Litli Bergþór - 01.12.2004, Blaðsíða 23
Fundargerðir bygginganefndar grunn- og leikskóla
16. júlí 2004, fræðslunefndar Bláskógabyggðar 10. júní
2004, byggingamefndar uppsveita Ámessýslu dags 29.06.
2004 og 20.07.2004 og em lagðar fram til staðfestingar:
33. fundur sveitarstjórnar 10. ágúst 2004.
Mættir voru sveitarstjórnarmenn nema Margrét
Balsursdóttir.
Framkvæmdaleyfí fyrir Sultartangalínu 3.
Albert Guðmundsson fulltrúi Landsvirkjunar mætti á
fundinn og kynnti framkvæmdina.
Lögð fram umsókn Landsvirkjunar um framkvæmda-
leyfi vegna Sultartangalínu 3.
Ferli skv.lögum um mat á umhverfisáhrifum hefur farið
fram, nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi Biskups-
tungnahrepps og breytingar á svæðisskipulagi miðhálendis
liggja fyrir. Staðfestingar á breytingu Laugardalshrepps er
að vænta innan skamms. í Þingvallasveit liggur ekki fyrir
aðalskipulag en unnt er að veita framkvæmdaleyfi á grund-
velli svæðisskipulags miðhálendisins.
Sveitarstjóm samþykkir veitingu framkvæmdaleyfisins
með fyrirvara um staðfestingu á breytingu á aðalskipulagi
Laugardalshrepps og felur skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins
að ganga frá útgáfu og gjaldtöku framkvæmdaleyfisins.
Framkvæmdaleyfisgjald skal nema þeirri upphæð sem
sveitarfélagið verður fyrir vegna úgáfu og undirbúnings
leyfisins og eftirlits, þ.m.t. aukakostnaður vegna
sveitarstjórnarfunda sem boðað hefur verið til sérstaklega
vegna framkvæmdaleyfisins.
Heiðarbær, óleyfisframkvæmd.
Vegna tafa sem hafa orðið við gerð tillagna skipulags-
fulltrúa og Umhverfísstofnunar um lagfæringar vegna
jarðrasks við bakka Þingvallavatns við sumarbústað nr. 1 í
landi Heiðarbæjar samþykkir sveitarstjóm að framlengja
frest til lagfæringa um einn mánuð frá 15. september til 15.
október.
34. fundur sveitarstjórnar 7. september 2004.
Mættir vom allir sveitarstjórnarmenn og Ragnar Sær
Ragnarsson, sem ritaði fundargerð.
Fundargerðir byggðaráðs frá 27. júlí og 31. ágúst
2004. Kjartan setur fram eftirfarandi bókun. Ég undrast
vinnubrögð sveitarstjórnar á uppgjöri á fjallskilum í
Laugardal frá 2002 - 2003. í lok ágúst s.l. höfðu fjallskil
ekki verið gerð upp eins og margsinnis hefur verið lofað.
Að öðm leyti voru fundargerðirnar kynntar og samþykktar.
Samningur um lokun námu í landi Grafar, Laugardal.
Lagt var fram minnisblað Ólafs Björnssonar hrl. lögmanns
sveitarfélagsins, dags. 9. júní 2004.
Bókun T-lista. T-listinn áréttar, að sveitarstjóm hefur
ekki fengið til umfjöllunar samningagerð um lokun
malamámu sem unnin hefur verið undanfama mánuði af
meirihluta sveitarstjórnar. Vitneskja var þannig ekki fyrir
hendi, hjá minnihluta sveitarstjórnar, fyrr en á
byggðaráðsfundi þann 31. ágúst s.l. um að verið væri að
leita samninga um lokun malarnáms í landi Grafar. Nú á
fundi sveitarstjórnar liggur fyrir samningur sem hefur verið
undirritaður, án heimildar sveitarstjórnar. Samningurinn
felur í sér veruleg útgjöld fyrir Bláskógabyggð. T-listinn
átelur slík vinnubrögð. I 64. grein sveitarstjórnarlaga segir:
”Til útgjalda sem ekki eru lögbundin, samningsbundin eða
leiðir af fyrri samþykkt sveitarstjómar má ekki stofna nema
til komi samþykki sveitarstjórnar.” Ekki hafa verið lögð
fram lögfræðiálit sem styðja það að þörf hafi verið á að
gera samning þann sem hér er til umfjöllunar. Engar for-
sendur liggja fyrir um að ekki sé hagstæðara fyrir sveitar-
félagið, að eigandi sumarhúsalóðar í Gröf, sem hefur unnið
malarnám þar án leyfis, fari í mál við sveitarstjórn eins og
hann hefur hótað, að sögn meirihlutans.
Bókun Þ-lista. Eins og öllum sveitarstjórnarmönnum er
kunnugt hefur málið varðandi lóð nr. 189550 í landi Grafar
verið í vinnslu allt kjörtímabilið, eða frá því að sveitar-
stjórn Laugardalshrepps ákvað að skilgreina námuna sem
frístundarsvæði. M.a. var farin vettvangsferð með sveitar-
stjórn til að skoða námuna á árinu 2002. Gengið var til
samninga við landeiganda að lóð í landi Grafar í samræmi
við ráðleggingar lögmanns sveitarfélagsins, en hann lagði
áherslu á að gengið yrði til samninga m.a. til að komast hjá
málaferlum. Með samningnum er fyrir utan að loka
námunni þann 1. október 2004 verið að loka kærumálum
sem í gangi eru bæði í Félags- og Umhverfisráðuneytinu.
Þrjár milljónir færast sem breyting á fjárhagsáætlun 2004.
Snæbjöm vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Samningurinn samþykktur með 4 atkvæðum gegn 2.
Tónlistarskóli Árnesinga. Róbert Darling skólastjóri
kynnti starfsemi skólans, fór yfir starfsmannamál,
kjarasamninga og skipulag kennslu. Einnig innritunarmál,
kennslutilboð og annað sem við kemur þjónustu við
nemendur. Fjölmargar fyrirspurnir voru lagðar fyrir Róbert.
Samþykkt að niðurgreiða ekki fyrir fullorðna nemendur
skólans eða þá sem eru eldri en 20 ára að öðru leyti vísað
til umræðu innan héraðsnefndar. Sveinn þakkaði Róbert
fyrir kynninguna.
Kosning í fræðslunefnd. Lagt er til að Drífa
Kristjánsdóttir verði nýr aðalmaður í stað Erlings
Jóhannssonar sem er fluttur erlendis og nýr varamaður
verði Helga Jónsdóttir, Garði. Þá er lagt til að Helga María
Jónsdóttir verði nýr varamaður í stað Aðalheiðar
Helgadóttur sem hefur hafið störf við Grunnskóla
Bláskógabyggðar. Samþykkt.
Sala eigna. Umboð til sveitarstjóra til að undirbúa sölu
húseignar að Hrísholti 3 (parhús) Laugarvatni á árinu 2005.
Einnig verði sveitarstjóra veitt umboð til að auglýsa til sölu
jörðina Selkot í Þingvallasveit. Samþykkt. Umræða varð
um þær fjórar húseignir sem kynntar hafa verið til sölu
nýverið. T-listinn gerði eftirfarandi bókun: Eðlilegt er að
t.d. fasteignasali eða umsjónarmaður fateigna sveitar-
félagsins sýni hús sem eru til sölu. Gera má ráð fyrir að
aðili sem gerir tilboð í eign, eigi hagsmuna að gæta og sé
þannig vanhæfur til að sýna eignina öðrum kaupendum.
Sjúkrahús Suðurlands. Bygging hjúkrunardeildar við
Sjúkrahús Suðurlands. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
Litli Bergþór 23