Litli Bergþór - 01.12.1997, Page 8

Litli Bergþór - 01.12.1997, Page 8
Hreppsnefndarfréttir verkið verði unnið í 3 áföngum á bilinu sept. '97 til okt. '99. Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi (sept. '97-apríl '98) kosti samtals kr. 1.050.000,-. Hreppsráð leggur til að unnið verði eftir þessari áætlun. Fundargerð Verkefnisstjórnar um stefnumótun í uppsveitum Árnessýslu dags. 22/9. Kynntur samningur við Menntaskólann að Laugarvatni um vefsíðugerð fyrir sveitarfélögin. Hann var undirritaður 30. september með fyrirvara um samþykki sveitarfélaganna. Hreppsráð leggur til að hann verði staðfestur. Minningargjöf um Erlend Gíslason. Nokkrir vinir Erlendar hafa keypt bekk til minningar um hann og verður hann staðsettur nærri Aratungu. Hreppsráð leggur til að hreppurinn leggi allt að kr. 12.000,- til málsins. Hreppsnefndarfundur 14. október 1997. Bréf Félagsmálaráðuneytis vegna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga dags. 8. 10. 1997. Meðfylgjandi er útreikningur tekjujöfnunarframlaga 1997. Tekjujöfnunarframlag Biskupstungahrepps 1997 erkr. 5.302.282,-. Samþ. að austurendi slökkvistöðvar, sem er að losna úr leigu, verði notaður sem áhaldahús hreppsins. Núverandi áhaldahúsi verði fundið annað hlutverk. Hreppsráðsfundur 3. nóv. 1997. Bréf Samb. ísl. sveitarfélaga dags. 13. okt. 1997. Kynnt útgáfa „Handraðans“ sem er handbók um málefni grunnskóla. Samþykkt að gerast áskrifandi að tveimur eintökum og verði þau geymd annars vegar á hreppsskrifstofu og hins vegar í skólanum. Bréf Röra- og stífluþjónustunnar dags. 6. okt. 1997. Tilboð í losun á rotþróm í Biskupstungnahreppi. Hreppsráð tekur undir þörfina á umræddri framkvæmd enda í samræmi við fyrri samþykktir hreppsnefndar um losun ( Var ég ekki einn afþessum þróa á þessu ári. Áðuren \ völduaðilum? heildarlausn verði fengin þyrfti niðurstaða Heilbrigðiseftirlits' Suðurlands að liggja fyrir um fráveitumál í sveitinni. Þá væri hægt að ákveða kostnaðarhlutdeild sveitarfélagsins. fþróttahúsbygging. Útboðsgögn varðandi gröft og fyllingu hafa verið send átta völdum aðilum á svæðinu og verða tilboð opnuð föstudaginn 7. nóvember kl. 14. Áætluð verklok eru 15. des. 1997. Hrútasýning Hrútar voru skoðaðir og metnir hér í sveit 23. september sl. Dómari var Fanney Ólöf Lárusdóttir, ráðunautur. Mest áhersla var lögð á að dæma lambhrúta og veturgamla. Dæmdir voru 25 lambhrútar á 5 búum. Þrír þeirra fengu 78,5 til 79,5 stig, átta frá 80 til 81,5 stig, fimm frá 82 til 83,5 stig, sex 84 til 85 stig og þrír 85,5 stig, og voru þeir allir frá Bræðratungu. Veturgamlir hrútar voru 21 á 9 búum. Átta fengu 80 til 81,5 stig, tólf 82 til 83,5 og einn hjá Magnúsi í Austurhlíð 84 stig. Þriggja vetra hrútar voru 2 dæmdir, og hlutu þeir 80,5 og 81 stig. A. K. ijafifárblóm- Veljum íslenskt! BLÓM FYRIR BESTA FÓLK (j(eði(ea,ió( Opið öll kvöld til kl. 21:00. fiöí&UJK UÍÖsíÍptÍK WO/Oty þö££ajK inÖsíiptÍK Litli - Bergþór 8

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.