Litli Bergþór - 01.12.2004, Side 27
B. Álagningarprósenta fasteignagjalda, A-flokkur 0,6%
og B-flokkur 1,2%. Ákveðið að fasteignagjöld á íbúðarhús-
næði sem aldraðir eiga og búa einir í, falli niður samkvæmt
heimild í lögum. Þetta á ekki við um þjónustugjöld þ.e.
vatnsskatt, seyrulosunargjald, sorpeyðingargjald né annað
húsnæði í eigu viðkomandi. Fasteignagjöld verði innheimt
með 5 gjalddögum mánaðarlega frá 15. febrúar 2005.
C. Vatnsskattur 0,3% af álagningarstofni fasteigna.
Hámarksálagning verði kr. 17.000. á sumarhús og
íbúðarhús. Fyrirtæki sem safna vatni í eigin miðlun fá 30%
lækkun á vatnsskatti.
D. Sorpeyðingargjöld verði kr. 8.419. á íbúðarhús, kr.
6.203. á sumarhús og kr. 18.610. á lögbýli og smárekstur.
Aukagjald fyrir að sækja rusl heim að húsum á Laugarvatni
verði kr. 8.756. innheimtist með fasteignagjöldum.
E. Holræsagjald vegna kostnaðar við fráveitukerfi/seyru-
losun í Bláskógabyggð verði vísað til fullnaðarafgreiðslu í
byggðaráði.
F. Leitast verði við að samræma innheimtu lóðarleigu
með því að senda sérstakt bréf til allra lóðarhafa.
Sveitarstjóm samþykkir að miða lóðarleigu við 0,7% af
lóðarmati í öllu sveitarfélaginu. Lagt fram lögfræðiálit lög-
manns Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 5. apríl 2004.
Niðurstöður Héraðsdóms Reykjavíkur vegna lög-
heimilis í sumarhúsi.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar lýsir furðu sinni á
niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá 11. nóvember
2004, þar sem heimilt er að skrá lögheimili í skipulagðri
frístundabyggð. Skorað er á félagsmálaráðherra að beita sér
fyrir því að lög nr. 21/1990 um lögheimili verði
endurskoðuð með það í huga að á skipulögðum frístunda-
svæðum verði ekki heimil lögheimilisskráning.
Sveitarstjórn samþykkir að áfrýja málinu til Hæstaréttar og
fer fram á stuðning Sambands íslenskra sveitarfélaga enda
verði niðurstaða dómsins fordæmisgefandi fyrir öll sveitar-
félög í landinu.
Ársreikningar vegna fjallskila í Laugardal og Þing-
vallasveit, 2002 og 2003, þar sem þeir hafa ekki verið
lagðir fyrir. Fyrirspurn frá Kjartani. Svar sveitarstjóra:
Unnið hefur verið að fjallskilum með fjallskilaseðli og þeir
lagðir fyrir árlega en samandregin ársreikningur er ekki
tilbúinn. Sveitarstjóra falið að vinna að málinu.
Osk frá Kjartani Lárussyni um breytingar á fundar-
tíma sveitarstjórnar, eftir áramót og fram að maí. Oskað er
eftir að fundir hefjist ekki fyrr en kl. 15:30. Ef ekki er hægt
að verða við því þá óskar hann eftir að annar dagur verði
valinn fyrir fundi sveitarstjórnar. Fundardagur og tími var
ákveðin í upphafi kjörtímabils og er bundinn í samþykktum
sveitarfélagsins. Ekki hægt að verða við viðkomandi
breytingu. Bókun Kjartans. Þar sem ekki er hægt að verða
við þessari ósk reikna ég ekki með að komast á fundi
sveitarstjórnar vegna skólagöngu minnar fyrr en í júní.
Umræða um lokun KB - banka. Sveitarstjórn
samþykkir að beita sér fyrir því að áframhaldandi
bankaþjónusta verði á Laugarvatni.
Heimasíða Bláskógabyggðar. Bókun Drífu: Árétta að
heimasíðan hefur ekkert lifnað við undanfarna mánuði.
Svar Ragnars: Heimasíðan hefur verið lagfærð síðustu
daga.
Umræða um merkingu við innkomu á Mosfells-
heiðinni í Þingvallasveit. Tillaga Drífu: T-listinn leggur til
að merki því sem segir „Velkominn í Þingvallahrepp“ verði
breytt þannig að þar standi „Velkominn í Þingvallasveit“
Einnig verði þau merki sem nú þegar standa við innkomu í
fyrrverandi sveitarfélaga í
Bláskógabyggð lagfærð með sama / getur maður loksins
hætti. Þ-listi leggur til að málinu
verði frestað þar til fyrir liggur
niðurstaða í umræðum um sameiningar í
uppsveitum Árnessýslu. Tillaga um frestun
samþykkt með fjórum atkvæðum gegn tveim.
Fjarfundarbúnaður að gjöf. Oddviti kynnti
gjöf sem Bláskógabyggð hefur borist frá hjónum
sem ekki vilja láta nafn síns getið. Um er að ræða
fullkominn
tekið þátt í fundum!
Fjarfundabúnaður.
Sveitarstjóri þakkarfyrir.
fjarfunda-
búnað að
verðmæti kr.
720.000. Að ósk
gefanda hefur
búnaðinum verið
komið fyrir í
Fjallasal, Aratungu.
Sveitarstjórn
þakkar höfðinglega
gjöf-
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
HEIMASIMI 486 8845
Verkstæði sími 486 8984
GSM 893 7101
Litli Bergþór 27