Litli Bergþór - 01.03.2005, Qupperneq 19
um haustið hafi verið keyptur bíll af gerðinni Bens
Unimog á 350 þúsund krónur. Óánægjuraddir
heyrðust vegna þess að ekki hefði verið kallaður
saman félagsfundur til að taka ákvörðun um bíl-
kaupin. Ekki var þó bíllinn sá tilbúinn til björgunar-
starfa, því fram kemur á aðlfundi um vorið að
„nokkuð vantar á að hann sé kominn í gang“, eins og
það er orðað. Hann komst brátt í gang og þjónaði
sínu hlutverki í nokkur ár. Bíll þessi er til sýnis hér
fyrir utan.
Aðalfundur deildarinnar var haldinn í maí 1992, og
þá er búið að kaupa í samstarfi við
Biskupstungnahrepp burðarsperrur og klæðningu á
um 480 fermetra hús. Samþykkt var að deildin
eignist um 135 fermetra af þessu húsi, en gert verði
ráð fyrir að unnt verði að stækka það um 50 % seinna.
A þessum fundi var Svavar Sveinsson kosinn
formaður og meðstjórnendur Ólafur Ásbjörnsson og
Þórarinn Þorfinnnsson. Á aðalfundi
Slysavarnasveitarinnar, sem haldinn var um leið,
sagði formaður af sér og var Hjalti Ragnarsson í
Ásakoti kosinn í hans stað.
Enn er skipt um formann Slysavarnadeildarinnar á
aðalfundi árið eftir (1993), og er Jakob Narfi
Hjaltason í Laugagerði kosinn.
Á aðalfundi 1994 er
samþykkt lagabreyting í þá
veru að stjórn skuli kosinn
til tveggja ára á þann veg
að formaður er kosinn
annað árið en ritari og
gjaldkeri hitt. Er sú skipan
enn við líði.
Um þessar mundir er
dósasöfnunin svonefnda
orðin besta
fjáröflunarleiðin, og hefur
bjór, vín og öldrykkja
heimamanna og gesta hér í
sveit veitt miklu fé til
björgunarstarfins á liðnum áratug. Smíðaðir voru
söfnunarkassar og þeim komið fyrir hér og hvar í
sveitinni. Ekki hafa ekki verið eingöngu áldósir og
flöskur í kössunum, stundum allkonar rusl og soip,
og einu sinni var fullfrískur maður í einum kassanna.
Hafði hann ætlað að hirða dósir en var svo óheppinn
að söfnunarmenn bar þar að í sömu mund.
Þegar hér er komið sögu er farið að festa verulegt fé í
húsbyggingu, og fyrir 10 árum hefur verið varið til
þess rúmum 2 milljónum og 700 þúsund krónum, og
árið eftir er frá því greint á aðalfundi að
Slysavamafélag íslands hafi veitt til byggingarinnar
kr. 500.000,- og hreppsnefnd samþykkt að veita til
félagsins 200.000 krónur.
Aðalfundur Slysavarnasveitarinnar er jafnan haldinn
í framhaldi af aðalfundi Slysavarnadeildarinnar, og
á slíkum fundi 1995 er Ingvi Þorfinnsson á Spóa-
stöðum kosinn formaður „Sveitarinnar“ eins og
Slysavarnasveitin var oft nefnd, en oft gekk illa að
gera í fljótu bragði geinarmun á þessum tveimur
nátengdu stofnunum með svo lík nöfn.
Tímamót eru í sögu félagsins vorið 1996. Þá er
aðalfundur „Deildar" og „Sveitar" haldinn í húsi
félagsins í fyrsta skipti 31. mars, en í júní var
landsþing Slysavarnafélags íslands haldið að Laugar-
vatni. Þingið var sett í Skálhotskirkju og eftir
setningarathöfnina var kvöldverður á Hótel Geysi.
Nú vildi svo vel til að við brún vegarins þama á milli
stóð nokkurn vegin tilbúið björgunarsveitarhús að
Dalbrúnarvegi I. Því þótti tilvalið að fá gesti til að
koma þar við. Húsið hlaut þá blessun vígslubiskups,
Sigurðar Sigurðarsonar, og forseti
Slysavarnafélagsins, Einar Sigurjónsson, afhenti for-
manni Slysavarnadeildarinnar lykla hússins og eins
og greint er frá þessu í fundargerð aðalfundar árið
eftir „fól honum það til afnota að viðstöddum forseta
Islands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, vígslubiskup og
fjölda landsþingsfulltrúa.“ í tilefni af húsvígslunni
færði Slysavarnafélagið deildinni talstöð að gjöf og
Slysavarnadeildin Tryggvi á Selfossi tvö leitarljós, og
tveir félagar, Guðni Lýðsson og Loftur Jónasson voru
sæmdir gullmerki Slysa-
varnafélagsins á lands-
þinginu á Laugasrvatni.
Á aðalfund Slysa-
varnasveitarinnar 1996
mæta 13 félagsmenn og að
auki hundurinn Rex, sem
eigandi hans, Magnús
Skúlason í Hveratúni, er
farinn að þjálfa sem
leitarhund. Hélt hann því
starfi áfram næstu ár og
tóku þeir þátt í ýmsum
leitum.
Skipt var um formann
Slysavarandeildarinnar í maí 1997, og tekur Loftur
Jónasson á Kjóastöðum 2 við því starfi.
Aðalfundur Slysavamadeildarinnar var á svipuðum
tíma árið eftir (1998). Laganefnd, sem kjörin hafði
verið árið áður, lagði þar fram tillögu að nýjum
lögum. Þar er félagsskapurinn nefndur Slysa-
varnafélag Biskupstungna, en því er breytt í
Björgunarsveit Biskupstungna á aðalfundi árið
eftir, og hefur það nafn verið notað heimafyrir síðan,
en einhverjir erfiðleikar verið á að innleiða það í
opinberri skráningu. Róttækasta breytingin, sem
þarna var gerð, var að sama félagið taki yfir bæði
slysavarna- og björgunarstarf, en Slysavamasveitin
verði lögð niður, en stjórnarmönnum fjölgað í fimm.
Gert var fundarhlé á meðan Slysavarnasveitin hélt
aðalfund sinn, og var þar samþykkt að leggja hana
Björgunarsveitarmenn á afmœlishátíð.
Litli Bergþór 19