Litli Bergþór - 01.03.2005, Qupperneq 24
Bláskógabyggðar frá 7. desember 2004. Lagt til að Sigmar
Ólafsson, Halldór Páll Halldórsson og Drífa Kristjánsdóttir
verði í vinnuhópnum. Lagt er til að sveitarstjóri og skipu-
lagsfræðingur vinni með hópnum. Sigmar Ólafsson verði
formaður vinnuhópsins. Lagt til að hópurinn skili af sér
fyrir 1. apríl 2005.
Lokun KB banka. Upplýst um samtöl oddvita og
sveitarstjóra Bláskógabyggðar við KB - banka og aðrar
bankastofnanir um möguleika á áframhaldandi
bankaþjónustu á Laugarvatni. Viðræður í framhaldi af
bókun sveitarstjórnar frá 7. október og 16. nóvember 2004.
Kærur á úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á
umhverfísáhrif Gjábakkavegar (365) Laugarvatn - Þing-
vallasveit, Bláskógabyggð í kjölfar úrskurðar
Skipulagsstofnunar frá 11. nóvember 2004, þar sem fallist
er á lagningu Gjábakkavegar samkvæmt tillögum
Vegagerðarinnar. Óskað er álits sveitarstjórnar á þeim
athugasemdum sem þar koma fram sem eru frá þrem
aðilum, þ.e. Pétri Jónassyni, Danmörku,
Náttúruverndarsamtökum íslands og Landvernd. Sveini A.
Sæland og Drífu Kristjánsdóttur í samvinnu við sérfræðinga
verði falið að gefa umsögn um þær kærur sem hafa borist.
Fyrirspurn T-listans um sölu á Lindinni og frágangi á
samningi vegna sölunnar. Sveitarstjóri upplýsti um þá
erfiðleika sem komið hafa upp vegna sölunnar og sagði frá
þeim fyrirvörum sem voru í kauptilboði sem ekki hafa
gengið eftir. Lagt fram bréf til menntamálaráðuneytisins frá
desember 2004.
39. fundur sveitarstjórnar 1. febrúar 2005.
Mættir voru allir sveitarstjórnarmenn og Ragnar Sær
Ragnarsson sem ritaði fundargerð.
Þriggja ára fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar 2006 -
2008, síðari umræða. Aætlunin var kynnt og staðfest.
Atvinnuuppbygging í Bláskógabyggð. Sveitarstjóm
samþykkir að koma til móts uppbyggingu atvinnurekstrar á
árinu 2005. Samþykkt að gatnagerðargjöld verði lækkuð
(tímabundin afsláttur) til þeirra sem byggja nýtt húsnæði á
iðnaðar - eða hesthúsasvæðum sveitarfélagsins. Átakið
verði kynnt útávið sem vænlegur kostur til atvinnuuppbyg-
gingar. Ljóst er að fjölmargir hafa flutt/eða búa í sveitar-
félaginu vegna samspils byggðar við ósnortna náttúru. Til
að koma til móts við þá aðila og aðra sem sýna uppbygg-
ingu í sveitarfélaginu áhuga er samþykkt að lækka nú-
verandi gjaldskrá um 50% til þeirra sem hefja framkvæmdir
á árinu 2005 og ljúka þeim eigi síðar en 1. desember 2006.
Gjábakkavegur. Lagt fram svar sveitarstjórnar vegna
kæm þriggja aðila á úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á
umhverfisáhrifum Gjábakkavegar (365) Laugarvatn - Þing-
vallasveit, Bláskógabyggð. Kynnt.
Lánasjóður sveitarfélaga. í samræmi við fjárhagsáætlun
2005 hefur verið leitað eftir tilboðum í lán fyrir sveitar-
félagið á árinu 2005.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að taka lán hjá
Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 40.000.000 með allt
að 4.15% föstum vöxtum og verðtryggt til 15 ára. Lánið
mun hafa tryggingu í tekjum sveitarfélagsins vegna lán-
tökunnar sbr. 3. mgr. 73. gr. sveitarstjómarlaga nr. 45/1998.
Lántakan er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun
sveitarstjórnar 2005 og er vegna nýbyggingar skóla.
Samþykkt.
Útboð vegna skólabygginga á Laugarvatni. Bjóðendur
og verðtilboð kynnt. Samþykkt að byggingarnefnd gangi
til samninga við lægstbjóðendur á grundvelli útboðsgagna.
Lindin Laugarvatni. Rætt um sölu eignarinnar og stöðu
þess máls.
Bókun T -lista: Þann 1. júní samþykkti sveitarstjóm kaup-
tilboð Ríkarðs Oddssonar í Lindina á Laugarvatni. Baldur
Öxdal átti forkaupsrétt að eigninni og ákvað að nýta sér
hann. Ekki hefur verið gengið frá kaupsamningi við Baldur
þrátt fyrir samþykki sveitarstjórnar frá 1. júní 2004. T-
listinn skorar á meirihlutann að standa við eigin samþykktir
svo komist verði hjá hugsanlegum skaðabótakröfum
forkaupsréttarhafa.
Bókun Þ-listans: Vegna fyrirvara í kauptilboði er málið til
meðferðar hjá Ólafi Björnssyni, lögmanni sveitarfélagsins.
Beðið er eftir áliti hans.
Kaup á húsnæði KB-banka, Laugarvatni. Sveitarfélagið
hefur komist að samkomulagi við eigendur húsnæðis KB-
banka á Laugarvatni um kaup á húsnæði bankans. Ljóst er
að vemleg þörf er á auknu húsrými fyrir byggingar- og
skipulagsfulltrúa á Laugarvatni en þar hafa skapast þrjú ný
störf, öll á síðustu ámm. Þá er nauðsynlegt að tryggja áfram
gott aðgengi að heilsugæsluþjónustu á Laugarvatni og em
kaupin m.a. gerð með þetta í huga. Kaupverð er kr.
4.000.000, og er það fjármagnað með hagstæðu láni frá
KB- banka til 12 ára. Lántakan bókast sem breyting á
fjárhagsáætlun ársins 2005.
41. fundur byggðaráðs 1. mars 2005.
Mættir voru fulltrúar í byggðaráði og ritaði formaður þess
fundargerð.
Vegagerð í hesthúsahverfi í Reykholti. í framhaldi af
samþykkt sveitarstjórnar Bláskógabyggðar 1. febrúar 2005,
um atvinnuuppbyggingu, hefur reynst nauðsynlegt að fara í
vegagerð í hesthúsahverfinu í Reykholti. Vegagerðin
kostaði kr. 400.000 og færist sem breyting á fjárhagsáætlun
ársins 2005.
Viðbótarkennsla fyrir nemendur 10. bekkjar
Grunnskóla Bláskógabyggðar. Að ósk skólastjóra
Grunnskólans samþykkir byggðaráð 36 tíma
viðbótarkennslu fyrir 10. bekk á yfirstandandi skólaári.
Þessi viðbót er til að koma til móts við þann kennslutíma
sem glataðist í verkfalli kennara fyrr á skólaárinu.
Formaður byggðaráðs kynnti stöðu mála með
Lyngdalsheiðarveg (Gjábakkaveg) en þar kom m.a. fram
að ekki er að vænta úrskurðar frá umhverfisráðherra fyrr en
að 6 viknum liðnum. Byggðaráð leggur mikla áherslu á að
ráðherra hraði sinni vinnu sem mest þannig að úrskurður
falli sem fyrst enda er mikill einhugur um þessa vegagerð í
sveitarfélaginu.
Við gerð fjárhagsáætlunar Bláskógabyggðar fyrir árið 2005
Litli Bergþór 24