. sveitarfélaga frá 20. 9.1995 þar
sem kynnt eru lög um grunnskóla varðandi
einsetningu skóla. Óskað er eftir upplýsingum um
rými í skólanum. Ákveðið að senda skólastjóra og
skólanefnd bréfið með ósk um að þeir sendi
umbeðnar upplýsingar til Samb. ísl. sveitarfélaga.
Hugmynd og teikning Péturs H.Jónssonar v/
Slakka í Laugarási, en óskir eru um frá eigendum
Slakka að fá meira rými en þau hafa yfir að ráða í
dag vegna dýragarðs og ferðaþjónustu. Oddvita
falið að vinna málið áfram.
Kynnt hugmynd að bréfi oddvita til
Skipulagsstjóra ríkisins þar sem óskað er
eftir að Skipulagsstjóri taki þátt í kostnaði v/
endurskoðunnar aðalskipulags Reykholts 1989-
2009. Samþykkt.
Bréf SASS dags. 25.9.1995 kynnt um
starfsemi Fræðsluskrifstofu Suðurlands.
Afrit af bréfi Sigurðar Sigurðssonar, dýralækni
á Keldum, frá 22.9.1995 lagt fram þar sem til mála
kemur að leyfa Hinrik á Bóli að kaupa huðnukið og
hafurkið frá Geldingaá.
Erindi Elínborgar Sigurðardóttur til
hreppsnefndar frá 24.9.1995 þar sem hún
óskar eftir styrk til námsferðar til U.S.A. Samþykkt
að leggja til við hreppsnefnd að hún fái kr. 50.000.-
í styrk.
Deiliskipulag Skálholtsstaðar. Lögð fram tillaga
Mannfreðs Vilhjálmssonar og Reynis Vilhjálmssonar
frá ágúst 1995 til kynningar. Meðfylgjandi var
samþykkt kirkjuráðs frá 20.9.1995 v/ skipulags-
tillögunnar.
Lagt fram bréf frá SASS dags. 19.9.1995 vegna
fyrirhugaðs málþings á Hellu laugardaginn
14.10.1995 um málefni grunnskólans.
Fundur var á Hótel Geysi þar sem ræddir voru
möguleikar og hugmyndir um byggingu yfir safn
Oddnýjar heitinnar Egilsdóttur. Nauðsynlegt er því
að koma mununum í geymslu fram að því að þeir
komast í hús sem áætlað er að byggja við Geysi.
Skólaskrifstofa Suðurlands. Lagt fram mikið efni
ásamt bréfum varðandi það hvort og þá hvernig
starfrækja skuli skólaskrifstofu á Suðurlandi.
Kynnt tiilaga að bréfi til Vegamálastjóra sem
svar við bréfi hans frá 5.7.1995 um lagningu
gangstéttar meðfram þjóðvegi í gegnum
Laugaráshverfi. Samþykkt.
Hreppsnefndarfundur 10. október 1995.
Ákveðið var að auglýsa sem deiliskipulag
Skálholtsstaðar tillögu Manfreðs Viljálmssonar og
Reynis Vilhjálmssonar frá ágúst 1995.
Samþykkt var að sveitarfélagið gerðist aðili að
væntanlegri skólaskrifstofu á Suðurlandi.
Lokaafgreiðsla skipulagstillagna af
sumarhúsum í Brekkuskógi og Efri-Reykjum. Engar
athugasemdir hafa komið við skipulagið.
Hreppsnefnd staðfestir skipulagið og óskar eftir
staðfestingu Skipulagsstjórnar ríkisins.
Málefni Yleiningar. Oddviti sagði frá
nauðasamningum við lánadrottna, sem þeir hafa
samþykkt. Samkvæmt nauðasamningum mun
Límtré kaupa Yleiningu á 37 millj. og reka
verksmiðjuna áfram í húsi Yleiningar.
Önnur mál.
Oddviti skýrði frá því að tilboð væri komið í 5
lóðir sem eru skipulagðar í Laugarási frá
starfsmannafélagi Eimskips. Samþykkt að ganga
að tilboðinu sem er 1.750 þúsund fyrir 5 lóðir og sjá
þeir sjálfir um að gera lóðirnar byggingarhæfar.
Oddviti kynnti afrit af bréfi til stjórnarnefndar
Laugaráslæknishéraðs varðandi garðyrkjubýlið
Áshoit, Laugarási.
Samþykkt var að senda bréf til Vegamálastjóra
varðandi gagnstétt með þjóðvegi í Laugarási.
Oddvita falið að skrifa undir bréfið.
Samantekt D.K.
BISK-VERK
(i i i i i i i i i i i i i i i i 111 i)
Tökum að okkur alla byggingastarfsemi
Nýsmíði - Viðhald
Sumarhúsaþj ónusta
Þorsteinn Þórarinsson, sími 486 8862
Skúli Sveinsson................. 486 8982
Bílasími 853 5391
Litli - Bergþór 9