Litli Bergþór - 01.05.2001, Blaðsíða 14
Bjálkahús og skógrækt
Viðtal við Hólmfiíði Geirsdóttur
og Steinar Jensen í
garðyrkjustöðinni Kvistum.
Þeir sem keyra norður Biskupstungnabraut, framlijá Reykholti í Biskupstungum, komast ekki hjá því
að veita athygli stóru tvílyftu bjálkahúsi, sem risið hefur austarlega í Reykholtshverfinu nú í vetur. Nánar
til tekið á lóð, sem áður var í eigu Lilian Þóroddsson og tilheyrði Friðheimum. Þar byggja nú upp
garðyrkjustöð hjónin Hólmfríður Geirsdóttir og Steinar Jensen. Litla-Bergþóri leikur forvitni á að
kynnast betur þessum nýju íbúum sveitarinnar og mœlti sér því mót við þau í nýja liúsinu einn mildan
vetrardag ífebrúar. Þar voru þau hjón önnum kafin við smíðar, meðan dóttirin, Gabriela Mist, 5 ára,
œfði sig á hjólinu sínu í rúmgóðri vinnuaðstöðunni, sem er áföst við íbúðina. Þrátt fyrir annir var
alúðlega tekið á móti blaðamanni og við settumst niðuryfir kaffibolla í einu horni vinnusalarins, með
viðarilm í nösum.
L-B: Segið mér, hvernig
datt ykkur í hug að flytjast í
Biskupstungurnar. Tengist
þið eitthvað fólki hér í
sveitinni?
Hólmfríður: Nei, við
eigum ekkert skyldfólk hér.
En þeir Sigurður á Furubrún
og Jakob í Laugarási voru
skólabræður mínir úr
Garðyrkjuskólanum og svo
var Magnús á Arbakka
vinnufélagi minn í Fjölskyldan.
Fossvogsstöðinni. Við vorum búin að vera með það í
huga að flytja út á land í nokkum tíma og leita fyrir
okkur um lóð. Svo fréttum við af þessu landi og leist vel
á það. Það var reyndar erfitt að ná sambandi við Lilian
og það tók eina 3 mánuði fyrir okkur að ná saman. En
það hafðist að lokum. Við keyptum allt land sem hún
átti, samtals um 22 ha á tveim spildum, en seldum strax 2
ha af því til Sigurðar á Furubrún. Svo keypti Geirharður
Þorsteinsson, arkitekt,12 ha af því landi sem nær suður
að Tungufljóti, en hann ætlar
m.a. að nota það fyrir hesta.
Við eigum þá eftir 2 spildur,
þessa hér í kringum húsið, sem
er um 4,5 ha og aðra 4 ha í
holtinu vestan við Norðurbrún.
Þar dreymir okkur um að gera
e.t.v. garð eða útivistarsvæði
fyrir okkur í framtíðinn. En
það gengur auðvitað fyrir núna
að koma garðyrkjustöðinni
almennilega í gagnið og planta
skjólbeltum hér í kringum
húsin.
L.B. Eruð þið bœði garðyrkjufrœðingar?
Steinar: Nei, það er Hólmfríður, sem er
garðy rkj ufræðingurinn.
Hólmfríður: Já, ég er garðyrkjufræðingur og búin að
vinna við það síðan ég útskrifaðist 1982. Við bjuggum í
útjaðri Reykjavíkur, við Norðlingabraut, milli
Rauðavatns og Elliðavatns. Vorum þar með eins ha lóð,
sem við vorum búin að planta mikið í. En þegar okkur
r s
7^ BISK-VERK
Tökum að okkur alla byggingastarfsemi
Þorsteinn Þórarinsson, sími Nýsmíði - Viðhald Bflasími ^ rcM Sumarhúsaþjónusta Fax 486 8782 853 5391 893 5391 486 8745
—
Litli - Bergþór 14