Litli Bergþór - 01.12.2003, Blaðsíða 23

Litli Bergþór - 01.12.2003, Blaðsíða 23
Byggðaráð tekur jákvætt í erindið og felur oddvita að semja bréf til Bygðastofnunar. Reiðvegir. Vegna mikillar hestaumferðar um Geysissvæðið og Laugarás leggur byggðaráð til að útbúin verði reiðleið framhjá svæðunum í sem bestri sátt við landeigendur. Snæbimi falið að vinna í málinu í samráði við formann Hestamannafélagsins Loga og formann reiðveganefndar Loga. 17. fundur sveitarstjórnar 18. júní 2003 Mætt voru: Sveinn A. Sæland, Margeir Ingólfsson, Snæbjörn Sigurðsson, Sigurlaug Angantýsdóttir, Margrét Baldursdóttir, Drífa Kristjánsdóttir og Kjartan Lárusson Fundargerð byggðaráðs frá 27. maí 2003. Við 5. lið var samþykkt að vísa málinu aftur til byggðaráðs með það í huga að haldið verði áfram við undirbúning að vatnsöflun á svæðinu. Kosningar til eins árs: a. Kosning oddvita. Tillaga um að Sveinn A. Sæland verði kosinn oddviti. Samþykkt með 5 atkvæðum og tveir sátu hjá. b. Kosning varaoddvita. Tillaga um að Snæbjöm Sigurðsson verði kosinn varaoddviti. Samþykkt með 5 atkvæðum og tveir sátu hjá. c. Kosning þriggja fulltrúa í byggðaráð og þriggja til vara. Kosin vom sem aðalfulltrúar í byggðaráði Margeir Ingólfsson formaður, Sigurlaug Angantýsdóttir og Kjartan Lámsson og til vara Sveinn A. Sæland, Snæbjöm Sigurðsson og Drífa Kristjánsdóttir. d. Kosning yfirkjörstjómar. Kosin vom: Pétur Skarphéðinsson, Hilmar Einarsson og Helgi Guðbjörns- son og til vara Guðrún Sveinsdóttir, Böðvar Ingi Ingimundarson og Sveinbjörn Einarsson. e. Kosning undirkjörstjórnar fyrir Þingvallasveit. Kosin voru: Ragnar Jónsson, Jóhann Jónsson og Steinunn Guðmundsdóttr og til vara Gunnar Þórisson, Rósa Jónsdóttir og Guðrúnu S. Kristinsdóttir. f. Kosning undirkjörstjórnar fyrir Laugardal. Kosin voru Ami Guðmundsson, Halldóra Guðmundsdóttar og Elsa Pétursdóttir og til vara Páll Pálmason. Helga Jónsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir. g. Kosning undirkjörstjórnar fyrir Biskupstungur. Kosin voru Gústaf Sæland, Sigríður J. Sigurfinnsdóttir og Oskar T. Guðmundsson og til vara Elínborg Sigurðar- dóttir , Bjarni Kristinsson og Helgi Arnason. Tillögur að deiliskipulagi. Deiliskipulag á eftirtöld- um svæðum var lagt fram og samþykkt að auglýsa í samræmi við skipulagslög nr. 73/1997. a. Frístundabyggð á Torfastöðum. Drífa sat hjá við afgreiðslu á þessum lið. b. Frístundabyggð í landi Kjamholta I. c. Endurbygging þriggja sumarhúsa við Miðdal. Aður samþykkt sem grenndarkynning á fundi byggðaráðs 25. mars 2003 en nú er lagt til að málið fari í gegn um hefðbundinn auglýsingarferil. d. Frístundabyggð (Grænahlíð) í landi Grafar. e. Einihlíð í landi Einiholts III. Gert er ráð fyrir 99 frístundalóðum á svæðinu í tveimur áföngum en einungis er óskað eftir samþykkt á fyrsta áfanganum en þar er gert ráð fyrir 52 frístundalóðum. Samþykkt enda er fyrsti áfanginn í samræmi við gildandi aðalskipulag. Breytingar á deiliskipulagi í Brattholti. Samþykkt að auglýsa breytinguna samkvæmt skipulagslögum nr. 73/1997. Kauptilboð vegna 220 ha. spildu úr landi Holtakota. Kaupendur Valgeir Harðarson kt:060966-4359 og Sigríður Runólfsdóttir kt:290366-5509. Seljendur Dóróthea Sveina Einarsdóttir kt:210232-7619, Hlíf Einarsdóttir kt: 191130-4999 og Ragnhildur Einarsdóttir kt:071122-2559. Sveitarstjórn samþykkir að falla frá forkaupsrétti. Umræður um veitumál. Drífa óskaði eftir eftirfar- andi bókun: „í ljósi þess að Veitunefnd ákvað á fundi sínum þann 30. apríl s.l. að sinna ekki erindi sem sveitarstjórn vísaði til hennar á fundi sínum þann 25. febrúar vill Drífa taka fram að hún er ósammála vei- tustjórn og vill að frumkvæði og umræða um sameiningu veitna í sveitarfélaginu sé í höndum sveitarstjómar eða þeirra sem sveitarstjóm felur verkefnið". Þ-listinn vill í þessu sambandi bóka eftirfarandi: „Veitustjóm tók erindi það sem vísað var til hennar fyrir á fundi 30. april 2003 en hafnaði því. Þ-listinn tekur undir álit veitustjórnar þar sem segir að hún líti með opnum huga á sameiningu veitna en líti svo á að frumkvæðið þurfi að koma frá veitunum sjálfum. Þá vekur Þ-listinn athygli á að Drífa staðfesti hina sömu fundargerð.“ Umræður um götur og vegi (heimreiðar) í sveitar- félaginu. Tillaga T-listans: Sveitarstjórn samþykkir að gerð verði úttekt á öllu gatnakerfí í þéttbýli og heimreiðum í dreifbýlinu og að gerð verði framkvæmdaráætlun um endumýjun og viðhald þeirra. Samþykkt að vísa til- lögunni til samgöngunefndar. Heimasíða Bláskógabyggðar. Kjartan spurðist fyrir um heimasíðugerðina fyrir Bláskógabyggð. I um- ræðunni kom m.a. fram að síðugerðinni er lokið en efnisöflun fer enn fram og eru fyrirtæki og einstaklingar hvattir til að tengjast síðunni. Tjaldsvæðið á Laugarvatni. Kjartan spurðist fyrir um það hver hugmyndin væri með rekstur tjald- og hjólhýsasvæðisins. Fram kom í svari Sveins að stefnt er að því að sveitarfélagið selji reksturinn á svæðinu og verður það kynnt síðar. Fyrirspurnir T-Iistans. a. Hvaða áætlanir eru um framkvæmdir við viðhald og breytingar á skólahúsnæði Gmnn- og leikskóla Bláskógabyggðar og hver er áætlaður kostnaður vegna hvers skóla fyrir sig? Hverjir em verktakar? Sveinn fór yfir þær breytingar sem ráðgert er að gera í grunn- skólanum og er áætlaður kostnaður þar kr.5.000.000,- sbr. fundargerð byggðaráðs frá 27. maí 2003 Verktaki við það er Tómas Tryggvason. Borist hefur tilboð í viðhald og breytingar á leikskólanum Lind frá Guðmundi Böðvarssyni. Tilboðið er innan ramma fjárhagsáætlunar ársins 2003 og er verið að skoða það. Málefni leik- skólans Alfaborgar verða tekin fyrir á næsta fundi byggðaráðs. Litli Bergþór 23

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.