Litli Bergþór - 01.03.2005, Side 22

Litli Bergþór - 01.03.2005, Side 22
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 9. nóvember 2004 varðandi niðurstöður grunnskólaþings sveitarfélaga 2004. Skýrsla um grunnskólaþingið liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins. 37. fundur sveitarstjórnar 7. desember 2004. Mætt voru: Sveinn A. Sæland, Margeir Ingólfsson, Sigríður Jónsdóttir, Sigurlaug Angantýsdóttir, Margrét Baldursdóttir, Drífa Kristjánsdóttir, Halldór Kristjánsson og Ragnar Sær Ragnarsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð. Seyrulosun. Samþykktir, síðari umræða. Lagðar fram samþykktir um hreinsun fráveituvatns og reglubundinnar losunar, vinnslu eða förgun seyru í samræmi við reglugerðir um fráveitur og seyru; nr. 798/1999 og reglugerð um fráveitur og skólp, nr. 799/1999, um meðhöndlun seyru. Kynnt og samþykkt. Drífa og Halldór sátu hjá við afgreiðslu málsins. Endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir árið 2004. Breyting á niðurstöðu ársins verður sú að rekstramiðurstaða ársins fer úr kr. 5.241.000 í kr. 2.180.000. Kynnt og samþykkt. Fjárhagsáætlun Bláskógabygðar fyrir árið 2005. Aðalsjóður og samstæðureikningur sveitarfélagsins, síðari umræða. Heildartekjur samstæðu Bláskógabyggðar þ.e. sveitarsjóðs og félaga í eigu sveitarfélagsins eru áætlaðar kr. 488.340.000. Rekstrargjöld ásamt afskriftuin kr. 451.925.000 Fjármagnsgjöld áætluð kr. 20.895.000. Rekstrarniðurstaða samstæðureiknings samkvæmt áætlun verður jákvæð að upphæð kr. 15.519.000. Gert er ráð fyrir að fjárfestingar ársins verði kr. 102.100.000. Vegna fjár- festinga er gert ráð fyrir lántöku vegna Grunnskóla Bláskógabyggðar og leikskóla á Laugarvatni kr. 75.000.000 og vegna fráveitna kr. 3.000.000. Þá er samþykkt endur- fjármögnun óhagstæðra styttri lána að fjárhæð kr. 36.000.000. Helstu áhersluatriði við gerð fjárhagsáætlunar er áframhaldandi öflugt skólastarf. Til þess málaflokks er varið kr. 222.691.000, en sveitarfélagið er með nemendur í einum grunnskóla, Grunnskóla Bláskógabyggðar. Þá rekur sveitarfélagið Leikskólann Álfaborg, Reykholti og Leikskólann Lind á Laugarvatni sem flytur í nýtt húsnæði á árinu 2005. Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir aukinni ábyrgð á stjómendur sveitarfélagsins við forgangsröðun fjármuna sem þeim er falið. Staða og fjárhagsáætlanir hitaveitna sveitarfélagsins vom sérstaklega kynntar af formanni byggðaráðs. Sveitarstjóm þakkar byggðaráði, veitustjórn og sveitarstjóra fyrir ítarlega vinnu sem unnin hefur verið við gerð fjárhagsáætlunar Bláskógabyggðar. Fjárhagsáætlunin samþykkt samhljóða og undirrituð. Skipulagsmál. a) Aðalskipulagsbreyting í þéttbýli á Laugarvatni. Mál sem frestað var á síðasta fundi sveitarstjómar. Oddviti gerði grein fyrir opnum fundi sem haldinn var á Laugarvatni 29. nóv. um málið og fundi með fulltrúum þeirra sem gerðu athugasemdir þann 3. des. Hann greindi frá að samkomulag hafi verið gert við fulltrúa þeirra sem gerðu athugasemdir um að skilgreina allan úthring skipulagsins sem íbúðabyggð en breyta miðju svæðisins í opið svæði til annarra nota. Áfram verði gert ráð fyrir lóð við Reykjabraut 1 og aðstaða skapast fyrir nýja lóð við Lindarbraut. b) Tillaga að deiliskipulagi sama svæðis. Mál sem frestað var á síðasta fundi sveitarstjómar Oddviti gerði grein fyrir framgangi málsins með sama hætti og í a) lið. Hann greindi frá að samkomulag hafi verið gert við fulltrúa þeirra sem gerðu athugasemdir um að fella niður deiliskipu- lagstillöguna og vinna nýja, þar sem allar lóðir á svæðinu yrðu hnitsettar og lagfæringar gerðar á lóðamörkum. Gert verði áfram ráð fyrir göngustíg í gegn um svæðið og nýrri lóð við Lindarbrautina í samræmi við fyrri tillögu. Drífa lagði fram eftirfarandi tillögu: Sveitarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu aðal- og deiliskipulags svæðisins þar til niðurstaða hefur fengist á samningsum- leitunum sveitarstjómar Bláskógabyggðar sem hafnar vom í október s.l. við menntamálaráðuneytið um skipulagsyfirráð og skiptingu lands og hita á Laugarvatni. Frestunartillaga borin upp og felld með 5 atkvæðum gegn 2. Oddviti lagði til að afgreiða aðal- og deiliskipulag samkvæmt samkomulagi. Tillaga að breytingu aðalskipu- lags Laugardalshrepps 2000-2012 lögð fram til samþykktar skv. 18. grein skipulags-og byggingarlaga með ofangreind- um breytingum. Samþykkt með 5 atkvæðum gegn 2 Aðalskipulagsbreytingum vísað til skipulagsfulltrúa og honum falið að ljúka breytingum á uppdráttum og klára skipulagsferlið. c) Deiliskipulag fyrir Gufubaðið á Laugarvatni og næsta nágrenni. Kynnt og samþykkt og skipulaginu vísað til full- naðarafgreiðslu skipulagsnefndar og auglýsingar í kjölfarið í samræmi við 25. gr. í lögum nr. 73/1997. Jafnframt samþykkt að stofna þriggja manna vinnuhóp á næsta fundi sveitarstjórnar til að móta hugmyndir um framtíðarskipulag á Laugarvatni. 40. fundur byggðaráðs 4. janúar 2005. Mætt: Margeir Ingólfsson formaður byggðaráðs, Snæbjöm Sigurðsson, Drífa Kristjánsdóttir auk Ragnars S. Ragnarssonar sem ritaði fundargerð. Lögð fram drög að þriggja ára fjárhagsáætlun Blá- skógabyggðar 2006 - 2008 og forsendur að gerð hennar. Sjúkraflutningar í Árnessýslu. Samkvæmt fréttum fjöl- miðla þá hefur lögreglan í Árnessýslu sagt upp samningi við ríkið um sjúkraflutninga í Árnesýslu. Byggðaráð hefur áhyggjur af stöðu mála og vill beina því til héraðsráðs Árnesinga að það beiti sér fyrir því að gengið verði frá samningi um sjúkraflutningana sem fyrst þannig að ekki verði óvissa um framkvæmd þessara mála og þeir sem taki að sér þessa flutninga geti sem fyrst farið að undirbúa sig undir verkefnið. Bréf frá Kára Jónssyni dags. 4. des. 2004 varðandi styrkveitingu til Umf. Laugdæla 2005. Byggðaráð vill benda á að í fjárhagsáætlun ársins 2005 er gert ráð fyrir styrk til Umf. Laugdæla að upphæð kr. 850.000. Litli Bergþór 22

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.