Litli Bergþór - 01.05.2001, Blaðsíða 6
Hrepp snefndarfréttir
Hreppsráðsfundur 9. janúar 2001.
Upplýsingar frá Hagstofu Islandsum mannfjölda á
íslandi 1. desember 2000. Samkvæmt bráðabirgðatölum
hefur íbúum Biskupstungnahrepps fjölgað um 8,06% á
árinu og er það hlutfallslega mesta fjölgun í sveitarfélagi
það ár. Kynnt.
Fundargerð Byggingarnefndar uppsveita
Árnessýslu 28. 11. 2000. Samþykktar voru níu
teikningar þar af fjögur ný einbýlishús. Fyrirspurnir
vegna þriggja annarra einbýlishúsa komu fyrir fundinn.
Kynnt og staðfest.
Fundargerðir stjórnar SASSfrá 6. og 12. desember
2000. Einnig bréf vegna fjárhagsáætlunar SASS fyrir
árið 2001. Þar kemur fram að gjöld aðildarfélaga til
Sorpstöðvar Suðurlands hækka um 20% frá fyrra ári.
Einnig verður hækkun á rekstri skólaskrifstofu
Suðurlands vegna þeirrar samþykktar að fjölga
stöðugildum um eitt. Kynnt.
Afrit af bréfi frá Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands
vegna óvissu um framlög ríkisins til stofnunarinnar á
næsta ári. Kynnt.
Upplýsingar um álagningarprósentu útsvars
samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995
og lagabreyting þar að lútandi. Einnig breyting á lögum
um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 81/1991, með síðari
breytingum. Kynnt.
Upplýsingar um kostnað vegna leigu á GSM símum
fyrir Slökkvilið Biskupstungna. Kynnt og staðfest leiga
á farsímum fyrir slökkviliðið.
Uttekt á slökkviliði Biskupstungnaunnin af
Brunamálastofnun. Þar kemur fram að þjálfun og ástand
þeirra sem starfa við slökkviliðið er gott en að
sveitarfélagið þarf að bæta búnað slökkviliðsins. Kynnt.
Lagt fram til kynningar desember fréttabréf
Félagsmálaráðuneytisins en þar er meðal annars fjallað
um stuðning við vatnsveitur í dreifbýli og er reglugerð
væntanleg þar að lútandi. Verður kynnt nánar í
Tungnatíðindum.
Beiðni frá Neytendasamtökunumum fjárstuðning
við samtökin. Hafnað.
Beiðni um styrk við Skógræktarfélag Arnesinga.
Samþykkt að veita skógræktarfélaginu styrk að fjárhæð
10.000,-
Beiðni um fjárstuðning við HSK. Styrkur
sveitarfélagsins til HSK er greiddur af héraðsnefnd
Árnesinga.
Upplýst að Jón Eiríksson Vorsabæhefur afhent
Biskupstungnahreppi alla leigu- og lóðarsamninga
Laugaráshéraðs sem verið hafa í vörslu hans. Sveinn A.
Sæland tók við samningunum og þakkaði Jóni fyrir góða
umsýslu á umræddum gögnum.
Upplýst að Biskupstungnahreppurgetur veitt
fyrirgreiðslu vegna viðbótarlán til íbúðarkaupa þegar það
á við að upphæð krónur 4.000.000.-. Viðbótarlán eru
veitt í undantekningartilfellum og geta numið allt að 25%
af kaupverði íbúðar. Vextir viðbótarlána eru í dag 5,7%.
Beiðni frá Kristjáni B. Garðarssynikt. 150153-
4769 um að lóð hans verði að verslunar- og þjónustulóð.
Ákveðið að leita eftir nánari upplýsingum fyrir næsta
fund hreppsnefndar.
Bréf frá varasjóði Ibúðalánasjóðs um fjölda
innleystra íbúða á árunum 2001-2003. Ekki er áætlað að
innleysa neina íbúð að svo stöddu en þó ráðlegt að gera
ráð fyrir að 1-3 félagslegar íbúðir verði seldar í almennri
sölu á komandi árum. Kynnt ásamt svari.
Bréf frá Umhverfisráðuneytinu um skipan
starfshóps sem semja á drög að reglugerð um öryggi
leikvallatækja og eftirlit með þeim. Kynnt ásamt svari.
Kynnt bréf til fjármálaráðherraþar sem hvatt er til
þess að Umhverfisráðuneytið og Fjármálaráðuneytið
vinni af einhug að því að semja við landeigendur við
Geysi um uppkaup Geysissvæðisins.
Kynnt bréf til Landsvirkjunar um styrkbeiðni við
uppbyggingu Gíslaskála, Svartárbotnum.
Afrit af bréfi Landgræðslu ríkisins til
Vegagerðarinnar um samstarf við landgræðslu á
Tunguheiði. Kynnt.
Beiðni frá Ungmennafélagi Islandsum að auka við
merkingar á markverðum stöðum og öðru sem er
heppilegt til útivistar á hverjum tíma. Kynnt og vísað til
ferðamálafulltrúa.
Bréf frá Fornleifastofnun Islandsum fomleifaúttekt
fyrir sveitarfélagið. Kynnt.
Hreppsráð leggur til að greiðslurkjörinna fulltrúa
sveitarstjórnar fyrir setu í fræðslunefnd verði krónur
3.000,- á hvern fund en krónur 5.000,- til formanns
nefndarinnar á árinu 2000.
Markmið og hlutverk vinnuskólaBiskupstungna-
hrepps. Kynnt helstu markmið, verkefni og vinnutími í
samræmi við gildandi lög. Vinnuskólinn skal hafa að
leiðarljósi að skapa hollt og uppbyggjandi sumarstarf
fyrir 13 - 15 ára unglinga í sveitinni. Ný markmið
skólans verða kynnt í Tungnatíðindum í janúar.
íþróttadagur verður haldinn laugardaginn 13.
janúar n.k. Hann er samvinnuverkefni
Ungmennafélagsins, íþróttamiðstöðvar og
Reykholtsskóla. Lögð fram drög að dagskrá til
kynningar.
Undirritun kaupsamnings vegna kaupa Biskups-
tungnahrepps á landi úr jörðinni Brautarhóli,
Biskupstungum. Um er að ræða 46 ha lands. Landið
afmarkast af Biskupstungnabraut og jarðamörkum við
Litla-Fljóti og Reykjavelli og nær að Kistuholti. Með
þessum kaupum er sveitarfélagið að tryggja
framtíðarmöguleika á þróun byggðar í Reykholti þar sem
land sveitarfélagsins þar var á þrotum. Einnig voru
undirrituð makaskipti á um 4 ha lands. Sveitarfélagið
fær iðnaðarlóðir meðfram Biskupstungnabraut og liggja
þær suð-vestan við hesthúsalóðir sveitarfélagsins. Á
móti lætur sveitarfélagið landsvæði neðst í Lambadal.
Undirritun þessi er með fyrirvara um samþykki
hreppsnefndar.
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélagadags.
4. janúar um skipan starfshóps til að vinna að fræðslu og
Litli - Bergþór 6