Litli Bergþór - 01.06.2005, Page 4
Formannspistill
Ágæti lesandi.
Á síðastliðnu ári var tekið í notkun nýtt tölvukerfi
íþróttahreyfingarinnar, FELIX, sem býður upp á
mikið hagræði varðandi starfsskýrsluskil. Miklar
vonir eru bundnar við skil á starfsskýrslum í gegn-
um FELIX enda mun skýrslan þá koma
milliliðalaust frá félögum og allt eftirlit verða ein-
faldara og betra. Héraðssambönd/íþróttabandalög
hafa lesrétt á skýrslur sinna sambandsaðila og geta
fylgst með skilum og niðurstöðum í gegnum sinn
aðgang að FELIX og mun það veita þeim greiðari
aðgang að ýmissri tölfræði sem unnin er úr starfs-
skýrslunum og hefur þýðingu gagnvart styrkja-
kerfum í héraði. Meðal upplýsinga eru t.d. fjöldi
iðkenda innan félaga sem hafa á þann hátt áfhrif á
úthlutun á lottótekjum til félaganna.
Ungmennafélagið fékk Skúla Sæland til þess að
vera tengilið við Láru Óskarsdóttur, starfsmann
FELIX kerfisins, og þannig koma félaginu inn í
þetta skráningarkerfi.
Fyrir skemmstu hélt íþróttadeildin aðalfund sinn
og má nefna að þar var gerð breyting á því hvernig
staðið er að vali á íþróttamanni ársins. í breyting-
unni felst meðal annars að farið er eftir tilnefn-
ingum frá þjálfurum og formönnum nefnda, og að
forsendur geti verið breytilegar, t.d. að ekki verði
eingöngu stuðst við árangur á mótum heldur verði
ástundun, áhugi og framfarir þar einnig metið.
Iþróttafólkið sem var kosið að þessu sinni voru
Pálmi Eiríkur Gíslason og Jóna Sigríður Guðmunds-
dóttir, og óska ég þeim innilega til hamingju. Mér
finnst einnig vert að óska þeim til hamingju sem
fengu tilnefningar því þeir hafa líka stundað sína
íþrótt af kappi.
Á fundinum kom fram að íþróttadeildin hefur
verið dugleg að afla fjár og styrkja til að auka við
þá flóru af áhöldum sem þörf er á í íþróttahúsinu til
kennslu og æfinga.
Meðal þess sem minnst var á að vantaði tilfinnan-
lega í íþróttamiðstöðina er gott hljóðkerfi, sem
myndi nýtast bæði fyrir kennara og þjálfara og eins
ef einhver mannfagnaður á sér stað í húsinu.
Ég vil skora á sveitarstjóm að koma til móts við
Ungmennafélagið og í sameiningu getum við fundið
leið til þess að uppfylla allar þær þarfir íþrótta-
iðkenda í sveitinni sem við höfum möguleika á.
Nú þegar sumarið er gengið í garð hvet ég alla til
þess að nýta þennan yndislega tíma til aukinnar
útiveru og hreyfingar með fjölskyldunni og sameina
með þeim hætti hollustuna með hreyfingunni og
aukin samskipti og umræðu meðal fjölskyldunnar
og eða vinahóps. Ég vil líka minna á unglinga-
landsmót UMFÍ dagana 29. - 31. júlí í Vík í Mýrdal,
en það er íþróttamót fyrir unglinga á aldrinum 11 -
18 ára, en samhliða því er boðið uppá fjölbreytta
afþreyingu og leiki og skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna. Á heimasíðu mótsins www.ulm.is má
finna ýmsar skemmtilegar upplýsingar um mótið
sjálft og dagskrá þess.
Eg óska öllum gleðilegs sumars.
Guttormur Bjarnason,
formaður Umf. Bisk
SELÁS-BYGGINGAR ehf,
Tilboðsgerð, viðhald, hurðir,
gluggar, timbur-, íbúðar-,
sumar og stálgrindarhús
Hákon Páll Gunnlaugsson
löggiltur húsasmíðameistari + byggingastj.
Sími 486-8862/894-4142
netfang: hakon@eyjar.is fax: 486-8620
Litli Bergþór 4