Litli Bergþór - 01.12.2005, Page 4
Formannspistill
Tækifærið gríptu greitt,
giftu mun það skapa.
Járnið skaltu hamra heitt,
að hika er sama og tapa.
Já, svo kvað Steingrímur Thorsteinsson forðum.
Með þessari vísu lauk Sædís Iva Elíasdóttir ráðgjafi
og formaður Ungmennasambands Vestur-
Skaftafellssýslu erindi sínu, sem hún nefndi
„Hvemig virkjum við ungt fólk“. En erindið flutti
hún á málþingi sem nefnt var Þátttaka er lífsstíll —
JJngt fólk á Suðurlandi.
Þingið var á vegum Menntamálaráðuneytisins,
SASS, HSK, og Æskulýðsráðs Ríkisins. Fluttar voru
sex framsögur og síðan umræður að þeim loknum. í
erindi Sædísar lagði hún áherslu á að byrja snemma
að virkja ungt fólk til félags og tómstundastarfa en
það væri leið til þess að þroska einstaklinginn, t.d.
að taka tillit til annarra, bera virðingu fyrir öðrum
og að geta tekið sigrum og tapi, auk félagslegs
þroska. I flestum tilfellum bætir ástundun líðan
viðkomandi og byggir upp jákvæða sjálfsmynd.
Einnig kom fram hjá henni að vandi félaga væri oft
mikill í sambandi við kostnað á æfingagjöldum og
hættan væri sú að misjafnar fjárhagsaðstæður fjöl-
skyldna gætu komið í veg fyrir þátttöku ungmenna í
félagsstarfi.
Tvær stúlkur voru fulltrúar frá FSu og ML, og
fluttu þær mál sitt skörulega að mér fannst. Þeim
fannst margt gott gert en spurðu samt hvort full-
orðna fólkið skipulegði hlutina kannski oft út frá
sjálfu sér í staðinn fyrir að leita álits á hvað ungling-
unum finnst eða hvað þeim hentar. I umræðum, sem
voru á eftir, kom fram hjá þeim sem í dreifbýli búa
nauðsyn þess að hvers kyns tómstunda- og íþrótta-
starf væri skipulagt í beinu framhaldi af skólastarfi
til þess að lágmarka keyrslu og kostnað sem því
fylgir. íþróttadeild Ungmennafélagsins hér hefur
reynt að halda niðri kostnaði æfingagjalda og skipu-
leggja æfingarnar eins vel og hægt er. íþróttaæfingar
eru með hefðbundu sniði eins og verið hefur en
þreifingar eru um sameiginlegar æfingar í frjálsum
íþróttum útfrá Laugarvatni, en það kemur til útaf
erfiðleikum við að fá þjálfara til okkar. Vona ég að
lausn finnist á því.
Guttormur Bjarnason,
formaður Umf. Bisk
SELÁS-BYGGINGAR ehf.
Tilboðsgerð, viðhald, hurðir,
gluggar, timbur-, íbúðar-,
sumar og stálgrindarhús
Hákon Páll Gunnlaugsson
löggiltur húsasmíðameistari + byggingastj.
Sími 486-8862/894-4142
netfang: hpgunn@binet.is fax: 486-8620
Litli Bergþór 4