Litli Bergþór - 01.06.2005, Blaðsíða 26

Litli Bergþór - 01.06.2005, Blaðsíða 26
vangreidd gjöld aðallega útsvars vegna áranna 1999 - 2004, kr. 8,6 millj og starfsmats vegna áranna 2002 -2004 kr. 7 millj., er ljóst að kr. 25, 6 millj. sem falla til á árinu koma ekki til vegna yfirkeyrslu í rekstri einstakra málaflokka og eiga jafnvel ekki við um árið 2004 en eru nú eigi að síður færðar á það ár. Sé horft til þessara skýringa er rekstur samstæðunnar í heild um kr. 15,2 milljónir umfram tekjur ársins. Aðrar skýringar felast í uppbyggingu gatna og fráveitna umfram áætlun ársins auk þess sem kostnaður við skipu- lagsgerð m.a. fyrir nýtt aðalskipulag Þingvallasveitar og önnur skipulagsvinna er hærri en gert var ráð fyrir. Ljóst er að reksturinn á árinu er ekki viðunandi og að lækka þarf rekstrarkostnað um 23,6 millj. til þess að endar nái saman í rekstri sveitarfélagsins eða 4,7 % af tekjum samstæðunnar. Bókun vegna lántöku fyrir skólabyggingamar og endur- fjármögnun á eldri og óhagstæðari lánum sveitarfélagsins í kjölfar breytinga á útlánum Lánasjóðs sveitarfélaga. Sveitarstjóm Bláskógabyggðar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 126.400.000 samkvæmt tveimur lánssamningum, annars vegar vegna skólabygginga kr. 80.000.000 og hins vegar kr. 46.600.000 til endurfjámögnunar sbr. 2. gr. laga um Lánasjóð sveitar- félaga nr. 136/2004. Lán þessi skulu endurgreiðast á 15 áram og bera fasta árlega 3,80% vexti auk verðtryggingar til 2012, en þá verða nýir vextir ákveðnir. Endurgreiðsla lánanna umfram umsamdar afborganir er óheimil, nema þegar nýir vextir af lánunum em ákveðnir, en þá má greiða lánin upp að fullu. Vom skilmálar lánveitingarinnar og lánskjör nánar kynnt og rædd á fundinum. Til tryggingar lánanna standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjómarlaga nr. 45/1998. Em þær til tryggingar skilvísri og skaðlausri greiðslu höfuðstóls, vaxta, dráttarvaxta, vaxtavaxta, verðbóta, lög- bundinna vanskilaálaga, kostnaðar við kröfugerð, innheim- tu- og málskostnaðar, kostnaðar við fjárnámsgerð og væn- tanlegs kostnaðar af frekari fullnustugerðum, svo og öllum öðmm kostnaði, sem af vanskilum kann að leiða, og gildir tryggingin uns skuldin er að fullu greidd. Fyrir gjaldfallinni fjárhæð má ganga að veðinu til fullnustu skuldarinnar án undangengis dóms eða sáttar skv. 7. tl. 1. mgr. 1. gr. laga um aðför nr. 90/1991. Sveitarstjómin veitir jafnframt hér með f.h. Bláskóga- byggðar, Ragnari Sæ Ragnarssyni, 030861-3539 sveitarstjóra Bláskógabyggðar fullt og ótakmarkað umboð til þess að skrifa undir lánssamninga við Lánasjóð sveitar- félaga sbr. framangreint, og önnur þau skjöl sem nauðsyn- leg em til að lánssamningamir taki gildi. Jafnframt er Ragnari S. Ragnarssyni sveitarstjóra veitt fullt og ótakmar- kað umboð til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda fyrir hönd Bláskógabyggðar, hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengist lánssamningum þessum. I framhaldi af þessu er samþykkt breyting á fjárhagsáætlun ársins á nýrri lántöku kr. 52.000.000. Samstarfssamningur um samvinnu í skólamálum. í samræmi við samþykkt sveitarstjómar frá 10. maí 2005, 6. tölul. lagði sveitarstjóri fram samning sem undirritaður hefur verið af sveitarstjórum Grímsnes- og Grafningshrepps og Bláskógabyggðar með fyrirvara um samþykki sveitarstjómar. Samningurinn samþykktur með 4 atkvæðum gegn 2 og 1 sat hjá. Beiðni um breytingu á aðalskipulagi Iðufelli, Laugarási. Oskað var eftir því að lóð Iðufells verði breytt frá því að vera lóð undir verslun og þjónustu í það að vera íbúabyggð að undanskilinni lóðinni undir gistiheimilinu Iðufelli. Sveitarstjóm samþykkir beiðnina að undanskilinni lóð sem liggur að Skálholtsvegi, hún verði áfram verslunar og þjónustulóð. Sveitarstjóm samþykkir að auglýsa aðalskipu- lagstillöguna í samræmi við 18. gr. skipulags -og byggingarlaga og vísar málinu til skipulagsfulltrúa til auglýsingar. Deiliskipulag Rima. Lögð fram tillaga frá Pétri H. Jónssyni að deiliskipulagi tveggja íbúðarhúslóða í landi Rima, Bláskógabyggð. Gert er ráð fyrir tveimur lóðum 11500 m2 og 39500 m2 og er hluti af henni svæði fyrir skógrækt en alls er viðkomandi land, 5,1 ha. Tillagan var í kynningu frá 24.desember 2004 til 21. janúar 2005. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 4. febrúar. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000 - 2012 á sama stað. Ein athugasemd barst við breytingartillöguna og hefur hún verið dregin til baka og samkomulag undirritað milli aðila. Aðalskipulagsbreytingin hefur verið samþykkt af sveitarstjóm og staðfest af umhverfísráðuneyti. Sveitarstjóm samþykkir deiliskipulagið í samræmi við 25. grein skipulags-og byggingarlaga. Vegagerð, safnvegir. Rætt var um uppbyggingu safnvega í sveitarfélaginu og var sveitarstjóm sammála um að skora á samgöngunefnd að úttekt á safnvegum og götum í þéttbýli sveitarfélagsins ljúki sem fyrst. Drífa lagði fram eftirfarandi tillögu: „Vegna vöntunar á framkvæmdafé á áætlun um viðhald safnvega þá leggur T- listinn til að heimreiðir að Brattholti verði lagfærðar í sumar. Atvinnurekstur og uppbygging er mikill í Brattholti og hamla lélegar heimreiðar uppbyggingunni." Jafnframt lagði T-listinn fram eftirfarandi tillögu: „Sveitarstjóm samþykkir að beita sér fyrir því að fá Vegagerðina til að gera fleiri og betri bflastæði við Gullfoss. Þjónusta er mjög mikil þar og mikill fjöldi ferðamanna kemur þangað dagle- ga, en bifreiðastæði em of fá.“ Samþykkt var að vísa tillög- unni til byggðaráðs. Fundargerð 19. fundar veitustjómar Bláskógabyggðar, sem haldinn var 23. maí 2005. Sveitarstjóm tekur undir með veitustjóm og samþykkir að farið verði í hönnum á kalda- vatnsveitu í samstarfi við Grímsnes- og Grafningshrepp. Kostnaður við framkvæmdina verður færður á fjárhagsáætlun næsta árs en hönnunarkostnaður allt að kr. 1.000.000 færist sem breyting á fjárhagsáætlun þessa árs. Jafnframt samþykkir sveitarstjóm að farið verði í framkvæmdir á hverasvæðinu á Laugarvatni í samræmi við tillögu veitustjómar og verður kostnaður við það allt að kr. 1.500.000. Fundargerðin staðfest að öðm leyti. Litli Bergþór 26

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.