Litli Bergþór - 01.12.2004, Side 26
dags. 19. október 2004 ásamt riti um áhrif Suðurlands-
skjálftanna í júní árið 2000 en það liggur frammi á
skrifstofu sveitarfélagsins.
36. fundur sveitarstjórnar 16. nóvember 2004.
Mætt voru aðalmenn í sveitarstjórn nema Snæbjörn
Sigurðsson en fyrir hann Gunnar Þórissson auk Ragnars S.
Ragnarssonar sveitarstjóra sem ritaði fundargerð.
Skipulagsmál. Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsfull-
trúi kynnti.
Aðalskipulagsbreyting Laugarvatni, breyting í þéttbýli
á Laugarvatni. A fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar
þann 7. september síðastliðinn var samþykkt tillaga um að
auglýsa breytingu á aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-
2012, á tveimur reitum í þéttbýlinu á Laugarvatni. Tillagan
var sett frarn á einurn uppdrætti en tekin fyrir í tveimur
liðum þar sem að um tvo aðskilda reiti er að ræða.
Við Grunnskóla Bláskógabyggðar. Opið svæði til
sérstakra nota breytist í svæði fyrir þjónustustofnanir og
tengist það fyrirhugaðri viðbyggingu við skólann. Tillagan
var auglýst frá og með 29. 9. - 27. 10. 2004,
athugasemdafrestur var til 10. 11. 2004. Engin athugasemd
hefur borist við þennan lið tillögunnar að breytingu á
aðalskipulagi. Tillaga að breytingu á landnotkun við
grunnskólann samþykkt skv. 17. og 18. gr. skipulags - og
byggingarlaga. Skipulagsfulltrúa falið að senda sam-
þykktina til Skipulagsstofnunar og ráðherra til staðfest-
ingar.
Við syðri reit sem afmarkast af innri mörkum
íbúðarhúsalóða við Reykjabraut, Bjarkarbraut og
Lindarbraut og felst breytingin í því að opið svæði sem
ætlað var fyrir opinberar stofnanir (leikskóla) breytist í
íbúðarsvæði. Tillagan var auglýst frá og með 29. 9. - 27.
10. 2004, athugasemdafrestur var til 10. 11.2004. Alls
bárust 117 athugasemdir. Sjá meðfylgjandi gögn og nafna-
lista. Skipulagsfulltrúi lagði fram lista sem lýsir
athugasemdum í 51 lið. Málið rætt og frestað til næsta
fundar sveitarstjórnar. Oddviti lagði til að boðað yrði til
fundar með fulltrúum þeirra sem gera athugasemdir fyrir
næsta fund sveitarstjórnar. Samþykkt.
Tillaga að deiliskipulagi eldri byggðar á Laugarvatni
og þéttingu hennar.
Svæðið afmarkast af Reykjabraut, Bjarkarbraut og
Lindarbraut. Tillagan var auglýst frá og með 29. 9. - 27.
10. 2004, athugasemdafrestur var til 10. 11. 2004. Tillagan
var auglýst samhliða auglýsingu tillögu að breytingu
aðalskipulags.
Alls bárust 117 athugasemdir. Sjá meðfylgjandi gögn
og nafnalista. Skipulagsfulltrúi lagði fram lista sem lýsir
athugasemdum í 51 lið. Oddviti lagði til að boðað yrði til
fundar með fulltrúum þeirra sem gera athugasemdir fyrir
næsta fund sveitarstjórnar. Samþykkt.
Galtalækur í Biskupstungum, tillaga að breytingu á
aðalskipulagi Biskupstungna 2000-2012 og tillaga að
deiliskipulagi tveggja frístundalóða.
Lögð fram tillaga frá Landform ehf. að breytingu á
aðalskipulagi Biskupstungna í landi Galtalækjar. Tillagan
gerir ráð fyrir að 2 ha svæði austan við núverandi þjóðveg
nr. 359 breytist úr landbúnaðarsvæði í frístundasvæði.
Einnig tillaga að deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir 2
sumarhúsalóðum. Samþykkt að auglýsa breytingartillöguna
skv,18.grein skipulags- og byggingarlaga og deiliskipulags-
tillöguna samkv. 25. gr. sömu laga. Samþykkt.
Skálabrekka í Þingvallasveit. Lóð við gamla
bæjarstæðið.
Ósk frá Einari Erni Jónssyni um að lóð hans verði skil-
greind í aðalskipulagi sem landbúnaðarland en ekki frí-
stundasvæði eins og tillagan að aðalskipulagi sem
samþykkt hefur til auglýsingar gerir ráð fyrir. Samþykkt að
verða við ósk Einars Arnar og skipulagsfulltrúa falið að
koma samþykktinni á framfæri við skipulagsráðgjafa og að
hún verði hluti af auglýstri tillögu eða að samþykktin liggi
frammi með aðalskipulagstillögu við auglýsingu.
Deiliskipulag íbúðarbyggðar syðst í byggðinni í
Reykholti.
Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar arkitekts sem
unnin var að beiðni sveitarstjómar að deiliskipulagi
íbúðarbyggðar á flatlendi vestan Kistuholts í Reykholti.
Svæðið er 7 ha og er landið í eigu Bláskógabyggðar og er
skilgreint sem íbúðarsvæði í aðalskipulagi. Tillagan gerir
ráð fyrir 72 lóðum undir íbúðarhús sem eru 34
einbýlishúsalóðir, 20 parhúsalóðir og 18 raðhúsalóðir.
Vegtenging verður frá Miðholti og frá Skólabraut.
Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25.grein skipulags-
og bygginarlaga. Götunöfn verða ákveðin síðar.
Deiliskipulag athafnasvæðisins Vegholts í Reykholti
norðan Biskupstungnabrautar.
Lögð fram tillaga Péturs H. Jónssonar að deiliskipu-
lagi athafnasvæðisins Vegholts norðan Biskupstungna-
brautar sem unnin var að beiðni sveitarstjómar. Tillagan
gerir ráð fyrir sex athafnalóðum 5.800-6.200 m2 að stærð
og nær til 4 ha lands sem er í eigu Bláskógabyggðar.
Landið er skilgreint sem athafnasvæði í aðalskipulagi
Biskupstungnahrepps 2000-2012.
Samþykkt að auglýsa tillöguna skv. 25.grein skipulags-
og bygginarlaga.
Gjábakkavegur (365) Úrskurður Skipulagsstofnunar
um mat á umhverfisáhrifum. Niðurstaða
Skipulagsstofnunar er að hún fellst á lagningu vegarins.
Sveitarstjóm fagnar ákvörðun Skipulagsstofnunar og vonar
að þessi ákvörðun muni verða til þess lagning vegarins
hefjist ömgglega á árinu 2005.
Seyrulosun. Samþykktir, fyrri umræða. Lagðar fram
samþykktir um hreinsun fráveituvatns og reglubundinnar
losunar, vinnslu eða förgun seyru í samræmi við
reglugerðir um fráveitur og seyru; nr. 798/1999 og
reglugerð um fráveitur og skólp, nr. 799/1999, um
meðhöndlun seyru. Vísað til næsta fundar til síðari
umræðu.
Akvörðun um álagningu gjalda 2005.
Eftirfarandi tillögur voru samþykktar.
A. Útsvarsstofn 13,03 %.
Litli Bergþór 26.