Litli Bergþór - 01.12.2004, Blaðsíða 24
undrast þann skilning sem ríkið hefur lagt í kostnaðar-
skiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga við byggingu
hjúkrunardeildar við Sjúkr-ahús Suðurlands. Það er því
fagnaðarefni að nú hafi útboð vegna byggingarinnar verið
auglýst.
Gufubaðið á Laugarvatni. Drög að deiliskipulagi við
Gufubaðið, ströndina og nálæg svæði á Laugarvatni.
Ragnar Sær Ragnarsson kynnti og sagði frá tillögu
Hollvina Gufubaðs- og smíðahúss um boðun íbúafundar á
Laugarvatni vegna viðkomandi verkefnis.
Gjábakkavegur. Farið yfir framkvæmdastöðu. Lögð
fram tillaga um boðun samráðsfundar með þeim sem koma
að uppbyggingu og fjármögnun vegarins.
Heimasíða Bláskógabyggðar. Drífa sagðist ekki sjá að
heimasíða Bláskógabyggðar hafi verið uppfærð síðan 7.
júlí s.l. þrátt fyrir loforð meirihlutans þar um. T-listinn gerir
eftirfarandi tillögu: Sveitarstjórn Bláskógabyggðar sam-
þykkir að ráða sérfræðing frá næstu áramótum, til að halda
heimasíðunni lifandi og uppfæra hana a.rn.k. vikulega.
Felld með 5 atkvæðum gegn 2. Bókun sveitarstjóra:
Sveitarstjóri leggur til að áfram verði fylgt bókun
sveitarstjórnar frá 29. júní 2004 um að heimasíðan verði
unnin af núverandi starfsmönnum á skrifstofu sveitar-
félagsins.
Fyrirspurnir T-lista.
a) Á fundi sveitarstjórnar þann 18. júní 2003 samþykkti
sveitarstjórn að láta gera framkvæmdaáætlun um endur-
nýjun og viðhald gatnakerfis í þéttbýli og á heimreiðum í
dreifbýlinu. Hvað líður gerð framkvæmdaáætlunar? Sveinn
sagði að erindinu hafi verið vísað til atvinnu- og samgön-
gunefndar en ekki sé komin niðurstaða í málið. Bókun: T-
listinn undrast seinagang við gerð framkvæmdaáætlunar-
innar þar sem mikilvægt var að áætlunin lægi fyrir s.l. vor.
Þetta telur T-listinn ekki dæmi um virka stjómsýslu.
b) Jafnréttisáætlun uppsveitanna. Hvað líður gerð jafn-
réttisáætlunarinnar? Áætluninni var vísað til félagsmála-
nefndar og er í vinnslu þar.
36. fundur byggðaráðs 28. september 2004.
Mættir voru fulltrúar í byggðaráði auk Ragnars S.
Ragnarssonar, sem ritaði fundargerð.
Samþykkt að veita styrk, kr. 350.000, til Torfastaða-
sóknar til að klára framkvæmdir við kirkjugarðinn og
aðkomu að honurn. Drífa vék af fundi undir þessum
dagskrárlið.
Fundargerðir bygginganefndar uppsveita Árnessýslu
31. ágúst, fræðslunefndar Bláskógabyggðar 19. ágúst,
fræðslunefndar Bláskógabyggðar 15. september, skipulags-
nefndar uppsveita Árnessýslu 16. september, fjallskila-
nefndar Biskupstungna 25. ágúst og bygginganefndar
grunn- og leikskóla 14. sept. og 27. sept. voru lagðar fram
til staðfestingar.
Bréf frá menntamálaráðuneytinu, dags. 16. september
2004, varðandi skýrslu sem ber heitið „Breytt námsskipan
til stúdentsprófs, aukin samfella í skólastarfi". Skýrslan
liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins.
35. fundur sveitarstjórnar 5. okt. 2004.
Mættir voru aðalmenn í sveitarstjórn, en Hilmar
Ragnarsson var á fyrri hluta fundar fyrir Kjartan Lárusson.
Fundurinn hófst með því að Sveinn A. Sæland oddviti
minntist Ágústu Ólafsdóttur frá Úthlíð, fyrrverandi fulltrúa
í sveitarstjórn Biskupstungna.
Fundargerð byggðaráðs frá 28. september 2004.
Bókun Drífu: Á fundi byggðaráðs var kynnt bréf sveitar-
stjóra til menntamálaráðherra dags. 30. september 2004.
Efni þess var m.a. bindandi tilboð til ráðherra um maka-
skipti á jörðinni Selkoti í Þingvallasveit í skiptum fyrir eign
ríkisins í Laugarvatnsjörðinni í Laugardal. Engin umræða
eða ákvörðun liggur fyrir í sveitarstjórn um tilboð þetta.
Tilboð sveitarstjóra til ráðherra var því gert án umboðs
sveitarstjórnar. Munnlegar athugasemdir komu fram frá
Drífu vegna þessa á fundi byggðaráðs.
Bókun sveitarstjóra: Á síðasta fundi sveitarstjórnar var
samþykkt samhljóða sala jarðarinnar Selkots. Með tillögu
unr makaskipti við ríkið á Laugarvatnsjörðinni í heild sinni
og Selkoti er verið að vinna tvennt, skapa möguleika á
stórfelldri uppbyggingu á Laugarvatni, ná fram frekari
nýtingu orkulinda svæðisins, auk þess sem möguleikar á
óbreyttri nýtingu Selkots eru meiri ef landið er áfram í eigu
opinbers aðila. Að öðru leyti var fundargerð byggðaráðs
kynnt og samþykkt.
Fundur með umhverfisráðherra vegna Gjábakkavegar
og umhverfis- og öryggismála við Geysissvæðið. Ferða-
málafulltrúi og sveitarstjóri kynntu nýjum ráðherra Sigríði
Önnu Þórðardóttur þær áherslur sem Bláskógabyggð hefur
rnótað við lagningu Gjábakkavegar og þeim möguleikum
sem sá vegur mun opna. Þá var farið yfir stöðu mála við
Geysi í Haukadal og kynntar hugmyndir heimamanna.
Fundur með sunnlenskum þingmönnum, vegamála-
stjóra, starfsmönnum Vegagerðar, formanni samgöngunefn-
dar Alþingis og fleirum vegna væntanlegra framkvæmda
við Gjábakkaveg. Fram kom á fundinum að vegamálastjóri
telur hagkvæmara að hefja framkvæmdir haust 2005 í stað
vors. Einnig upplýst um væntanlegan fund með samgöngu-
ráðherra 11. október 2004, þar sem ítrekað verður mikil-
vægi Gjábakkavegar fyrir sveitarfélögin í uppsveitum
Árnessýslu. Sagt verður frá væntanlegum framkvæmdum
sem tengjast lagningu hans. Sveitarstjórn ítrekar fyrri
bókanir um að lagning vegarins skipti öllu máli fyrir
þjónustu við íbúa sveitarfélagsins m.a. vegna skólagöngu
barna. Þá styrkir vegurinn atvinnurekstur og uppbyggingu í
Bláskógabyggð og öðrum sveitarfélögum í uppsveitum
Árnessýslu.
Lokun KB — banka. Umræða um þær upplýsingar
sem sveitarstjórn hefur borist um að til standi að loka
útibúi KB - banka, Laugarvatni. Sveitarstjórn harmar
ákvörðun um lokun hans þar sem ljóst er að lokun bankans
mun skerða þjónustustigið.
Hraðatakmarkanir í þéttbýli. í samræmi við 81. gr.
umferðarlaga 138/1996 leggur sveitarstjóm til við
lögreglustjóra í Árnessýslu að umferðarhraði við Lindar-
braut, Laugarvatni verði 30 km. Einnig að við Skólabraut í
Litli Bergþór 24