Litli Bergþór - 01.03.2005, Page 4
Formannspistill
Kæri lesandi.
Stundum velti ég því fyrir mér hvernig íbúum
sveitarinnar finnst vera staðið að íþróttaæfingum og hvort
þær séu að uppfylla væntingar. Þá á ég við það, að sem
allra flestir sem vilja stunda íþróttir finni eitthvað við sitt
hæfi. Með þessum vangaveltum er ég ekki að kasta rýrð á
það starf sem í boði er, sem er fjölmargt og er af hinu góða.
Heldur vil ég benda fólki á að koma hugmyndum sínum á
framfæri og ef til vill leggja inálefninu lið og sýna með
þeim hætti hug sinn til betra og öflugra samfélags.
83. þing HSK var haldið á Selfossi 26. febrúar í
húsakynnum Fjölbrautaskóla Suðurlands. f máli Gísla Páls
Pálssonar, formanns HSK, kom fram að 24. landsmót
UMFÍ á Sauðárkróki hefði verið mjög glæsilegt og
mótsaðstaðan öll til fyrirmyndar. HSK náði þeim árangri
að lenda í 3. sæti, sem urðu nokkur vonbrigði, en það
gengur vonandi betur næst. Peningaleg velta sambandsins
var um 12 milljónir og var reksturinn nánast hallalaus.
Stjómin fékk hól fyrir rekstur og stöðu sambandsins frá
þeim Ellert B. Scram, formanni ÍSÍ, og Birni B. Jónssyni,
formanni UMFÍ, en þeir voru báðir gestir fundarins.
Nokkur umræða var um unglinga-
landsmótin sem haldin hafa verið undan- fég þá koma með
gengnar sjö verslunarmannahelgar og er \hugmynd?,
almenn ánægja með það forvamarstarf sem fellst
í þessu mótshaldi þar sem stílað er inná að rvPí’l
fjölskyldur þátttakenda mæti og hafi ánægju og
gleði af samvemnni án vímuefna. Næsta sumar
verður mótið haldið í Vík í Mýrdal og gaman
væri ef næðist upp stemmning fyrir því að
þangað færa keppendur og foreldrar sem tækju
þátt. Á héraðsþinginu var öllum aðildar-
félögunum afhent veggmynd með merkjum allra
aðildarfélaganna og einnig diskur með merkjunum á
tölvutæku formi.
Kveðja
Guttormur Bjarnason.
Kosningar á aðalfundi 2004 Umf. Bisk. 2004
Stjórn:
Guttormur Bjarnason formaður
Sveinn Kristinsson ritari
Dagný Grétarsdóttir gjaldkeri
Varamenn:
Jórunn Svavarsdóttir
Ásborg Arnþórsdóttir
Skógræktardeild:
Sigurjón Sæland formaður
Eiríkur Georgsson ritari
Jens Pétur Jóhannsson gjaldkeri
Hólmfríður Geirsdóttir
Fulltrúar í rekstrarnefnd:
Guttormur Bjarnason
Varamaður
Dagný Grétarsdóttir
íþróttavallanefnd:
Helgi Guðmundsson
Þórarinn Þorfinnsson
Rúnar Bjarnason
Fulltrúi í þjóðhátíðarnefnd:
skipaður af stjóm
Endurskoðandi:
Gylfi Haraldsson
Varamaður
Arnór Karlsson
Útgáfunefnd:
Arnór Karlsson formaður
Geirþrúður Sighvatsdóttir
Pétur Skarphéðinsson
Margrét Annie Guðbergsdóttir
Sigurður Guðmundsson
Skemmtinefnd unglinga:
Harpa Gunnarsdóttir
Alexandra Guttormsdóttir
Jóna S. Guðmundsdóttir
Samúel Egilsson
Oddur Bjami Bjamason
Atli Þór Svavarsson
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
HEIMASIMI 486 8845
Verkstæði sími 486 8984
GSM 893 7101
Litli Bergþór 4